
Greinasafn fyrir flokkinn: Uncategorized
Bergrós með silfur í Perú!
Bergrós Björnsdóttir skrifaði sig í sögu lyftinga á Íslandi í gærkvöldi þegar hún vann silfur í -71kg flokki kvenna á Heimsmeistaramóti 17 ára og yngri sem fram fer í Lima, Perú þegar hún lyfti 198kg samanlagt. Þetta eru fyrstu verðlaun sem íslendingur vinnur á Heimsmeistaramóti í Ólympískum lyftingum yfir alla aldursflokka. Eggert Ólafsson þjálfari Bergrósar var henni til halds og traust í Perú.
Sjá umfjöllun IWF um mótið hér
Tuttugu keppendur voru í flokknum hennar en Bergrós var með eitt hæsta entry total á mótinu eins og fram hefur komið í fyrri frétt. Bergrós hóf keppni í snörun á 85kg og fór því næst í 88kg sem kom henni upp í fjórða sætið í snörun, 88kg var 1kg bæting á íslandsmetinu í snörun í aldurs og þyngdarflokknum. Í loka tilrauninni fór hún í 91kg sem hefði tryggt henni gull í snörun og átti ágætis tilraun en stóð ekki upp með þyngdina. Í jafnhendingu opnaði hún á 110kg sem er 10kg betra en hún hefur gert á móti í ólympískum lyftingum og 4kg bæting á íslandsmetinu í aldursflokknum. Við það fór hún upp í annað sætið og þriðja sætið í jafnhendingu. Í annari tilraun fór hún í 114kg til að koma sér í fyrsta sætið, hún náði hinsvegar ekki að standa upp með þá þyngd. Það eina í stöðunni var að elta Sarah Ochoa frá Venezuela sem var í forustusætinu í 115kg, Sarah lyfti fyrst og náði ekki að lyfta þyngdinni. Bergrós fékk því loka lyftuna til að vinna gullið, hún náði að standa upp með þyngdina, og lyfta henni upp fyrir haus í lás en missti aðeins jafnvægið þegar hún var í loka hluta lyftunnar og missti þyngdina aftur fyrir sig. Sjón er sögu ríkari og mælum við með því að skoða upptökuna af mótinu hér að ofan.
Innan við viku fyrir mótið keppti Bergrós í Crossfit í Frakklandi (undankeppni Evrópu í fullorðinsflokki) þar sem hún snéri sig á ökla í einni af síðustu greinum og mætti til Perú á hækjum sem vakti athygli og alþjóðalyftingasambandið gerði góð skil á heimasíðu sinni í umfjöllun um mótið.
Fyrir utan silfurverðlaun í samanlögðum árangri og bronsverðlaun í jafnhendingu þá bætti Bergrós árangur sinn um 17kg og öll íslandsmet í aldursflokknum sem áður voru í eigu Úlfhildar Örnu Unarsdóttur (sem vann silfurverðlaun á EM U17 árið 2022).
Bergrós Björnsdóttir keppir 25.Maí í Perú á HM 17 ára og yngri
Bergrós Björnsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur keppir á Heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum 17 ára og yngri sem hefst á morgun í Lima, Perú. Bergrós keppir í A-hóp í -71kg flokki kvenna 25.Maí klukkan 13:00 að staðartíma (18:00 að íslenskum). Þrír keppendur eru með sama entry total og hún (200kg), einn keppandi frá Uzbekistan og Einn frá Venezuela. Entry Total þýðir að keppandi þarf að byrja jafnhendinguna ekki lægra en 20kg frá entry total, ef Bergrós snarar best 80kg þá mun hún þurfa að byrja jafnhendinguna á 100kg. Þetta er gert til þess að raða keppendum eftir getu í A og B grúppur og þegar þarf C og D.

Einnig eru 10 keppendur í B-hóp

Það er stutt á milli keppna hjá Bergrósu en hún lauk um helgina undankeppni fyrir crossfit leikana í opnum flokki en þurfti því miður að draga sig úr keppni þegar tvær greinar voru eftir, eftir að hún snéri sig á ökla. Meiðslin eru hinsvegar tilin minniháttar (umfjöllun visir.is hér). Hún hefur þegar tryggt sér inn á ungmenna leikana í Crossfit sem haldnir verða seinna á árinu og hún varð þriðja á síðasta ári.

