Keppendalisti* haustsmóts LSÍ 2025, haldið í húsakynnum WorldFit á Tjarnarvöllum, sunnudaginn 21. september hefur verið birtur með fyrirvara um breytingar.
Lilja Lind Helgadóttir (LFG) (f.1996) mun keppa á HM unglinga,föstudaginn 12.Júní í Wraclow í Póllandi. Mótið er firnasterkt enda eitt af heimslistamótum fyrir Ólympíuleikana í Ríó 2016.
Lilja Lind eina konan af norðurlöndunum sem mætir til leiks en Finnar senda þrjá karla til keppni.
Lilja Lind Helgadóttir og þjálfari hennar Árni Björn Kristjánsson eftir að hafa sett Norðurlandamet unglinga í Svíþjóð 2014
Hér má sjá keppendalistann fyrir -75kg flokk kvenna, síðasta talan er árangur inn í mótið og er hann notaður til þess að raða í A og B grúppu. Lilja á best 183kg í samanlögðum árangri sem hún náði á Norðurlandamóti unglinga í fyrra þar sem hún setti frábært norðurlandamet í jafnhendingu 103kg í +75kg flokki kvenna. Hún hefur keppt í -75kg flokki það sem af er árinu og lyft mest 177kg samanlagt en það gerði hún á Copenhagen Weightlifting Cup í Janúar. Hún er búinn að vera í mikilli uppbyggingu fyrir heimsmeistaramótið og verður spennandi að fylgjast með henni.
Hún er fyrsta íslenska konan sem keppir á heimsmeistaramóti unglinga.
Fyrir þá sem hafa áhuga á sögu lyftinga á Íslandi þá hefur Ísland tvisvar sinnum sent keppendur á HM unglinga, árið 1982 fór Haraldur Ólafsson til Sao Paulo í Brasilíu en datt úr leik í snörun eftir brösulegan undirbúning hjá mótshöldurum.
Árið eftir (1983) í Kaíró í Egyptalandi náði Ingvar Jóel Ingvarsson hinsvegar frábærum árangri þegar hann var í 6.sæti í -100kg flokki með 130kg í snörun og 177,5kg í jafnhendingu. Baldur Borgþórssonféll þar úr leik í jafnhendingu eftir að hafa snarað 140kg í -90kg flokki karla.
Norðurlandamót unglinga fer fram í Landskrona í Svíþjóð helgina 25.-26. október. Ísland sendir níu keppendur til leiks en ákvörðunin byggðist á árangri iðkennda síðustu tveggja ára þar sem Íslandsmeistaramót unglinga var loka mót til að tryggja sér þátttökurétt.
Þann 4.Október fór fram Haustmót LSÍ í húsakynnum Sporthússins í Kópavogi. 18 keppendur mættu til leiks og voru sett 10 íslandsmet og 21 unglingamet.
Hópurinn eftir mótið
Í -53kg flokki kvenna skiptust þær Birna Dís Ólafsdóttir (LFG) og Hrefna H. Guðlaugardóttir (LFR) um að setja met í fullorðinsflokki. Birna Dís tvíbætti metið í snörun með því að lyfta 47kg og 51kg en Hrefna bætti þau jafnóðum með 48kg og 52kg sem metið sat í.
Í jafnhendingunni skildi á milli en þar hóf Hrefna leikinn á 58kg og setti þar með met í samanlögðum árangri, en Birna Dís svaraði því með því að opna á 64kg og lyfti síðan 67kg í jafnhendingu og allt voru þetta met sem og met í samanlögðum árangri.
Tinna Rós Óskarsdóttir (ÁRM) keppti á sínu fyrsta lyftingamóti og snaraði 50kg í -63kg flokki kvenna hún fór síðan með allar jafnhendingarnar sínar í gegn og endaði á að lyfta 80kg.
Hjördís Ósk Óskarsdóttir (ÁRM) sem á best 67kg í snörun og 91kg í jafnhendingu síðan á jólamótinu 2013 klikkaði á opnunarþyngdinni sinni 65kg í snörun og lét hækka í 67kg í 2. og 3. tilraun sem fóru ekki upp, vonandi kemur hún sterk til baka á næsta mót en hún á með betri æfingatölum kvenna á Íslandi.
