Haustmót LSÍ verður haldið í Sporthúsinu í Kópavogi laugardaginn 28. september.
Skráningar óskast sendar á lsi@lsi.is fyrir miðvikudaginn 25. september.
Mótið hefst kl. 13.00 og vigtun er milli 11.00 og 12.00.
Greinasafn eftir: Lárus Páll
Námskeið í Skyndihjálp
Ef þið hafið áhuga sendið email á lsi@lsi.is.
Ný Mótaskrá fyrir 2013-14
Úrslit á Norðurlandameistaramóti á Akureyri 2013
Norðurlandameistaramót í Ólympískum lyftingum var haldið á Akureyri þann 17. ágúst síðastliðinn.
Ísland vann í Liðakeppni Karla en Danmörk vann í Liðakeppni kvenna.
Keppendur fyrir Íslands hönd í karlaflokki voru Gísli Kristjánsson, Árni Björn Kristjánsson, Andri Gunnarsson, Árni Freyr Stefánsson, Róbert Eyþórsson, Hrannar Guðmundsson, Björgvin Karl Guðmundsson og Darri Már Magnússon.
Í kvennaflokki kepptu Svanhildur Vigfúsdóttir og Auður Ása Maríasdóttir.
Árangur Íslendingana var mjög góður og fékk Darri Már Magnússon gullverðlaun í -56 kg. fl. og setti þrjú ný íslandsmet í drengja og unglingaflokki. Hrannar Guðmundsson, átti í harðri keppni við Mikko Kuusto (FIN) í 77 kg. fl., en beið í lægri hlut á 100gr. þyndarmun á líkamsþyngd á keppnisdegi þar sem báðir lyftu 263 kg. í samanlögðu. Hrannar setti 3 ný Íslandsmet, 117 kg. í snörun, 146 kg. í janfhendingu og 263 kg. í samanlögðu eins og áður sagði. Róbert Eyþórsson hlaut silfurverðlaun í 69. kg. fl og Árni Björn Kristjánsson sömuleiðis í -105 kg. fl. en Árni Freyr Stefánsson lauk ekki keppni í þeim þyngdarflokki. Gísli Kristjánsson fékk bronsverðlaun í +105 kg. fl.. Svanhildur Vigfúsdóttir fékk bronsverðlaun -58 kg. fl. kvenna.
Per Hordnes (NOR) var stigahæstur karla yfir alla þyngdarflokka. Hann keppti í -94 kg. fl. og lyfti þar 143 kg í snörun og 180 kg í jafnhendingu og var með 323 kg. í samanlögðu.
Ruth Kasirye (NOR) var stigahæst kvenna yfir alla þyngdarflokka. Hún keppti í -63 kg. fl. og lyfti þar 96 kg í snörun og 117 kg í jafnhendingu og var með 213 kg. í samanlögðu.
Ármann var í öðru sæti í félagsliðakeppni karla en Norska félagið Tambarskjelvar IL sigraði. Danska félagið IK 99 sigraði í félagsliðakeppni kvenna en Ármann var þar í þriðja sæti.
Á Norðurlandameistaramótum er keppt í hinum hefðbundu 8 þyngdarflokkum hjá körlum en keppt er sérstaklega í 3 þyndarflokkum í stað hinna hefðbundna 7 þyngdarflokka hjá konum.
Eftirfarandi eru sigurvegarar í þyndarflokkum karla;
+105 kg. Ragnar Öhman (140/192/332)
-105 kg. Mikkel Andersen (145/165/310)
-94 kg. Per Hordnes (143/180/323)
-85 kg. Jarleif Amdal (135/160/329)
-77 kg. Mikko Kuusisto (115/148/263)
-69 kg. Jantsen Overas (108/127/235)
-62 kg. Arto Lahdekorpi (86/102/188)
-56 kg. Darri Már Magnússon (40/45/85)
Eftirfarandi eru sigurvegarar í kvennaflokkunum;
+ 69 kg. Madeleine Ahlner (70/94/164)
63-69 kg. Ruth Kasirye (96/117/213)
-63 kg. Christina Ejstrup (63/77/140)
Önnur úrslit mótsins má sjá á eftirfarandi skrá;
Nordic Senior 2013 Result 1 group
Nordic Senior 2013 Result 2 group
Nordic Senior 2013 Result 3 group
Myndir frá mótinu er hægt að nálgast á eftirfarandi síðum (©Sævar Geir Sigurjónsson).
https://www.facebook.com/kraftlyftingafelag.akureyrar/photos_stream
http://www.sport.is/ithrottir/2013/08/19/hrikalega-tekid-a-thvi-a-akureyri-myndaveisla/
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á Landsmótið!