Bergrós á best 181kg í samanlögðum árangri á móti í ólympískum lyftingum en því lyfti hún í Mexíkó 2022 á heimsmeistaramóti 17 ára og yngri, 81kg í snörun og 100kg í jafnhendingu sem dugði henni í 8.sæti á mótinu. Hún hefur aðeins keppt á einu móti í ólympískum lyftingum síðan þá en það var á Jólamótinu 2023 þar sem hún lyfti 180kg (80/100) í samanlögðum árangri og átti góða tilraun við 105kg. Í Crossfit hefur hún samt eitthvað þyngra og verður mjög spennandi að sjá hvernig henni gengur á keppnispallinum í Perú.

Íslandsmetin í flokknum eru í eigu Úlfhildar Örnu Unnarsdóttir 87kg í snörun og 106kg í jafnhendingu og samanlagða metið er 190kg.
Norðurlandametin eru í eigu Janette Ylisoini 102kg í snörun og 120kg í jafnhendingu, 220kg í samanlögðu.
Heimsmetin eru 103kg í snörun (Zarina Gusalova frá Rússlandi) og 130kg í jafnhendingu, 230kg í samanlögðu í eigu hinnar Nígerísku Joy Ogbonne Eze.
Bæði Janette Ylisoini og Joy Eze hafa háð mikla baráttu um ólympíusæti við Eygló Fanndal Sturludóttir (12.sæti OQR). Joy Eze er nú í 9.sæti á OQR og Janette í 20.sæti.
Streymt er frá mótinu á Youtube rás IWF
Og hópur Bergrósar hefst kl. 18:00 á Íslenskum tíma þann 25. maí
Live scoreboard – konur
Úrslit frá Íslandsmeistaramótinu komin!
Íslandsmeistaramótið í Ólympískum Lyftingum fór fram hjá nýstofnaðari Lyftingadeild ÍA í dag og fær mótshaldari hrós skilið.
Nálgast má heildar úrslit í gagnagrunni sambandsins hér: https://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-2024

