Brynjar Logi hafnaði í 10. sæti af 12 keppendum í gríðarlega sterkum 89kg flokki í dag.
Hann átti ekki sinn besta dag og lyfti einungis opnunarþyngdunum bæði í snörun og jafnhendingu. Hann opnaði snörunina með öruggri 132kg lyftu, fór svo í 136 lyftu sem hann komst ekki almennilega undir og reyndi svo aftur við þá þyngd í síðustu snöruninni en náði ekki að halda henni.
Í jafnhendingunni hóf hann keppni á 155kg lyftu, þyngdi því næst í 160 kg, en einhver hreyfing var á vinstri olnboga og fékk hann eitt hvítt og tvö rauð ljós. Ingi veifaði chalenge kortinu, en eftir endurskoðun kviðdóms var lyftan dæmd ógild. Þeir félagar ákváðu engu að síður að hækka í 165kg og reyna þannig við nýtt íslandsmet í jafnhendingu. Brynjar tók öruggt clean og stóð nokkuð sannfærandi upp úr því. En þegar þangað var komið varð allt grátt, svo hann henti stönginni frá sér og niðurstaðan 132kg snörun, 155kg jafnhending og 187kg samanlagt sem eru 8kg undir hans besta árangri.
Við höfum samt trú að að hann eigi helling inni, eins og hann sýndi okkur á sumarmótinu með 138kg snörun.
En svo er líka gott að minnast þess að Evrópumeistaramót eru ekki bara það sem gerist á keppnispallinum. Evrópumeistaramót er líka að fá risaknús frá Giorgi Asanidze, vera á upphitunarpalli við hliðina á Marin Robu eða sjá að frá því Antonino Pizzolato hitti þig síðast hefur hann fengið sér alveg eins klippingu.
Gamanið er ekki alveg búið hjá Brynjari því í dag kom Erla Ágústsdóttir til Rúmeníu. Hún keppir 3. ágúst kl. 13:00 (10:00 á íslenskum tíma) og ætlar Brynjar að aðstoða Inga Gunnar og Erlu á keppnisdegi.
Dagurinn gekk ekki alveg að óskum hjá Íslensku stelpunum í dag. 64kg B hóparnir í U20 og U23 voru sameinaðir í einn hóp, svo Íslenski hópurinn stóð frammi fyrir því að eiga 3 keppendur í sama hópi. Það voru því allar tiltækar hendur fengnar með á keppnissvæðið, Brynjar Logi og Alex Nói fóru í hlutverk aðstoðarþjálfara á meðan Ingi Gunnar stjórnaði ferðinni af sinni alkunnu snilld. Við erum líka svo heppin að eiga góða vini og Patric Bettembourg frá Svíþjóð kom okkur einnig til aðstoðar, en hann hefur tvisvar komið til Íslands með Sænskar stelpur og æft hjá okkur og kunnum við honum bestu þakkir fyrir aðstoðina. Bæði U20 og U23 flokkarnir er svo með A hópana síðar í dag og eru 10 keppendur í hvorum fyrir sig.
Keppnin hófst kl. 9:00 hér í Búkarest, eða kl. 6:00 á Íslenskum tíma. Þetta þýddi að stelpurnar þurftu að mæta í vigtun kl. 4:00 á Íslenskum tíma og vakna til að fara í rútu vel fyrir 3:00, svo það má kannski segja að þær hafi verið að lyfta um miðja nótt og er þetta eitthvað sem við getum búist við þegar við förum austur á bóginn í keppnir og er hluti af lærdóm og reynslu. Fyrir Arey og Snædísi er þetta fyrsta alþjóðlega mótið erlendis og er þetta því gríðarlega mikilvæg reynsla fyrir þær.
Arey átti fyrstu lyftuna af Íslensku stelpunum og snaraði fallegri öruggri 72kg lyftu. Hún reyndi þar næst við 74kg í annarri lyftu en komst ekki alveg undir stöngina. Í þriðju snöruninni sem einnig var 74kg fann hún ekki alveg jafnvægið og missti stöngina aftur fyrir sig svo einungis fyrsta lyftan var gild.
Snædis náði því miður ekki gildum snörunum. Fyrsta lyftan var þó ansi nálægt. Hún fékk tvö hvít og eitt rautt frá dómurunum, en kviðdómur snéri því við vegna “pressout”. Hún hækkaði svo í 75 í annarri og þriðju lyftu en komst því miður ekki undir stöngina.
Úlfhildur opnaði í 74kg snörun en misti stöngina afturfyrir sig. Hún hækkaði sig í 75kg í næstu lyftu og var sorglega nálægt því að ná henni en náði ekki alveg að halda stönginni. Hún fór þá aftur í 75kg en missti hana aftur fyrir sig. Úlfhildur er reynsluboltinn af þeim þremur, en eins og hún sagði sjálf þá er þetta ný reynsla að bomba út…. en það er ágætt að prófa það líka einhverntíman.