Landsmót UMFÍ fer fram um næstu helgi á Selfossi og verður keppt í Ólympískum lyftingum á Sunnudeginum 7. Júlí.
Skráningarfrestur rennur út á Miðvikudeginum 3. Júní. Vinsamlega sendið skráningar á lsi@lsi.is.
7 nýir dómarar á Norðurlandi

Frá hægri; Ivan Mendez, Kristján H. Buch, David Nyombo, Fríða Björk, Grétar Skúli, Hulda B. Waage, Edda Ósk og Per Mattingsdal frá IWF.
Dómaranámskeið í Ólympískum lyftingum var haldið á Akureyri þann 22. júní síðastliðinn. 7 nýir dómarar luku prófi og óskar Lyftingasambandið þeim velfarnaðar í starfi.
Áhugi á Ólympískum lyftingum hefur verið stigvaxandi og hefur Norðurlandið ekki verið nein undantekning frá því undir styrkri handleiðslu Grétars Skúla formanns KFA. Þess má geta að Norðurlandamót fullorðina í Ólympískum lyftingum verður haldið á Akureyri dagana 16-18. ágúst.
Dómara námskeið á Akureyri
Dómara námskeið í Ólympiskum lyftingum verður haldið á Akureyri dagana 21-23 júní n.k. Skráning og nánari upplýsingar verða veittar í gegnum tölvupóstinn lsi@lsi.is. Skráningargjald er 10.000 kr.
Dr. Tamás Aján endurkjörinn Forseti Alþjóða lyftingasambandsins IWF.
138 þjóðir tóku þátt í kosningu um forystu Alþjóða lyftingasambandsins dagana 20-21 maí 2013 í Moskvu. Dr. Tamas Ajan var endurkjörinn forseti sambandssins til næstu 4 ára og Gjaldkeri- og aðalritari var kosinn Ma Wenguang. Fyrsti varaforseti var kosinn Nicu Vlad.
Að auki var kosið í Framkvæmdastjórn 5 varaforsetar og 8 meðstjórnendur. 10 voru kosnir í Dómara- og reglugerðanefnd. 10 voru kosnir í Þjálfunar- og rannsóknarnefnd og 10 voru kosnir í Læknanefndina.
Úrslitin á Smáþjóðaleikunum á Möltu
Dagskrá Íslandsmeistaramótsins 2013
Íslandsmeistaramótið í Ólympískum Lyftingum verður haldið í verslunarkjarnanum Sunnuhlíð á Akureyri laugardaginn 13. apríl og hefst kl. 10.00.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi;
Kl. 10.00 Snörun Kvenna.
Kl. 10.50 Hlé.
Kl. 11.00 Jafnhending Kvenna
Kl. 14.00 Snörun Karla
Kl. 15.20 Hlé
Kl. 15.30 Jafnhending Karla
Hápunkturinn verður væntanlega eftirfarandi;
Keppnin verður mest spennandi í samanlagðri stigakeppni, Þar sem keppnin er á milli Önnu Huldar og Katrínar Tönju. Konur verða að keppa í snörun milli 10.00 og 11.00, en líklega byrja þær stöllur ekki fyrr en kl. 10.30. Þær keppa svo aftur í Jafnhendingu milli 11.00 og 12.00
Gísli Kristjánsson er sterkasti einstaklingurinn í karlakeppninni en hann verður líklega að keppa í Snörun um 15.00 og Jafnhendingu kl. 16.30.
Við munum reyna að streama frá mótinu www.ustream.com/kfakureyri



