Steindís Elín Magnúsdóttir keppti á sínu fyrsta Evrópumóti á þriðjudaginn sl. Hún opnaði með 63kg í snörun sem fór ekki upp. Í annarri lyftu tók hún aftur 63kg og negldi hana. Í þriðju tilraun reyndu hún við 67kg sem fóru ekki upp að þessu sinni.
Í clean & jerk tók Steindís seríuna 75-81-83kg. Hún endaði því með 146 í samanlögðu.
Steindís er aðeins 17 ára gömul svo það verður gaman að fylgjast með henni á pallinum í framtíðinni.
Á morgun, þann 29.júlí, keppir Steindís Elín Magnúsdóttir á Evrópumóti unglinga sem fram fer í Madrid á Spáni. Steindís keppir í -69kg flokki 17 ára og yngri.
Sumarmót LSÍ verður haldið í KA hemilinu Akureyri laugardaginn 21.júní nk. Skráning er hafin á mótið og lýkur 7.júní nk. kl 23:59
Með fyrirvara um fjölda keppenda þá er stefnt að því að klára mótið að öllu leyti á laugardeginum en möguleiki er á að mótið verði einnig á sunnudeginum. Mótið er sinclair stigamót og þrír stigahæstu einstaklingarnar verðlaunaðir.
Keppnisgjald er 7500kr. og greiðir félag keppanda til mótshaldara.
Anna Guðrún Halldórsdóttir frá Lyftingadeild Hamars, varði í gær Evrópumeistaratitil sinn í -87kg flokki 55-59 ára á Evrópumóti masters sem fram fór í Durrës í Albaníu. Mótið er stórt í sniðum en rúmlega 900 þátttakendur frá 34 löndum voru skráðir til þátttöku í ár.
Anna Guðrún fékk allar sína lyftur gildar. Í snörun tók Anna Guðrún seríuna 57-60-62kg en með 62kg lyftunni setti hún nýtt Íslands-Evrópu-og heimsmet. Í jafnhendingu tók hún seríuna 77-79-80kg þar sem hún setti nýtt Íslands-Evrópu-og heimsmet í jafnhendingu og samanlögðu með 80kg lyftunni.
Á mótinu kepptu einnig Haukur Parelius og Steinunn Sveinsdóttir en þau voru bæði að keppa á sínu fyrsta móti utan landssteinanna. Steinunn opnaði með 28kg snörun sem fór upp og tók svo 29kg sem voru bæting á fyrra Íslandsmeti hennar í -87kg flokki 60-64ára. Í þriðju tilraun fór hún í 30kg sem fór ekki upp. Í jafnhendingu tók Steinunn 38kg í fyrstu lyftu og svo 39kg í lyftu tvö sem var, eins og í snöruninni, bæting um 1 kg á hennar eigin Íslandsmeti og um leið um 2kg í samanlögðu. Í þriðju tilraun reyndu Steinunn við 40kg sem fóru ekki upp að þessu sinni. Árangur Steinunnar skilaði henni öðru sæti í hennar aldurs-og þyngdarflokki.
Haukur keppti í -96kg flokki 55-59 ára. Hann opnaði með 70kg snörun og reyndi svo við 73 og 76kg en fékk þær ekki gildar. Í jafnhendingu opnaði Haukur með 100kg, reyndi svo við 106kg í tilraun tvö og þrjú sem ekki fóru upp að þessu sinni.
Þórbergur Ernir Hlynsson hafnaði í gær í 11. sæti í 102kg flokki á heimsmeistaramóti ungmenna sem fram fór í Lima Perú.
Þórbergur opnaði með 132kg snörun, fór svo í 136kg sem hann missti og hækkaði svo í 140kg sem fóru upp og voru 5kg bæting á móti.
Í jafnhendingu opnaði Þórbergur í 163kg sem leit út fyrir að vera fislétt í höndunum á honum. Þórbergur rétt missti svo 173kg í lyftu tvö og hækkaði þá í 180kg sem var tilraun til 8kg bætingar á móti. Þórbergur var grátlega nærri því að ná lyftunni en hann lenti undir jerkinu en náði því miður ekki að standa lyftuna. Niðurstaðan var því 11.sæti í flokknum og nýtt Íslandsmet í snörun og ljóst er að Þórbergur á nóg inni!
Þórbergur Ernir og Ingi Gunnar landsliðsþjálfari eru nú komnir út til Lima í Perú þar sem Þórbergur keppir á World Youth Weightlifting Championships. Þórbergur keppir í 102kg flokki á morgun, sunnudaginn 4. maí klukkan 13:30 á staðartíma eða klukkan 18:30 á íslenskum tíma. Mótinu er streymt á Facebook síðu IWF
Við eigum síðan þrjá keppendur sem eru nú staddir í Albaníu til að keppa á Evrópumeistaramóti masters. Þar fer fremst í flokki Anna Guðrún en hún keppir á mánudaginn í -87kg flokki 55-59 ára. Steinunn Sveinsdóttir keppir í 87kg flokki 60-64 ára og Haukur Parelius í 89kg flokki 55-59 ára. Mastersmótinu er streymt á youtube.
Við óskum þeim Þórbergi, Önnu Guðrúnu, Steinunni og Hauki góðs gengis !
Evrópumeistaramótið í ólympískum lyftingum fer fram í Moldóvu dagana 13.-21.apríl nk. Ísland á sex keppendur á mótinu að þessu sinni, þau Eygló Fanndal (-71), Guðnýju Björk (-76), Kötlu Björk (-64), Þuríði Erlu (-59), Kára Stein (-81) og Berg (-89). Ingi Gunnar landsliðsþjálfari og Hrund Scheving fylgja hópnum út ásamt Ernu Héðinsdóttur sem verður í hópi dómara á mótinu.