Í jafnhendingunni hóf Snædís leikinn og tók 83kg jafnhendingu. Hún hækkaði þá í 88kg, átti gott clean en jerkið gekk ekki að þessu sinni. Hún hækkaði svo í 91kg í sinni síðustu tilraun en hún fór því miður á sömu leið og 88kg. Snædís átti því aðeins eina gilda lyftu, en mikið af reynslu í bankann og kemur eflaust enn sterkari inn á næsta móti.
Úlfhildur hóf sína fyrstu jafnhendingu á öruggri 84kg lyftu, hækkaði sig svo í 92kg, en líklega hefur stöngin eitthvað lent illa á henni í clean því hún náði ekki að standa upp. Í þriðju lyftunni tók hún 92kg aftur, stóð auðveldlega upp með það og endaði mótið með neglu jerki.
Arey átti góða 90 kg lyftu í sinni fyrstu tilraun. Hún hækkaði svo í 93kg, og tók gott clean og stóð upp en komst ekki alveg undir jerkið. Hún reyndi svo aftur við 93kg en sama sagan endurtók sig.
Svo… hellingur af reynslu í bankann og að takast á við allskonar aðstæður á keppnisstað. Það er erfitt að vera svona margar í sama hópnum og reyna að láta það ekki hafa áhrif á sig hvernig hinum gengur. Einnig var hópurinn í heild mjög nálægt hver annarri í þyngdum svo það var mikið að gerast að stigaborðinu og breytingar á röðun keppanda. En þannig er þessi íþrótt og við lærum af reynslunni og höldum ótrauð áfram.
Á morgun 25. júlí hefst Evrópumeistaramót Junior (U20) og U23 í Búkarest, Rúmeníu. Opnunarhátíðin hefst kl. 17:30 ( 14:30 á Íslenskum tíma) og er allri keppninni streymt á vefsjónvarpi Evrópska lyftingasambandsins. www.ewfsport.tv
Upplýsingar og tímaseðil (startbook) er að finna á heimasíðu EWF
Ísland á 5 keppendur á mótinu og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með þeim.
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir keppir í Junior 64kg flokki 29. júlí kl. 9:00 (6:00 á Íslenskum tíma). Arey Rakel Guðnadóttir keppir í U23 64kg flokki 29. júlí kl. 9:00 (6:00 á Íslenskum tíma). Snædís Líf P. Dison keppir í U23 64kg flokki 29. júlí kl. 9:00 (6:00 á Íslenskum tíma). Brynjar Logi Halldórsson keppir í U23 89kg flokki 31. júlí kl. 17:00 (14:00 á Íslenskum tíma) Erla Ágústsdóttir keppir í U23 +87kg flokki 3. ágúst kl. 13:00 (10:00 á Íslenskum tíma)
Úlfhildur Arna er ein efnilegasta lyftingakona sem við Íslendingar eigum. Á síðasta ári landaði hún öðru sæti á Evrópumeistaramóti U17 í 71kg flokki og varð með því fyrsta Íslenska konan til að vinna til verðlauna á alþjóðamóti í lyftingum. Hún keppti fyrst árið 2017 og hefur alls keppt á 28 mótum og landað fjölmörgum Íslandsmetum og Íslandsmeistaratitlum. Hún var stigahæsta ungmenni (U17) ársins í kvennaflokki árið 2022. Hennar besti árangur eru 87kg í snörun sem hún náði á Haustmótinum 2022, 106kg í jafnhendingu sem hún náði á Smáþjóðaleikunum 2022 og 190kg samanlagt á Haustmótinu. Úlfhildur hefur undanfarið oftast keppt í 71kg flokki en hún útskýrir sjálf hér fyrir neðan hvers vegna hún fór niður um flokk.
Hún keppir á Evrópumeistaramóti Junior (U20) í 64 kg flokki 29. júlí kl. 9:00 í Búkarest (kl. 6:00 á Íslenskum tíma).
Ég fann oly í gegnum crossfit þegar eg byrjaði í því 2017
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar?
Ég var í áhaldafimleikum í Stjörnunni. Varð íslandsmeistari á stökki ásamt öðrum medalíum, man ekki nákvæmlega.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til?
Annað sæti á Em, yngsti Íslendingur til að vinna medalíu á stórmóti.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna?
Ég horfi upp til margra og á mína uppáhalds lyftara, en ég myndi kannski ekki segja að þau væru fyrirmyndir. Það sem virkar fyrir mig er að vera ekki að bera mig saman við aðra eða reyna að vera eins og aðrir, því mitt eina markmið er að verða besta útgáfan af sjálfri mér.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra?
