Eygló Fanndal Sturludóttir er ein af íþróttamönnum Íslands sem ÍSÍ hefur valið í ólympíuhóp fyrir París 2024 ásamt níu einstaklingum og karlalandsliðinu í handknattleik.
Íþróttamenn í hópnum, Anton Sveinn McKee vantar á hópmyndina.
Sjá fréttatilkynningu frá ÍSÍ hér að neðan:
Myndaður hefur verið Ólympíuhópur ÍSÍ sem samanstendur af afreksíþróttafólki sem annað hvort hefur tryggt sig inn á Ólympíuleikana í París 2024 eða er í dauðafæri að komast inn á þá á næstu misserum. Í þessum hópi er afreksíþróttafólk úr sjö íþróttagreinum. Það verður spennandi að fylgjast með þeim næstu vikur og mánuði, en milli íþróttagreina eru mismunandi leiðir til að tryggja sér þátttökurétt. Anton Sveinn McKee, sundmaður, er sá eini sem hefur nú þegar unnið sér inn þátttökurétt á leikana en vonir eru bundnar við að Ísland muni eiga góðan hóp íþróttafólks á leikunum. Ólympíuleikarnir eru stærsti íþróttavettvangur heims og þar keppa fremstu íþróttamenn heims í íþróttagreinum 32 alþjóðasérsambanda.
Ólympíuhópurinn samanstendur af níu aðilum úr einstaklingsgreinum auk karlalandsliðsins í handknattleik, en hópurinn mun taka breytingum eftir því sem nær dregur leikum og fleiri eða færri aðilar hafa raunhæfa möguleika á þátttöku.
Á næstunni er ætlun ÍSÍ og sérsambanda að vekja athygli á þessu íþróttafólki og þeim viðburðum sem þau eru að keppa á til að vinna sér þátttökurétt á leikana í París, en þeir verða settir föstudaginn 26. júlí nk. Kynningarmyndband hefur verið sett saman og birt á samfélagsmiðlum ÍSÍ auk þess sem frekara efni bíður birtingar sem ÍSÍ, sérsambönd og íþróttafólkið mun koma á framfæri á næstunni. Vésteinn Hafsteinsson, Afreksstjóri ÍSÍ, heldur utan um Ólympíuhópinn en hann hefur áratuga reynslu, bæði sem þjálfari og afreksíþróttamaður í kringlukasti, og hefur nú þegar tekið þátt í 10 Ólympíuleikum.
Það er von ÍSÍ að hópurinn fái sem mesta athygli og stuðning svo árangur þeirra verði sem bestur. ÍSÍ óskar afreksíþróttafólkinu okkar og teymi góðs gengis í verkefnunum sem framundan eru.
Allir þeir keppendur sem hafa náð lágmörkum á Norðurlandamót hafa rétt á að koma á landsliðsæfingar LSÍ, bæði norðurlandamót fullorðinna, masters og unglinga. Landsliðsæfingar fara fram í húsnæði Stjörnunnar í Miðgarði í Garðabæ Æfingarnar fara fram kl: 9:00 til 11:00, með fyrir vara um breytingar.
Landliðsþjálfari, Ingi Gunnar Ólafsson, hvetur landsliðskeppendur að bjóða þjálfurum sínum með sér á landsliðsæfingar.
Í gær, sunnudaginn 17. Desember fór Jólamót Lyftingasambands Íslands fram á vegum Lyftingafélags Kópavogs, í húsnæði Sporthúsins.
Alls voru 31 keppandi á mótinu, 19 konur og 13 karlar. Jólamótið er Sinclairstigamót og 3 efstu konur og 3 eftstu karlar verðlaunaðir út frá sinclairstigum. Heildarúrslit mótsins má finna hér
Bergrós Björnsdóttir sigraði í kvennaflokki með 224,9 sinclair stigum. Hún lyfti 180kg sem er árangur til A lágmarka á heimsmeistaramót U17 en Bergrós er fædd 2007 og því 17 ára á næsta ári. Það var virkilega gaman að sjá Bergrósu aftur á lyftingakeppnispalli og ná sér í lágmörk á stórmót en hennar síðasta mót fyrir þetta var Heimsmeistaramót U17 í júní 2022. Bergrós hefur einnig getið sér góðs orðstírs í crossfitheiminum síðustu ár.