Þuríður hefur keppni þriðjudaginn 15.apríl, Katla keppir 16.apríl og Kári Steinn og Eygló keppa þann 17.apríl og Guðný og Bergur þann 18.apríl. Í fyrsta skipti í sögu ólympískra lyftinga á Íslandi mun RÚV sýna beint frá -71kg flokknum sem Eygló Fanndal keppir í. Útsendingin hefst klukkan 14:00 á skírdag á RÚV2.
Eygló er með hæsta skráða „entry total“ í sínum flokki, eða 245kg og því er ljóst að allra augu verða á henni. Á mótinu verður síðan tilkynnt hver hlýtur titilinn „Weightlifter of the year 2024“ sem Eygló er tilnefnd til svo það eru spennandi dagar framundan.
Þann 2.apríl sl. fór fram 52. lyftingaþing Lyftingasambands Íslands. Á þinginu var Harpa Þorláksdóttir kjörinn formaðursambandsins og tekur hún við af Helgu Hlín Hákonardóttur sem við færum kærar þakkir fyrir óeigingjörn störf.
Harpa Þórhallsdóttir formaður Lyftingasambands Íslands
Önnur sem kosin voru í stjórn sambandsins á þinginu voru Ásgeir Bjarnason, Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, Adam Eliasen og Hrund Scheving. Í varastjórn vour kosin þau Indíana Lind Gylfadóttir og Birkir Örn Jónsson. Áheyrnafulltrúar íþróttamanna í stjórn eru áfram þau Erla Ágústsdóttir og Gerald Brimir Einarsson. Ásgeir var svo einnig kjörinn formaður tækninefndar.
Að þingi loknu skipti stjórn með sér verkum með eftirfarandi hætti: Ásgeir Bjarnason varaformaður, Adam Eliasen gjaldkeri, Hulda Sólveig ritari og Hrund Scheving meðstjórnandi.
Nýkjörin stjórn og framkvæmdastjóri. F.V. Adam, María Rún, Harpa, Hrund, Hulda og Indíana
Eftir hefðbundin þingstörf sæmdi Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, Ernu Héðinsdóttur silfurmerki ÍSÍ fyrir framlag hennar til dómsgæslu í ólympískum lyftingum, bæði innan sem utanlands. Erna dæmdi fyrst allra íslendinga, keppni í ólympískum lyftingum á Ólympíuleikunum í París síðastliðið sumar. Erna var því miður ekki viðstödd til að veita viðurkenningunni viðtöku.
Þá sæmdi Andri, Magnús Brynjólf Þórðarson, fyrrverandi formann og stjórnarmann Lyftingasambandsins, gullmerki ÍSÍ fyrir störf hans í þágu ólympískra lyftinga á Íslandi. Magnús átti stóran þátt í auknum árangri og aukinni veltu sambandsins, m.a. í styrkjum frá afrekssjóði og að koma sambandinu úr C í B samband.
Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Magnús Brynjólfur Þórðarson.
Lyftingasambandið gerði einnig þá Harald Ólafsson og Inga Gunnar Ólafsson að heiðursfélögum LSÍ en báðir eiga veglegt framlag til framgangs ólympískra lyftinga á Íslandi, Haraldur sem keppandi og Ingi Gunnar sem þjálfari og landsliðsþjálfari.
Haraldur sem er 8.heiðursfélagi LSÍ, var frumkvöðull í lyftingum á Akureyri bæði sem keppnismaður og þjálfari. Hann var virkur keppandi á árunum 1976-1990 og keppti m.a : 2x á EM (‘84,’88) 1x á HM unglinga (´82) 6x á NM (‘77,‘81,‘82,‘83,‘87,‘89) 2x silfur, 1x brons 6x á NM U17 og U20 (‘77,‘78,‘79,‘80,‘81,‘82), 3x meistari 6x á NM (‘77,‘81,‘82,‘83,‘87,‘89), 2x silfur, 1x brons 6x á NM U17 og U20 (‘77,‘78,‘79,‘80,‘81,‘82), 3x meistari
Þá var Haraldur var var tvisvar sinnum valinn Íþróttamaður Akureyrar og hlaut Elite pin NWF.
Ingi Gunnar Ólafsson er 9.heiðursfélagi LSÍ. Hann hefur þjálfað ólympískar lyftingar frá árinu 2014 og verið landsliðsþjálfar í yfir 10 ár. Ingi Gunnar er frumkvöðull í keppnisþjálfun í ólympískum lyftingum á Íslandi og hefur fylgt landsliðinu á 48 mót á erlendri grundu:
HM (‘15,’17,’18,’19,’21,’22,’23,’24) = 8x HM U20 (‘22) = 1x HM U17 (‘17) = 1x EM (‘16,’18,’19,’22,’23,’24) = 6x EM U20 og U23 (‘16,’18,’21,’22,’23,’24) = 6x EM U15 og U17 (‘17) = 1x NM (‘15,’16,’18,’19,’20 (Covid),’21,’23,’24) = 8x NM U17 og U20 (‘14,’15,’16,’17,’18,’19,’20 (Covid) ,’22,’23) = 9x Smáþjóðamótið (‘17,’18,’21,’23,’25) = 5x Úrtökumót ólympíuleika (‘23-’24) = 3x
Harpa, nýkjörinn formaður afhenti Inga Gunnar landsliðsþjálfara viðurkenningu og blómvönd.
Stjórn Lyftingasamband þakkar gestum þingsins fyrir komuna og góðar umræður sem sköpuðust. Einnig þökkum við Valdimari Leó Friðriksyni fyrir þingstjórn og fráfarandi stjórn þökkum við fyrir vel unnin störf og gott samstarf.