Brynjar Logi Halldórsson (LFR) varð stigahæstur karla þegar hann snaraði 132kg og jafnhenti 154kg í -81kg flokki, hann keppti síðast í þeim flokki 2021. Snörun, Jafnhending og samanlagður árangur voru allt ný Íslandsmet.
Eygló Fanndal Sturludóttir (LFR) var meðal keppenda og hún varð stigahæsti kvenn keppandinn og íslandsmeistari í -71kg flokki þegar hún snaraði 98kg og jafnhenti 120kg, samanlagt 2018kg.
Guðný Björk Stefánsdóttir (LFK) bætti sinn besta árangur um 3kg þegar hún snaraði 96kg og jafnhenti 112kg í nokkuð dramatískri jafnhendingu en þyngdinni lyfti hún í þriðju tilraun eftir að hafa klikkað á opnunarþyngdinni 108kg og tilraun við 112kg. Með 208kg þá náði hún Elite Pin standard Lyftingasambands Norðurlandanna (NWF) sem er 205kg í -71kg flokk og er hún því fjórða íslenska konan til að hljóta þann heiður. Áður hafa Eygló Fanndal Sturludóttir, Katla Ketilsdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir unnið sér inn Elite Pin.
Amalía Ósk Sigurðardóttir (LFM) sigraði -64kg flokkinn með 5kg bætingu á samanlögðum árangri 188kg og varð þriðja stigahæst á Sinclair á eftir Eygló og Guðný.
Erla Ágústdóttir (LFK) bætti sinn besta árangur um 1kg og lyfti 101kg í snörun og 115kg í jafnhendingu. Hún átti tvær góðar tilraunir við 120kg í jafnhendingu en missti þyngdina aðeins fram á við í jarkinu. Snörunin og samanlagður árangur 216kg voru bætingar á hennar eigin Íslandsmetum.
Þórbergur Ernir Hlynsson (LFR) sigraði -96kg flokk karla og setti fjögur unglingamet (20 ára og yngri) þegar hann snaraði 125kg og jafnhenti 153kg, einnig setti hann tvisvar sinnum met í samanlögðum árangri 273kg og 278kg. Hann bætti sinn besta árangur um 10kg á mótinu og varð næst stigahæstur á Sinclair á eftir Brynjari.
Spjótkastarinn og þrefaldi ólympíufarinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud (Ármann) keppti á sínu fyrsta móti í ólympískum lyftingum og snaraði 74kg og jafnhenti 98kg í -81kg flokk. Hún sigraði flokkinn og setti einnig Masters/öðlinga met í flokki 35-39ára í snörun, jafnhendingu og samanlögðu.
Hrund Scheving (LFK) sigraði í -76kg flokki kvenna og hún setti einnig met í masters flokki 45-49 ára þegar hún snaraði 71kg og jafnhenti 86kg og bætti met Ingunnar Lúðvíksdóttur um 1kg í hvorri grein.
Ingvar Svavarsson (ÍA) keppti á sínu fyrsta móti og setti ný Íslandsmet í -96kg masters flokki 40-44 ára með 90kg í snörun og 120kg í jafnhendingu.
Ingólfur Pétursson (ÍA) setti einig masters met í jafnhendingu og samanlögðum árangri í -102kg flokki 35-39 ára með 115kg í jafnhendingu og 201kg í samanlögðu.
Allir íslandsmeistarar voru eftirfarandi:
Karlar
-81kg Brynjar Logi Halldórsson (LFR) – 286kg
-89kg Tómas Titelmann (LFR) – 220kg
-96kg Þórbergur Ernir Hlynsson (LFR) – 278kg
-102kg Viktor Ýmir Elíasson (ÍA) – 237kg
Konur
-55kg Birna Ólafsdóttir (LFK) – 106kg
-59kg Snædís Líf Pálmarsdóttir (LFR) – 154kg
-64kg Amaíla Ósk Sigurðardóttir (LFM) – 188kg
-71kg Eygló Fanndal Sturludóttir (LFR) – 218kg
-76kg Hrund Scheving (LFK) – 157kg
-81kg Ásdís Hjálmsdóttir Annerud Ármann – 172kg
+87kg Erla Ágústdóttir (LFK) – 216kg
Tveir nýjir dómarar bættust í dómarhóp LSÍ í dag eftir að hafa staðist dómarapróf með sóma.
Þau Sólveig Ásta Gautadóttir og Ástþór Helgi Hjálmarsson frá ÍA.
Guðmundur Helgi Helgason (f.1961-d.2024) – In Memoriam
Fyrrum lyftingamaðurinn Guðmundur Helgi Helgason varð bráðkvaddur í lok Apríl, hann er einn af bestu lyftingamönnum sem Ísland hefur alið af sér og því við hæfi að minnast afreka hans á pallinum.
Útför hans fer fram kl:13:00 í Laugarneskirkju þann 14.Maí.
Sá sem ritar þessa grein kynntist honum nokkuð vel á árunum 2004-2009 þegar Guðmundur lyfti oft í kaplakrika en á þeim árum voru ekki margir staðir sem hægt var að stunda ólympískar lyftingar, það var góðum 10 árum eftir að ferli hans lauk sem lyftingamanns en hann bjó ennþá yfir ágætis afli. Þetta yfirlit er skrifað út frá þeim heimildum sem liggja fyrir og ef einhver lumar á frekari gögnum má sá hinn sami endilega senda þau á asgeir@lsi.is t.d. árangra frá mótum sem ekki eru í gagnagrunni sambandsins eða myndum af Guðmundi.
Guðmundur byrjaði ungur að lyfta og er fyrsta mótið í gagnagrunni sambandsins frá 1976, hann kemur upp með ákveðinni gullaldar kynslóð sem varð til í kjölfar upphafsmannana Guðmundar Sigurðssonar (f.1946), Óskar Sigurpálssonar (f.1945) og Gústaf Agnarssonar (f.1952). En menn sem eru sömu kynnslóðar eru m.a. Birgir Borgþórsson (f.1958), Ágúst Kárason (f.1960), Jón Páll Sigmarsson (f.1960), Halldór Jónhildarson (f.1961), Þorsteinn Leifsson (f.1961), Haraldur Ólafsson (f.1962), Ingvar Jóel Ingvarsson (f.1963), Baldur Borgþórsson (f.1963), Garðar Gíslason (f.1963), Gylfi Gíslason (f.1963) og mögulega fleiri sem hægt er að nefna. Einnig áttum við frábæra kastara úr sömu árgöngum líkt og Véstein Hafsteinsson (f.1960), Eggert Bogason (f.1960) og Einar Vilhjálmsson (f.1960) og Sigurð Einarsson (f.1962).