Erla Ágústsdóttir varð í öðru sæti með 222,0 sinclairstig. Hún lyfti 211 kg og er sá árangur til B lágmarka á EM senior og C lágmarka á HM senior. Erla á einnig eftir 1 ár í U23 á næsta ári. Erla setti 6 Íslandsmet á mótinu. 115kg C&J var nýtt íslandsmet í U23 og 118kg íslandsmet í bæði U23 og Senior. Við þessar lyftur setti hún líka Íslandsmet í samanlagðri þyngd 208kg í U23 og svo 211kg í bæðu U23 og Senior.
Erla er á leið á Evrópumeistaramót í febrúar og verður virkilega gaman að fylgjast með þessari rísandi lyftinga konu sem kom heim með verðlaun á EM U23 á þessu ári.
Andrea Rún Þorvaldsdóttir varð í þriðja sæti með 212,18 sinclairstig og 170kg samanlagða þyngd í 71kg flokki. Þessi árangur hennar gefur henni C lágmörk á NM og við bjóðum Andreu velkomna inn í landsliðsæfingahópinn. Andrea keppti siðast á Íslansmeistaramóti í febrúar árið 2019 og er frábært að fá hana aftur á lyftingapallinn með þennan flotta árangur.
Gerald Brimir Einarsson sigraði karlaflokkinn með 346,2 sinclair stig og samanlögð 285kg Gerald hefur verið ötull í Íslandsmetabaráttunni í 89kg flokkinum og í gær reyndi hann við 165kg C&J metið sem ekki vildi alveg alla leið að þessu sinni.
Daníel Róbertsson hafnaði í öðru sæti með 317,4 stig og 265kg samanlagt. Daníel er þrautreyndur keppandi og hefur keppt allar götur frá 2012 og á fjölmörgum Norðurlanda-, Evrópu- og Smáþjóðamótum.
Ögri Harðarson frá KA hafnaði í þriðja sæti með 304,1 sinclair stig og 245kg samanlögð kíló. Þetta var aðeins hans annað mót og virkilega gaman að hafa keppendur frá Akureyri með á mótinu. Hann fagnaði bætingu í snörun eftir minnilega með afturábak heljarstökki við mikinn fögnuð áhorfenda.
Stjórn lyftingasambandsins hefur valið lyftingafólk ársins 2023, einnig eru ungmenni ársins valinn í flokki 18-20 ára, 16-17 ára og 15 ára og yngri. Afhending farandbikara mun eiga sér stað á næstu vikum, ef þið eruð með bikar og ekki hefur verið haft samband við ykkur megið þið endilega láta Maríönnu framkvæmdastjóra vita í gegnum lsi@lsi.is.
Eins og fyrri ár er valið samkvæmt 18.Grein úr lögum LSÍ.
18. Stjórn og varamenn hafa atkvæðisrétt um val á lyftingakonu og karli ársins, valið skal ávallt miðast við tímabilið 1. Desember til 30. Nóvember. Ef óskað er eftir því getur kosning verið nafnlaus. Val á lyftingakonu og karli ársins skal miðast við árangur íþróttamannsins á liðnu ári og er þá sérstaklega horft til Sinclair stigatölu sem og árangur á alþjóðlegum mótum. Íþróttamenn koma ekki til greina í vali á lyftingakonu og karli ársins á meðan þeir taka út refsingu og í eitt ár eftir að refsingu lýkur vegna brota á lyfjalögum ÍSÍ, IWF og/eða WADA.
Besta Lyftingakonan : Eygló Fanndal Sturludóttir
Eygló snarar jafnar norðurlandametið í snörun þegar hún lyftir 104kg í Katar
Eygló Fanndal Sturludóttir (f.2001) úr Lyftingafélagi Reykjavíkur stendur í ströngu þessa dagana við að tryggja sér farmiða á Ólympíuleikana í París 2024. Á tímabilinu sem valið er eftir keppti hún á fimm mótum.
Fyrst Heimsmeistaramótinu 2022 sem fram fór 11.Desember í fyrra í Bogota í Kólumbíu. Þar lyfti Eygló94kg í snörun og 119kg í jafnhendingu alls 213kg og dugði henni í 19.sætið. Þetta var jafnframt fyrsta mótið sem taldi til þátttöku í París.
Næst var það íslandsmeistaramótið þar sem hún lyfti 96 í snörun og 115kg í jafnhendingu.
Þar næst keppti hún á Evrópumeistaramótinu í Yerevan í Armeníu þar sem hún varð í 6.sæti með 96kg í snörun og 121kg í jafnhendingu. Jafnhendingin var nýtt Íslandsmet.
