Úlfhildur Arna Unnarsdóttir (f. 2005) keppti á Evrópumeistaramóti Youth á dögunum og þá á hennar fyrsta stórmóti. Úlfhildur hafnaði í 6. sæti í -71 kg flokki meyja með 75 kg í snörun, 90 kg í jafnhendingu og 165 kg í samanlögðu sem er einungis 3 kg frá hennar besta árangri á móti en á hún 168 kg í samanlögðu eftir Sumarmóti LSÍ í júní síðastliðinn. Óskum við henni innilega til hamingju með þennan frábæran árangur og hlökkum við mikið til að fylgjast með henni á komandi mánuðum.
Næst á dagskrá hjá Úlfhildi er að æfa fyrir Heimsmeistaramót Youth (U17) í Sádí Arabíu en þar eru frekar ólíkar aðstæður en hér á norðurslóðum þar sem hitinn er í kringum 37 gráðurnar og fer sjaldnast niður fyrir 24 gráður. Munu tveir keppendur fara fyrir Íslands hönd en með Úlfhildi fer Brynjar Ari Magnússon en keppir hann í -89 kg flokki drengja.
Þann 20. ágúst síðastliðinn var fyrsti dagur Evrópumeistaramóts U15 og U17 2021 en er það haldið þetta árið í Ciechanów í Póllandi. Úlfhildur Arna Unnarsdóttir keppir fyrir hönd Íslands í -71 kg flokki kvenna og er ein 8 keppenda í þeim flokki. Best á Úlfhildur 168 í samanlögðu á móti og verður skemmtilegt að sjá hversu langt hún nær á mótinu. Unnar Helgason faðir og þjálfari Úlfhildar fylgir henni að sjálfsögðu á mótinu og óskum við þeim velgengnis. Áfram Ísland!
Úlfhildur keppir á miðvikudaginn næsta 25. ágúst kl 15:45 á Íslenskum tíma og getið þið horft á keppnina á Facebook síðu Pólska lyftingasambandsins á þessum hlekk
Skráning er hafin á Haustmót LSÍ sem haldið verður að þessu sinni af Lyftingafélagi Garðabæjar í húsnæði Crossfit XY að Miðhrauni 2 í Garðabæ 18. september næstkomandi, skráningin stendur til 8. september.
Hafiði einhverjar spurningar er velkomið að hafa samband við framkvæmdastjóra á lsi@lsi.is eða í síma 8490772.
Tveir íslenskir keppendur reyndu að vinna sér inn þátttöku á leikunum þau Þuríður Erla Helgadóttir (-59kg flokki kvk) og Einar Ingi Jónsson (-73kg flokki kk) en keppa þurfti á minnst sex úrtökumótum yfir þrjú keppnistímabil og hófst úrtökuferlið með HM 2018 í Túrkmenistan og hefur því staðið yfir í 3 ár. Hvorugt þeirra verður á meðal keppenda í Tokyo en hörð barátta er um sætin í Evrópu þó keppendur neðar en þau á heimslista verði meðal keppenda m.a. frá Eyjaálfu og Afríku.
Einn keppandi frá Norðurlöndunum tryggði sér þátttökurétt hin sænska Patricia Strenius í -76kg flokki kvenna.
Sumarmót Lyftingarsambands Íslands var haldið þetta árið af Lyftingadeild UMFSelfoss í húsnæði Crossfit Selfoss að Eyrarvegi 33, 26. júní. Mótið hófst kl:10:00 á laugardag og stóð til 17:30. Miklar þakkir til starfsmanna mótsins fyrir vel unnin störf sem og þeim sem hlupu í skarðið með mjög litlum fyrirvara, samstaðan gerði mótið gerlegt. Keppendur mótsins stóðu sig með ágætum og óskum við þeim innilega til hamingju með frábært mót. Þó nokkrir náðu lágmörkum á mót erlendis á árinu og óskum við þeim innilega til hamingju með framúrskarandi árangur.
Frá v. Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir, Amalía Ósk Sigurðardóttir og Íris Rut Jónsdóttir
Í 3. sæti með 226,1 Sinclair stig var Íris Rut Jónsdóttir frá UMFN Massa. Íris vigtaðist í 64 kg flokk kvenna kláraði mótið með 72 kg í snörun, 100 kg í jafnhendingu og þá 172 kg í samanlögðu. Bætti Íris sig um 1 kg í snörun og 6 kg í jafnhendingu á móti.
Í 2. sæti með 228,1 Sinclair stig var Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir frá Lyftingafélagi Hengli. Stella vigtaðist í 59 kg flokk kvenna og kláraði mótið með 77 kg í snörun og 87 kg í jafnhendingu og þá 164 kg í samanlögðu. Bætti Stella sig um 4 kg í snörun.
Í 1. sæti með 233,5 Sinclair stig var Amalía Ósk Sigurðardóttir frá Lyftingafélagi Mosfellsbæjar. Amalía vigtaðist í 64 kg flokk kvenna og kláraði mótið með 75 kg í snörun og 103 kg í jafnhendingu. Bætti Amalía sitt eigið Íslandsmet í -64 kg flokki kvenna í jafnhendingu um 2 kg með seinustu lyftu sinni í jafnhendingu sem er þá núna 103 kg.
Anna Guðrún Halldórsdóttir setti 24 íslandsmet í Öldungaflokkum 35-50 ára í -81 kg flokkum kvenna sem endaði í 56 kg í snörun, 75 kg í jafnhendingu og 131 í samanlögðu.