Guðmundur fékk tækifæri til að fara á Ólympíuleikana í Moskvu 1980 ásamt þeim Þorsteini Leifssyni og Birgi Borgþórssyni sem einnig var fánaberi Íslands á leikunum. Þar lyfti hann 135kg í snörun og 160kg í jafnhendingu í -90kg flokki og endaði í 13.sæti. Aðeins Guðmundur Sigurðsson og Óskar Sigurpálsson hafa farið á ólympíuleika í lyftingum auk þessara þriggja, Óskar 1968 og 1972 og Guðmundur S. 1972 og 1976.
Guðmundur fer út til náms til Bandaríkjana í kringum 1983 en hann hélt áfram að lyfta þar og keppti á nokkrum mótum, hinsvegar hafa skráningar frá þeim mótum ekki ennþá ratað í gagnagrunn sambandsins fyrir utan eitt mót frá 1987 þar sem Guðmundur keppir í -100kg flokk, snarar 145kg og jafnhendir 190kg. Á þessu ári 1987 má þó segja að bestu ár Guðmundar hefjist. Á Reykjavíkurmótinu 1987 lyftir hann 155kg í snörun og 195kg í jafnhendingu. Einnig lyfti hann 200.5kg í jafnhendingu í aukatilraun sem þá var leyfilegt en fékkst ekki gilt sem íslandsmet í samanlagðri þyngd. Þessi þyngd 350kg í samanlögðu ef hann hefði verið slétt 100kg í vigtun gæfi honum yfir 400 Sinclair stig samkvæmt þeim útreikningum sem eru notaðir í dag, mögulega hafa aðeins Guðmundur Sigurðsson og Gústaf Agnarsson náð því en oft vantar nákvæma líkamsþyngd á eldri árangra.

Árið eftir keppir Guðmundur á EM í Wales ásamt Haraldi Ólafssyni og endar í 12.sæti þar sem hann lyfti 145kg í snörun og 180kg í jafnhendingu í raun eina stórmótið sem Guðmundur keppti á fyrir utan Ólympíuleikana 1980.
Árið 1989 lyfti hann aftur 200,5kg en nú löglega og bætti íslandsmetið í samanlögðum árangri þegar hann snaraði 152.5kg. Hann reyndi einnig við norðurlandamet í jafnehendingu 208kg og náði að standa upp með þá þyngd.

Á Norðurlandamótinu 1989 sem haldið var á Akureyri varð hann annar. Þar lyfti hann 145kg í snörun og 187.5kg í jafnhendingu. Eftirfarandi mynd af honum er til með „sigurþyngdina“ á lofti en hún var því miður ekki gild. Daninn Frank Strömbo vann það mót í -100kg flokk með 152.5kg í snörun og 187.5kg í jafnhendingu.

Guðmundur hafði nokkra yfirburði á þessum árum líkt og getið var í grein um Íslandsmótið 1990, þar er talað um að bestur árangur hans er 355kg það er 2.5kg hærra en metið sem hann setti 1989 en til miður er þessi árangur ekki í gagnagrunni sambandsins.