Næst keppti hún á Prand Prix I sem haldið var á Havana á Kúbu. Þar endaði hún í 7.sæti með 100kg í snörun (nýtt Íslandsmet) og 120kg í jafnhendingu sem var jafnframt nýtt Íslandsmet í samanlögðum árangri 220kg.
Að lokum keppti hún í September síðastliðnum á Heimsmeistaramótinu í Ryiadh í Saudi-Arabíu þar sem hún varð í 17.sæti og lyfti 102kg í snörun (aftur bæting á íslandsmeti) og 123kg í jafnhendingu sem var bæting á íslandsmeti og bæting á íslandsmeti í samanlögðum árangri 225kg.
Í Katar nú í Desember gerði hún enn betur og lyfti 104kg í snörun og 127kg í jafnhendingu sem eru íslandsmet og samanlagði árangurinn er 231kg sem hafði dugað í silfur verðlaun á EM 2023.
Hún endar árið í 14.sæti á úrtökulista fyrir Ólympíuleikana, með fimmta besta árangur Evrópubúa (tímabil sem nær frá Desember 2022).
Hún endar árið í 19.sæti á heimslista (long-list) einnig fimmta best Evrópubúa þar.
Hún lyfti mest 231kg á árinu og bætti sinn besta árangur um 14kg.
Strangt tiltekið telst 225kg og 276.5 Sinclair stig til valsins. Árangur hennar í Katar gaf síðan 283.3 stig.
Fyrir árið átti hún bestan árangur 217kg sem hún lyfti er hún varð Evrópumeistari í flokki 21-23 ára 2022.
Hún setti 12 Íslandsmet í fullorðinsflokki á árinu sem einnig voru Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri 2022.
Besti Lyftingamaðurinn : Brynjar Logi Halldórsson
Brynjar Logi Halldórsson á Evrópumeistaramóti Ungmenna 2023
Brynjar Logi Halldórsson (f.2002) úr Lyftingafélagi Reykjavíkur er lyftingamaður ársins annað árið í röð. Valið stóð tæpt á milli Brynjars og Sigurðar Darra Rafnssonar einnig úr Lyftingafélagi Reykjavíkur en meirihluti stjórnar valdi Brynjar og spilaði þátttaka hans og árangur á mótum erlendis þar stóra rullu.
Brynjar keppti á alls fimm mótum á árinu, þar að þremur erlendis.
Bestum árangri náði hann á Sumarmótinu þar sem hann lyfti 293kg sem gaf honum 359,2 Sinclair stig. Sigurður Darri lyfti 297kg í sama þyngdarflokk og Brynjar á sumarmótinu og fékk fyrir það 361.4 Sinclair stig. Þetta er í fyrsta sinn á síðustu 10 árum sem stigahæsti lyftingamaður ársins er ekki valinn lyftingamaður ársins.
Hann vann silfur í -89kg flokki á Norðurlandameistaramótinu þar sem hann lyfti einnig 293kg.
Hann var annar stigahæstur karl keppenda á Smáþjóðamótinu í lyftingum.
Þriðji stigahæstur keppenda á Reykjavík International Games 2023.
Hann varð í 10. Sæti á Evrópumeistaramóti Ungmenna 21-23 ára í -89kg flokki.
Hann setti tvö íslandsmet í fullorðinsflokki á árinu og 7 íslandsmet í flokki 21-23 ára.
Ungmenni ársins Konur 18-20 ára
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir (f.2005) úr Lyftingadeild Stjörnunnar hóf árið með krafti þar sem hún varð hæst kvenna á Sinclair stigum á Reykjavík International Games 2023 með því að lyfta 185kg í -71kg flokk sem gáfu henni 237.2 Stig. Hún varð önnur á Íslandsmeistaramótinu í -71kg flokk á eftir Eygló. Hún varð íslandsmeistari unglinga í -71kg flokk. Hún keppti einu sinni erlendis á árinu á Evrópumeistaramóti 20 ára og yngri þar sem hún keppti í -64kg flokk í fyrsta sinn á alþjóðlegu móti síðan 2019. Þar féll hún úr leik á opnunarþyngd í snörun en kemur reynslunni ríkari til baka.
Ungmenni ársins Karlar 18-20 ára
Bjarki Breiðfjörð með 121kg á Norðurlandameistaramóti Unglinga
Bjarki Breiðfjörð (f.2003) úr Lyftingafélagi Reykjavíkur er bestur í flokki 18-20 ára karla. Hann lyfti mest 260kg í -81kg flokki á árinu þegar hann varð Íslandsmeistari í -81kg flokki. Það gáfu honum 331 Sinclair stig. Hann keppti einnig á Íslandsmeistaramóti Unglinga þar sem hann sigraði sama flokk, á Norðurlandameistaramóti Unglinga snaraði hann 121kg en féll úr leik í jafnhendingu. Síðasta mótið hans var smáþjóðamótið í lyftingum sem fram fóru í Lúxemborg í lok Nóvember. Þar lyfti hann 250kg samanlagt og varð 10 hæsti á stigum.