Lilja Lind Helgadóttir keppti að þessu sinni í +75kg flokki, hún lyfti 80kg í snörun og reyndi við nýtt Norðurlandamet unglinga 85kg. Í jafnhendingunni lyfti hún 96kg en fékk 100kg dæmd ógild og reyndi í 3. og síðustu tilraun við nýtt Norðurlandamet í jafnhendingu 104kg sem hún stóð upp með.
Þrjár stigahæstu konurnar: Tinna Ósk, Lilja Lind og Birna Dís
Í karlaflokki voru 13 karlar mættir til leiks og þar af 9 sem keppa í unglingaflokki.
Í -69kg flokki var skemmtileg keppni á milli Einar Inga Jónssonar (LFR) og Guðmundar Steins Gíslasonar Kjeld (LFR) en Guðmundur tvíbætti unglingametið í snörun með því að lyfta 81kg og 86kg.
Í jafnhendingunni var Einar Ingi með yfirhöndina en hann þríbætti íslandsmetið í jafnhendingu og tvíbætti það í samanlögðum árangri með því að lyfta 101, 106 og 111kg.
Í -77kg flokki mætti Sindri Pétur Ingimundarson (LFR) aftur til leiks eftir um tveggja ára fjarveru en hann hefur glímt við meiðsli á úlnlið. Það er skemmst frá því að segja að Sindri raðaði inn unglinga metum, hann opnaði á nýju meti og persónulegri bætingu 100kg í snörun.
Í jafnhendingunni fór hann síðan með seríuna 125-133-137 í gegn þar sem að loka lyftan var dæmd ógild af dómurum en kviðdómur snéri þeirri ákvörðun við og endaði Sindri með 237kg og 306,2 Sinclair stig. Hægt er að sjá lyfturnar hans Sindra hér að neðan:
Davíð Björnsson (ÁRM) sótti góða bætingu í jafnhendingu þegar hann lyfti 120kg og í heildina 210kg. Sindri Snær Freysson (LFG) keppti á sínu fyrsta móti og féll úr keppni í snörun eftir að hafa bætt unglingamet Sindra í snörun um 1kg eða 101kg.
Í -85kg flokki var það Guðmundur Högni Hilmarsson sem sigraði en hann var einnig stigahæsti keppandi mótsins í karlaflokki með magnaðri loka lyftu í jafnhendingu sem var einnig bæting um 2kg á Íslandsmetinu í fullorðinsflokki sem var í eigu Björgvins Karls Guðmundssonar.
Guðmundur bætti einnig íslandsmet unglinga í snörun þegar hann lyfti 110kg og serían 130-137-147 voru öll ný unglingamet. Hann lyfti samtals 257kg og gaf það 308,6 Sinclair stig sem gaf honum stigabikarinn í mótinu.
Þrír stigahæstu karlarnir: Daníal (t.v.) Guðmundur og Sindri (t.h.)
Stefán Ernir Rossen (KFA) keppti einnig í -85kg flokki og lyfti 90kg í snörun eftir að hafa klikkað tvisvar á þeirri þyngd, hann fór síðan upp með 117kg í jafnhendingu. Snorri Björnsson (LFR) var þriðji og lyfti hann 89kg í snörun og 105kg í jafnhendingu.
Í -94kg flokki sigraði Daníel Róbertsson (ÁRM) með 110kg í snörun og 130kg í jafnhendingu en Daníel vigtaðist 85,15kg inn í mótið. Bjarmi Hreinsson (LFR) var annar með 105kg í snörun og 135kg í jafnhendingu, og Daði Jónsson (LFR) þriðji með 77kg í snörun og 90kg í jafnhendingu.
Einn keppandi mætti til leiks í -105kg flokki en það var suðurnesjamaðurinn Ingólfur Þór Ævarsson (UMFN), hann lyfti 107kg í snörun og 135kg í jafnhendingu sem voru bæði bætingar.
Haustmót LSÍ fer fram í Sporthúsinu á morgunn 4.Október, 18 keppendur eru skráðir til leiks. Eftirfarandi er skráningarlistinn sem einnig má finna í afrekaskrá LSÍ http://results.lsi.is/meet/haustmot-lsi-2014:
Í karlaflokki keppir Björgvin Karl Guðmundsson í fjölmennum 85kg flokki þar sem m.a. einn besti lyftingamaður norðurlandanna finninn Milko Tokola er mættur til leiks. Björgvin Karl náði líkt og Björk að tryggja sér þáttökurétt á heimsleikunum í Crossfit þegar hann varð þriðji á Evrópumeistaramótinu. Loks mun Gísli Kristjánsson keppa í +105kg flokki.