Hann keppti einnig ásamt fríðu föruneyti á smáþjóðmótinu í ólympískum lyftingum 1990 á Möltu þar sem hann lyfti 145kg í snörun og 190kg í jafnhendingu.
1991 er til fréttir af því að Guðmundur hafi slegið met Gústaf Agnarssonar í snörun þegar hann lyfti 160,5kg á Páskamóti KR. Þennan árangur vantar einnig inn í gagnagrunn sambandsins og óljóst er í hvaða þyngdarflokk þó líklegast sé það í -100kg flokk enda met Gústafs í -110kg flokk 170kg.
Síðasta mótið hans í skráningu er Íslandsmeistaramótið 1993 en þá lyfti hann 150kg í snörun og 180kg í jafnhendingu í -108kg flokk eftir að alþjóðalyftingasambandið þurrkaði út öll eldri met og útbjó nýja þyngdarflokka.
Árið 2010 fór Guðmundur út sem farastjóri á Smáþjóðamótið í lyftingum, hann var einnig liðlegur í að starfa á mótum við endurreisn lyftingasambandsins á árunum 2010-2017 og starfaði á fjölmörgum mótum á þeim tíma. Hann hlaut silfurmerki ÍSÍ 2015 fyrir starf í þágu lyftinganna.


Árið 2023 var hann gerður að heiðursfélaga LSÍ á 50 ára afmælisþingi Lyftingasambands Íslands.
Keppendalisti og mótadagskrá Íslandsmeistaramót Senior 2024
Vigtunar staðsetningar
Akranes – Ægir Gym
Reykjavík – Crossfit Reykjavík

KVK C – 55A 59B 64B +87B – 10:00
| Nafn | Félag | Þyngdar- flokkur | Entry total |
| Birna Ólafsfóttir | LFK | 55 | 95 |
| Thelma Rún Guðjónsdóttir | LFR | 55 | 143 |
| Elísa Magnúsdóttir Dison | Ármann | 59 | 90 |
| Helga Hlín Hákonardóttir | Stjarnan | 59 | 127 |
| Eva María Elíasdóttir | ÍA | 64 | 65 |
| Emilía Nótt Davíðsdóttir | LFK | 64 | 120 |
| Valdís María Sigurðardóttir | LFR | 64 | 130 |
| Olga Ýr Georgsdottir | Massi | 64 | 145 |
| Erna Freydís Traustadóttir | Massi | 64 | 145 |
| Máney Dögg Björgvinsdóttir | Massi | +87 | 95 |
KK B – 73A 81B 89A 96B 102B 109A – 11:45
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur | Entry total |
| Stígur Bergmann Þórðarson | ÍA | 73 | 110 |
| Guðjón Gauti Vignisson | ÍA | 81 | 120 |
| Konráð Krummi Sigurðsson | LFK | 89 | 200 |
| Tómas Stitelmann | LFR | 89 | 200 |
| Jóel Jens Guðbjartsson | LFK | 96 | 175 |
| Ingvar Svavarsson | ÍA | 96 | 195 |
| Hafliði Jökull Jóhannesson | Massi | 96 | 205 |
| Ingólfur Pétursson | ÍA | 102 | 195 |
KVK B – 59A 71B 76B 87A – 14:00
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur | Entry total |
| Snædís Líf P. Dison | LFR | 59 | 155 |
| Thelma Mist Oddsdóttir | LFK | 59 | 165 |
| Steindís Elín Magnúsdóttir | LFR | 71 | 120 |
| Sólveig Þórðardóttir | LFR | 76 | 130 |
| Melkorka Mist Gunnarsdóttir | LFK | 76 | 120 |
| Hólmfríður K Kjartansdóttir | LFK | 76 | 140 |
| Hrund Scheving | LFK | 76 | 164 |
| Ásta Sachi Jónasdóttir | LFR | 87 | 150 |
KK A – 81A 96A 102A – 16:00
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur | Entry total |
| Viktor Jónsson | LFR | 81 | 215 |
| Bjarki Breiðfjörð Björnsson | LFR | 81 | 261 |
| Brynjar Logi Halldórsson | LFR | 81 | 300 |
| Suthaphat Saengchueapho | LFK | 96 | 230 |
| Daníel Róbertsson | LFR | 89 | 260 |
| Þórbergur Ernir Hlynsson | LFR | 96 | 270 |
| Sigurkarl Róbert Jóhannesson | Massi | 102 | 215 |
| Viktor Ýmir Elíasson | ÍA | 102 | 220 |
KVK A – 64A 71A 76A 81A +87A – 18:00
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur | Entry total |
| Amalía Ósk Sigurðardóttir | KFM | 64 | 180 |
| Guðný Björk stefánsdóttir | LFK | 71 | 205 |
| Eygló Fanndal Sturludóttir | LFR | 71 | 220 |
| Aldís Huld Höskuldsdóttir | Vestri | 71 | 160 |
| Ásdís Hjálmsdóttir Annerud | Ármann | 81 | 160 |
| Indíana Lind Gylfadóttir | LFK | 81 | 165 |
| Unnur Sjöfn Jónasdóttir | Stjarnan | +87 | 148 |
| Erla Ágústsdóttir | LFK | +87 | 215 |
Ný landsliðs viðmið/lágmörk komin á netið
Stjórn LSÍ hefur samþykkt ný landsliðs viðmið/lágmörk fyrir árið 2024, engar stórar stefnu breytingar hafa verið frá fyrri lágmörkum en við hvetjum íþróttamenn að lesa viðmiðin vel þá sérstaklega hluta varðandi norðurlandamót en þar hefur þyngdarflokkum verið fækkað.
Árangur íþróttamanna 18 mánuðum fyrir mót gildir til keppnisrétts.
Íþróttamenn sem stefna á þátttöku í mótum skulu endilega hafa samband við lsi@lsi.is og láta vita, það auðveldar framkvæmdastjóra að fylgjast með tilteknum íþróttamanni og aðstoða hann við skráningu í ADAMS en nauðsynlegt er að allir keppendur séu skráðir þar með minnst þriggja mánaða fyrirvara. Þetta á sérstaklega við um mót haldin af evrópska lyftingasambandinu (EWF) og alþjóðalyftingasambandinu (IWF).
Dómaranámskeið