Ekki flýta þér og ekki bera þig saman við aðra. Fókusaðu á að ná tækninni áður en þú ferð í þyndir, það mun skila sér á endanum. þú veist aldrei hvað aðrir eru að ganga í gegnum eða hvernig þeirra líf lítur út, þínar bætingar gerast á þínum hraða. gerðu þitt besta og hafðu gaman 🙂
Annað sem þig langar að komi fram…
Þetta ár hefur verið frekar erfitt þegar það kemur að æfingum. Í lok skólaárs var ég í tvöföldu námi til að vinna upp það sem ég missti af þegar ég bjó í svíþjóð og hafði lítinn tíma til að æfa. Ég lenti einnig í veikindum sem höfðu mikil áhrif. Eftir það ætlaði ég að ná mér til baka en byrjaði á Decutan. Eins og margir þekkja getur lyfið valdið miklum aukaverkunum sem ég hef verið að glíma við síðustu vikur. Lystarleysi og liðverkir hafa verið verstir fyrir mig og virkilega haft áhrif á æfingar. Ég er ekki á sama stað og ég var á og bætingar ganga hægt, en það er bara þannig. Ég mæti ennþá á æfingar og geri það sem ég get og ég veit að ég mun koma sterkari til baka!
Arey keppti fyrst í lyftingum árið 2018 á Jólamótinu. Hún hefur keppt á 9 mótum sem skráð eru í gagnagrunn LSÍ, mörgum þeirra í Danmörku þar sem hún er búsett vegna náms. Hennar besti árangur eru 77kg snörun, 95kg jafnhending og 172kg samanlagt og allt lyftur frá Danska Meistaramótinu 2023.
Arey keppir á Evrópumeistaramóti U23 í 64kg flokki 29. júlí kl. 9:00 í Búkarest (kl. 6:00 á Íslenskum tíma).
Ég var búin að vera í crossfit í rúm 4 ár og fékk að heyra að ég ætti séns á því að vera góð í oly og svo var cardio orðið soldið þreytt. Svo ákvað að byrja og sjá hversu langt ég gæti komist.
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar?
Var fyrst í sundi í ca 8-9 ár og á enn nokkur félagsmet í mínum aldursflokki á þeim tíma en fór svo í CrossFit eftir að hafa hætt vegna meiðsla í sundinu.
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna?
Eftirminnanlegast er að jerka 100kg í fyrsta sinn á æfingu í fyrra, þá sá ég að það væri raunhæfur möguleiki að elta 100kg c&j drauminn.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til?
Ég keppti á NM U20 og lenti í þriðja sæti þar, einnig 3. sæti í bæði snatchi og c&j á Danska senior meistaramótinu, en svo finnst mér nokkuð stórt og óraunverulegt að vera á leið á EM U23.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna?
Núna fylgist ég mikið með Solfrid Koanda og finnst hún góð fyrirmynd í íþróttinni. En ég byrjaði fyrst og fremst eftir að hafa þekkt Birtu Líf lengi, hún hvatti mig í að keppa í fyrstu skiptin og að sjá að hún gæti lyft þessu og hinu hvatti mig í að reyna lika.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra?
Treysta ferlinu, það koma hindranir en bara vera þolinmóður og leggja inn vinnuna þá koma góðu stundirnar og afrekin á endanum.
Annað sem þig langar að komi fram… Vil bara þakka þér Erna líka fyrir að hvetja mig í Óly 2020 og þetta góða utanumhald og starf í LSÍ👏🏼👏🏼
Snædís á frekar stuttan feril í lyftingum hingað til en hún keppti fyrst fyrir aðeins rúmum 2 árum á Sumarmóti og má það því teljast frábær árangur að vera komin á Evrópumeistaramót U23 eftir einungis 6 mót. Hennar besti árangur er 77kg snörun frá Íslandsmóti ungmenna 2023, 90kg jafnhending frá Íslandsmóti Senior 2023 og samanlagt 167kg frá Íslandsmóti Ungmenna 2023.
Snædís keppir á Evrópumeistaramóti U23 í 64kg flokki 29. júlí kl. 9:00 í Búkarest (kl. 6:00 á Íslenskum tíma).
Svona þegar ég var að undirbúa mig fyrir fyrsta mótið árið 2021. Annars bara að lyfta samhliða crossfit.
Hvers vegna fórstu að æfa lyftingar?
Byrjaði í crossfit af því að frændi minn sagði að ég þyrfti að vera sterk til að geta eitthvað á skíðum. Svo þróaðist það þannig að mér fannst lyftingar skemmtilegast við crossfit og var frekar fljót að bæta mig mikið.
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar?
Æfði fimleika og fótbolta sem barn og skíði þangað til 2020. Engin mikil afrek þar.
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna?