Karlaflokkur
Frá v. Bjarki Breiðfjörð Björnsson, Brynjar Logi Halldórsson og Gerald Brimir Einarsson
Í 3.sæti með 277,7 Sinclair stig var Bjarki Breiðfjörð Björnsson frá UMFSelfoss. Bjarki vigtaðist inn í 73 kg flokk karla og kláraði mótið með 100 kg í snörun sem var nýtt junior íslandsmet (U20) og 115 kg í jafnhendingu og þá 215 kg í samanlögðu. Bjarki bætti sig um 5 kg í snörun á móti, 9 kg í jafnhendingu og 14 kg í samanlögðu.
Í 2. sæti með 305 Sinclair stig var Gerald Brimir Einarsson frá Lyftingafélagi Garðabæjar. Gerald vigtaðist inn í 89 kg flokk karla og kláraði mótið með 113 kg í snörun, 143 kg í jafnhendingu og því 256 kg í samanlögðu. Var þetta annað mót Geralds en keppti hann seinast á Sumarmótinu 2019. Hækkaði hann sig um 19 kg í snörun, 15 kg í jafnhendingu og 36 kg í samanlögðu.
Í 1. sæti með 324,2 Sinclair stig var Brynjar Logi Halldórsson frá Lyftingafélagi Reykjavíkur. Brynjar vigtaðist inn í 81 kg flokk karla og setti íslandsmet í hverri þeirri lyftu sem hann fékk gilda sem endaði í 122 kg í snörun, sem var junior, U23 og senior íslandsmet, hann tók 138 kg í jafnhendingu en með því hreppti hann 260 kg í samanlögðu sem var nýtt junior íslandsmet í samanlögðu í 81 kg flokki pilta.
Til Keppenda, þjálfara og annara starfsmanna: Mætið með grímu í vigtun Mætið með eigin kalk og drykkjarföng Ekki fara á áhorfendasvæði fyrr en eftir eigin keppni a.t.h. en þá er ekki hægt að fara aftur til baka á keppnissvæði. Þjálfarar og aðrir starfsmenn þurfa að halda 1m bili milli sín, annara starfsmanna, keppenda og áhorfenda. Ef það er ekki hægt þarf að bera andlitsgrímur.
Áhorfendur: Sumarmót LSÍ er haldið í húsnæði Crossfit Selfossi að Eyrarvegi 33, 800 Selfossi. Áhorfendur eru leyfðir á mótinu en þurfa þeir allir að hafa grímu á sér nema rétt á meðan þeir neita matar eða drykkjar. Skrá þarf áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu.
Streymi: Streymt verður viðburðinum á TWITCH síðu sambandsins HÉR
Nokkrar breytingar hafa orðið á mótum á Mótaskrá LSÍ 2021 Dagsettningar Norðurlandamóta Youth/Junior og Senior komu inn og þurfti því að færa Jólamót LSÍ fyrr í mánuðinn og á dagsettningu sem hentaði mótshaldara. Sett var dagsetning fyrir Íslandsmeistaramót Unglinga sem verður 23.október og ætla þau í Lyftingafélagi Reykjavíkur að halda mótið.
Lágmörk á erlend mót eru að finna undir flipanum „Lög og reglugerðir“ og þar undir „Lágmörk“.
Minnum á að Mótaskrá getur breyst fyrirvaralaust og þá sérstaklega vegna COVID. Hætt var við mörg mót erlendis í fyrra og þurfum við að vera viðbúin því einnig á þessu ári.
Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna vegna mótanna á lsi@lsi.is
Helga Hlín Hákonardóttir tók sinn móthluta í gær þann 26. maí í Gautaborg í Svíþjóð. Helga Hlín keppti í -59 kg flokki í Masters 45 og náði 54 kg í snörun, 71 kg í jafnhendingu og því 125 kg í samanlögðu með 227 Sinclair stig, en var þetta 13 kg bæting frá hennar besta árangri á móti. Þessi árangur færði Helgu Hlín 3. sæti í sínum aldurs og þyngdarflokki en var hún einungis einu kílói frá 2. sæti. 2021 World Masters Weightlifting Virtual Championship var aðeins þriðja mót Helgu Hlínar í lyftingum en hreppti hún titilinn sem Evrópumeistari 2020 í sínum aldurs og þyngdarflokki á sínu öðru móti. Þess má geta að dóttir Helgu Hlínar, Úlfhildur Unnarsdóttir náði yfirburðar árangri á seinasta Norðurlandamóti unglinga og náði þar A-lágmörkum á EM U17 og HM U17 en æfa þær mægður saman undir þjálfun Unnars Helgasonar, eiginmanns Helgu Hlínar og föður Úlfhlidar. Hlökkum við mikið til að sjá hvað framtíðin bíður í skauti sér fyrir þessa fjölskyldu. Innilega til hamingju með árangurinn Helga Hlín! Við erum afar stolt af þér!
Alma Hrönn Káradóttir keppir fyrir hönd Íslands á morgun 28.maí í Masters 35 í -76 kg flokki. Keppendur taka allir þátt á sínu heimasvæði útum allan heim og senda út upptökur sínar til Öldungasambandsins sem tekur saman árangurinn.
Sumarmót LSÍ verður haldið að þessu sinni af UMFSelfoss í húsnæði Crossfit Selfoss þann 26. júní næstkomandi. Frekari upplýsingar um mótið munu birtast á heimasíðu LSÍ eftir skráningu en henni lýkur 16. júní.