Námsefni er eftirfarandi
Vinsamlegast verið búin að lesa yfir allt námsefnið áður en þið komið á námskeiðið
IWF TECHNICAL AND COMPETITION RULES & REGULATIONS
Prófið og svör á prófi er að finna á netinu og það er mín ráðlegging til ykkar að þið lesið bókina, gerið prófið og flettið svo upp því sem þið eruð óviss á.
Prófið:
https://iwf.sport/wp-content/uploads/downloads/2019/10/IWF-TO-Exam-2019-Questions.pdf
Svör:
https://iwf.sport/wp-content/uploads/downloads/2019/10/IWF-TO-Exam-2019-Answers.pdf
Gæti kannski hljómað eins og svind, en staðreyndin er að ef þið kunnið prófið og það sem á því er þá eruð þið komin með þekkingu á því sem skiptir máli.
Svo til að rifja upp er til útdráttur á íslensku, en það efni er sérstaklega um það sem snýr að keppendum og var hugsað til þess að fræða þá, en er líka gagnlegt fyrir ykkur.
https://lyftingar.wordpress.com/urdrattur-ur-keppnisreglum/
Og svo nokkrir punktar sem er gott að hafa í vasanum á keppnisdag til að rifja upp, best að gera það fyrir hvert mót.
https://docs.google.com/document/d/1Qwz2MeSONIXzCZ3vElVRuVY2HHHDdgp2-2-cB6tOGCQ/edit?usp=sharing
Þið megið endilega biðja um aðgang að þessari síðu og nota hana til að spyrja spurninga ef einhverjar eru.
Ef þið viljið virkilega hella ykkur í þetta þá eru til video á youtube sem hægt er að horfa á:
https://youtu.be/G0JlXGan1cs?list=PLDb25g2HgvQKrtNS73tF65Lp_JAx3_Me3
Gangi ykkur sem allra best og verið ófeimin að spyrja ef það er eitthvað óljóst.
Kveðja,
Erna Héðinsdóttir – Cat 1 ITO
erna@lsi.is
Íslandsmeistaramót Senior 2024
Eygló í 11.sæti í Tælandi
Eygló Fanndal Sturludóttir hélt áfram að skrifa lyftingasögu Íslands í dag þegar hún lauk keppni á IWF World Cup í Tælandi. Hægt er að sjá heildarúrslit í þyngdarflokknum hennar -71kg HÉR.
Eygló endaði keppnina í 11.sæti á mótinu eftir spennuþrungna keppni en alls voru 41 keppandi sem vigtaðist inn í flokkinn. Nauðsynlegt er fyrir alla sem vilja keppa í París að taka þátt í þessu móti. Eygló keppti í B-hóp en gríðar hörð keppni var bæði í A og B hópnum. Áður en Eygló hóf keppni hafði C-hópur lokið keppni, þar var hin Nígeríska Joy Ogbonne Eze og hún lyfti 239kg í samanlögðum árangri og lyfti sér upp í 11.sætið á ólympíu úrtökulistanum, það var því nauðsynlegt að þeir sem fylgdu á eftir þyrftu að lyfta í það minnsta 240kg til að fara uppfyrir hana og tryggja sig inn á leikana en 10 efstu keppendur fá sjálfkrafa keppnisrétt. Franskur keppandi var/er í 10.sæti og því er 11.sætið nánast öruggt.