Landsliðsþjálfarinn Árni Björn Kristjánsson fylgir liðinu og honum til aðstoðar er Elísabet Sóley Stefánsdóttir gjaldkeri sambandsins. Lárus Páll Pálsson formaður LSÍ og alþjóðadómari mun svo dæma á mótinu fyrir Íslands hönd og sitja þing norðurlandasambandsins.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
8:00-9:00 Vigtun
10:00-18:00 Keppni, keppt er í 5 hópum
Hópur 1 KVK 53kg, 58kg og 63kg
Hópur 2 KK 69kg og 77kg
Hópur 3 KK 85kg
Hópur 4 KVK 69kg, 75kg og +75kg
Hópur 5 KK 94kg, 105kg og +105kg
Merki Norðurlandasambandsins í lyftingum
Hópur 1
53 SW 04.11.78 1 Berntsson Lena SWE
53 JW 20.03.94 2 Øvsthus Sarah Hovden NOR
53 SW 28.04.85 3 Ejstrup Christina Trier DEN
58 SW 17.12.92 4 Trædal Sandra NOR
58 SW 11.08.89 5 Utoslahti Pauliina FIN
58 SW 18.07.88 6 Carlsen Camilla NOR 58 SW 16.01.85 7 Ólafsdóttir Anna Hulda ISL
63 SW 11.05.92 8 Årdalsbakke Marit NOR 63 SW 30.07.91 9 Helgadóttir Þuríður Erla ISL 63 SW 08.03.88 10 Óðinsdóttir Björk ISL
63 SW 15.04.89 11 Roos Angelica SWE
63 SW 28.04.87 12 Everi Anna FIN
63 W1 06.03.79 13 Krarup Sarah Troelsen DEN
63 SW 14.11.85 14 Hasfjord Marianne NOR
Hópur 2
69 JM 02.09.94 21 Øverås Jantsen NOR
69 SM 07.11.92 22 Mukkala Matias FIN
69 SM 29.04.92 23 Hilmersson Anton SWE
77 SM 11.02.91 24 Johnsson Erik SWE
77 SM 03.08.91 25 Seipãjãrvi Juho FIN
77 SM 16.09.90 26 Kring Tim DEN
77 M1 15.06.78 27 Matnisdal Ronny NOR
77 SM 01.07.90 28 Tokola Miika FIN
Hópur 3
85 SM 22.05.88 31 Amdal Jarleif NOR
85 JM 16.03.95 32 Gjøringbø Tore NOR
85 SM 10.10.92 33 Tokola Milko FIN 85 SM 24.09.92 34 Guðmundsson Björgvin Karl ISL
85 SM 10.11.81 35 Rothwall Martin SWE
85 SM 24.02.91 36 Gregersen Chris Geji DEN
85 SM 26.06.93 37 Darville Simon DEN
Hópur 5
94 SM 16.10.88 51 Hannesbo Morten DEN
94 SM 09.05.92 52 Farmen Sebastian NOR
94 SM 21.11.92 53 Rørstadbotnen Sindre NOR
94 SM 18.07.89 54 Hildebrandt Max DEN
105 SM 07.09.88 55 Grostad Håvard NOR
105 SM 15.09.88 56 Ågren Stefan SWE
105 SM 27.04.93 57 Helleren Kristian NOR
105 SM 28.11.88 58 Andersen Mikkel DEN
105 SM 24.04.88 59 Nørgaard Jeppe DEN
+105 SM 24.12.89 60 Tollefsen Kim Eirik NOR +105 M4 28.08.64 61 Kristjánsson Gísli ISL
+105 SM 08.07.90 62 Varlid Vebjørn NOR
Í lok vetrar gekk lyftingasambandið til samninga við Klaus Jensen um þróun á afrekaskráningarkerfi. Síðstu mánuði hefur undirritaður sett inn yfir 4000 árangra allt frá árinu 1963 til dagsins í dag.