Ungmenni ársins Konur 16-17 ára
Guðrún Helga Sigurðardóttir á Norðurlandamóti Unglinga í Finnlandi
Guðrún Helga Sigurðardóttir (f.2006) fulltrúi hins nýstofnaða Lyftingafélags Vestra náði bestum árangri kvenna 16-17 ára á árinu. Það gerði hún þegar hún lyfti 137kg í +81kg flokki á íslandsmeistaramóti unglinga sem gáfu henni 144.4 Sinclair stig. Hún keppti einnig á Haustmótinu og á Norðurlandamóti Unglinga þar sem hún varð önnur í +81kg flokki 17 ára og yngri á sínu fyrsta alþjóðlega móti.
Ungmenni ársins Karlar 16-17 ára
Kristinn Þór Hilmarsson (f.2007) úr Lyftingafélagi Reykjavíkur lyfti 118kg samanlagt í -67kg flokki á Sumarmóti LSÍ og varð það stigahæsti árangurinn í flokki 16-17 ára, 175.8 Sinclair stig.
Ungmenni ársins Konur 15 ára og yngri
Steindís Elín Magnúsdóttir (f.2008) úr Lyftingafélagi Reykjavíkur náði bestum árangri kvenna 15 ára og yngri á árinu þegar hún lyfti 110kg í -71kg flokki á Haustmóti LSÍ. Hún keppti einnig á sumarmótinu og Íslandsmeistaramóti Unglinga þar sem hún vann silfurverðlaun í -71kg flokki 17 ára og yngri.
Ungmenni ársins Karlar 15 ára og yngri
Stígur Bergmann Þórðarson (f.2008) úr Lyftingadeild Mosfellsbæjar lyfti 98kg samtals í -67kg flokk sem gáfu honum 148 Sinclair stig á Haustmóti LSÍ. Það var besti árangur í flokki 15 ára og yngri.
Í dag keppti hún í B-hóp í -71kg flokki kvenna og gerði sér lítið fyrir og sigraði hópinn eftir harða baráttu við hina suður-kóresku Minhee Mun sem lyfti 1kg minna en Eygló. Áður hafði hin Kólembíska Mari Sanches Perinan lyft 240kg í C-hóp en Mari var fyrir mótið í 6.sæti á heimslita/úrtökulista fyrir ólympíuleikana (OQR).
Á úrtökulista fyrir ólympíuleikana (OQR) fer hún úr 19-22.sæti upp í 14.sæti samkvæmt óstaðfestum útreikningum.
Upp fyrir Lisa Marie Schweizer (GER), Sarah Davies (GBR), Runa Segawa (JPN) og Joy Ogbonne Eze (NGR) sem allar voru meðal keppenda í dag og voru fyrir mótið ofar eða jafnar Eygló.
Aðeins einn evrópubúi náði betri árangri í dag í þyngdarflokknum, evrópumeistarinn Loredana-Elena Toma frá Rúmeníu sem varð áttunda með 238kg í samanlögðu.
104kg í snörun sem var bæting á íslandsmeti hennar um 2kg sett á heimsmeistaramótinu í Doha í September síðastliðnum.
104kg er einnig jöfnun á norðurlandametihinnar sænsku Patriciu Strenius í snörun sem sett var á HM í Tashkent 2021.
124kg í jafnhendingu var 1kg bæting á íslandsmeti og 127kg því alls 4kg bæting á fyrra meti Eyglóar sem hún setti í Doha.
231kg í samanlögðum árangri var því 6kg bæting á hennar eigin íslandsmeti.
231kg er jafnframt jöfnun á norðurlandameti áðurnefndar Strenius í -71kg flokki kvenna.
Skemmtileg staðreynd að 231kg dugðu Patriciu Strenius í bronsverðlaun á Heimsmeistaramótinu í Tashkent ’21 og vannst flokkurinn á 235kg. Það mót var haldið stuttu eftir Ólympíuleikana í Tokyo þar sem keppt var í -64kg flokk og -76kg flokk kvenna en ekki -71kg.
Eygló með 127kg og jöfnun á norðurlandameti í samanlögðum árangri. Skjáskot úr útsendingu.