Eygló opnaði í snörun á 103kg sem flugu upp og fór því næst í 106kg sem er 1kg bæting á norðurlanda og íslandsmetinu hennar sem hún setti 12.Febrúar síðastliðinn á Evrópumeistaramótinu. Hún reyndi að lokum við 108kg en missti þá lyftu aftur fyrir sig. Í jafnhendingunni opnaði hún á 130kg, það er 5kg meira en hún lyfti í Búlgaríu á EM og 3kg meira en hún lyfti í Katar í Desember sem er jafnframt hennar besti árangur í jafnhendingu. Sú lyfta fór örugglega upp og samanlagður árangur upp á 236kg. Það er fimm kílóum meira en Eygló hefur lyft og það er einnig nýtt norðurlandamet í samanlögðum árangri í -71kg flokk. Bæting um 5kg en fyrra metið átti fyrrum evrópumeistarinn Patricia Strenius frá Svíþjóð.
Í annari tilraun fór Eygló því næst í 134kg til að komast upp fyrir hina áður nefndu Nígerísku Joy Eze. Hún var mjög nálægt því að standa upp með þá þyngd en þurfti að sleppa henni, þriðja tilraun fór heldur ekki upp og þar við stóð. Eygló endaði önnur evrópubúa í dag og vann meðal annars nýbakaðan evrópumeistara hina Rúmönsku Loredana Elenu Toma.

Eftir að A-hópurinn lauk keppni er niðurstaðan sú að Eygló endar í 14.sæti á úrtökulistanum fyrir ólympíuleikana (OQR) með 236kg. Nokkrar sviptingar urðu í sætunum í kringum Eygló en hástökkvari dagsins var hin Kúbverska Yeniuska Mirabal Feria sem fór upp um 7 sæti með 9kg bætingu á samanlögðum árangri. Eygló fór hinsvegar upp fyrir bæði hina ítölsku Giulia Miserendino og hina víetnömsku Thi Hong Thanh Pham.
Ekki er öll von enn úti fyrir Eygló en sótt hefur verið um úthlutunarsæti (universality oft nefnt wildcard fyrir hana). Til þess að hún geti nýtt það þarf Frakkland að ákveða að senda ekki keppanda í -71kg flokkinn. En aðeins úthlutunarsæti eða „host nation“ fær sæti í flokknum.
Einnig eru aðrar sviðsmyndir uppi svo að keppendur sem eru neðar á listanum en 11.sæti fá keppnisrétt ef einhverjir af efri keppendunum geta ekki keppt t.d. vegna alvarlegra meiðsla eða þjóð þeirra ákveður að senda þá ekki. Næstu mánuðir munu leiða það í ljós en Eygló hefur í það minnsta gert sitt allra besta til að vera fulltrúi Íslands í París. Eygló keppti á öllum 7 úrtökumótunum fyrir París og byrjaði fyrsta mótið HM 2022 á því að lyfta 213kg og lyfti í dag 236kg svo mikið vatn hefur runnið til sjávar.