Misvel hefur verið staðið að skráningu árangra í gegnum tíðina en stuðst hefur verið við heimildir frá Ársskýrslum LSÍ sem og gömlum blaða/fréttatilkynningum. Allar ábendingar um mót sem vantar inn / rangar innfærslur / fæðingarár iðkennda osfr. skulu sendast á skraningar@lsi.is .
Í heildina hefur verið skráð 141 mót sem haldin hafa verið innanlands og 99 mót sem íslenskir keppendur hafa keppt á erlendis og sjá má skiptinguna á grafinu hér að neðan.
Mót í lyftingum í afreksgagnagrunni LSÍ 14.5.2014
Síðan er að mestu leiti á ensku en það ætti ekki að koma að sök, eftirfarandi valmyndir eru mögulegar:
Meets (þýð: Mót)
– Hér er hægt að velja þau mót þar sem árangur hefur verið skráður, við getum sett inn myndir frá fyrri mótum og má endilega senda þær á skraningar@lsi.is
Lifters (þýð: Lyftingamenn/konur)
– Hér er hægt að velja eftir stafrófsröð þá lyftingamenn og konur sem skráð eru í gagnagruninn, ef það vantar fæðingarár þá má endilega koma því til skila á skraningar@lsi.is. Hægt er að sjá öll mót sem viðkomandi keppandi hefur keppt á.
Clubs (þýð: Klúbbar/Félög)
– Listi yfir lyftingaklúbba/félög, þessi listi uppfærist sjálfvirkt frá árinu 2014. Ef þú vilt láta skrá þig í einhvern sérstakan klúbb eða þú vilt að klúbburinn þinn birtist þá sendir þú tölvupóst á skraningar@lsi.is
Rankings (þýð: Röðun)
– Hér er keppendum raðað upp samkvæmt sinclair tölu fyrir hvert ár. Þessi listi er m.a. hafður til hliðsjónar við val á lyftingamanni/konu ársins.
Records (þýð: Met)
– Hér er haldið utan um öll met sem skilgreind eru af IWF, þ.e. karla og kvenna (e. Senior), ungmenna (13-17 ára) og unglinga (15-20 ára). Einnig verður nú haldið yfir met í öllum öldungaflokkum karla og kvenna. Metin eru reiknuð sjálfkrafa frá þeim mótum sem eru í gagnagrunninum og því mikilvægt að öll mót séu skráð svo metin séu rétt.
Einnig er hægt að sjá met fyrir aldursbilið 1928-1972, 1972-1976 , 1977-1992, 1993-1997 og loks 1998-.
Að lokum vill Lyftingasambandið þakka þeim styrktaraðilum sem styrktu gerð síðunnar, ennþá er pláss fyrir einn aðila að auglýsa á síðunni.
Eins og við greindum frá í gær hér á síðu LSÍ, tók Ísland þátt í Smáþjóðaleikunum í San Marino í dag. Strákarnir stóðu sig vel og háðu mikla baráttu við Kýpur. Strákarnir enduðu í öðru sæti með 948,54 sinclair stig á eftir Kýpur sem voru með 989,37. Bronsið fékk svo Malta með 813,95 stig.
Andri kom sá og sigraði og bætti sitt persónulega met, auk þess að sigra gamla refinn okkar Gísla Kristjánsson. Andri tók 143kg í snörun og 170kg í jafnhendingu. Gísli átti ekki góðan dag, en hann tók 150/170 á Íslandsmeistaramótinu síðustu helgi og er líklegt að þreyta hafi haft þau áhrif að hann sýndi ekki sitt besta, en skilaði samt sínu, snaraði 140kg og tók 160kg í jafnhendingu.
Sigurður Bjarki setti Íslandsmet í sínum flokki í snörun þegar hann snaraði 120kg, hann tók svo 145kg í jafnhendingu sem var nýtt íslandsmet í samanlögðum árangri 265kg í 94kg flokki karla.
Árni átti gott mót og bætti sinn eigin árangur síðan á Íslandsmeistaramótinu síðustu helgi um 10 kg. Árni tók 116kg í snörun og 144kg í jafnhendingu.
Andri Gunnarsson náði þeim frábæra árangri að ná þriðja sætinu í heildarkeppninni og Gísli því fimmta.
Bikar Andra fyrir þriðja sætið
Lyftingasamband Íslands óskar strákunum til hamingju með góðan árangur, gullið verður bara tekið að ári 😉