Líklega 90kg C&J á Íslandsmeistaramótinu sem tryggði mér sætið inn á EM. Það var lyfta sem ég bara þurfti að ná.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til?
Komast inn á EM U23. Átti keppnisdag þar sem allt gekk upp eftir erfiðar æfingavikur fram að móti.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna?
Ég elska ítölsku stelpurnar!
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra?
Brynjar Logi er einn sterkasti lyftari landsins í dag en hann hefur klifrað hratt upp getustigann síðan hann keppti fyrst á Sumarmótinu 2020. Hann á m.a. að baki Norðulandameistaratitla í U20, 2020 og 2022 auk þess sem hann hefur sett fjölmörg Íslandsmet í Senior, U23 og Junior flokkum bæði í 81kg og 89kg flokki. Hann á þó verðuga keppinauta í 89kg flokkinum og verður gaman að sjá baráttuna um lyftingamann ársins þetta árið, en Brynjar hlaut þann titil árið 2022 bæði í Senior og U20. Það mun vera í fyrsta sinn sem lyftingamaður ársins er U20 lyftari. Besti árangur Brynjars er 138kg snörun frá Sumarmótinu 2023, 158kg jafnhending og samanlögð 295kg frá Norðurlandamóti Junior 2022.
Brynjar keppir á Evrópumeistaramóti U23 í 89kg flokki 31. júlí kl. 17:00 í Búkarest (kl. 14:00 á Íslenskum tíma).
Ég sá lyftingar á youtube og fannst þetta spennandi.
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar?
Ég var í Taekwondo í 10 ár og er með Svarta beltið. Ég á marga íslandsmeistaratiltla, en stærsta afrekið er 3. sæti á Canada open 2017.
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna?
151 C&J á Junior Norðurlandamóti í Noregi 2021 í -81kg flokki. Hún var 6kg PR og eftir hana átti ég öll Íslandsmetin í -81kg flokki í Senior. Eftir það fór ég heim að borða og verða stór og sterkur og hef keppt í -89kg flokki síðan.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til?
Var lyftingamaður ársins 2022
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna?
Það er enginn einn ákveðinn en ég horfi mikið á lyftingar og velti fyrir mér mismunandi lyfturum og stílum í lyftingum.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra?
Þú þarft að vinna vinnuna og þá koma bætingarnar. Mæta æfingar, borða mat og sofa á nóttunni. Það er ekki nóg að gera bara Snatch – þú þarft að hugsa um hvað þú ert að gera og pæla í tækninni þinni alltaf. Hafa intention í æfingunum alltaf.
Erla keppti fyrst á Haustmótinu 2021 en hefur síðan orðið Íslandsmeistari unglinga 2021, Norðurlandameistari unglinga 2021 og Íslandsmeistari Senior 2023. Hún á öll Íslandsmet í Junior og U23 flokki í +87kg flokki. Hún hefur keppt á alls 9 mótum hingað til. Besti árangur Erlu er 92kg snörun, 113kg jafnhending og 205kg samanlagt frá Sumarmótinu 2023.
Erla keppir á Evrópumeistaramóti U23 í +87kg flokki 3. ágúst kl. 13:00 í Búkarest (kl. 10:00 á Íslenskum tíma).
Sumarið 2021 fór ég að einbeita mér einungis að lyftingum.
Hvers vegna fórstu að æfa lyftingar?
Ég tók grunnámskeið í crossfit í byrjun 2019 og kynnist ólympískum lyftingum í kjölfarið, fann fljótt að lyftingarnar voru það sem mér fannst skemmtilegast og styrkleikarnir mínir lágu klárlega í þeim heldur en í crossfit. Ég hélt samt áfram í crossfit en með áherslu á lyftingar þar til sumarið 2021 þegar ég tek ákvörðun um að keppa í fyrsta skipti á haustmóti LSÍ 2021 þá færi ég mig yfir í lyftingar.
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar?
Nei, fann mig aldrei í neinni íþrótt
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna?
90kg snatch á ÍM 2023, þetta var tala sem mér var búið að langa í svo lengi, mjög gaman að ná henni á pallinum.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til?
Að vera með næst hæsta total sem íslensk stelpa hefur átt (vonandi er það rétt hjá mér), það er klikkað að hugsa til þess.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna?
Norska Solfrid Koanda, hún er ríkjandi heimsmeistari og hefur verið mjög stutt í íþróttinni miðað við árangur. Hún er mjög sterk og er að taka þyngdir sem maður getur ekki ímyndað sér en alltaf hægt að líta upp til hennar og vinna að því að verða sterkari og komast nær því sem hún er að taka.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra?
Njóta þess að æfa, þora að keppa, leyfa þér að stefna hátt og hafa gaman að þessu sporti!
Lyftingasambandið er virkilega stolt af þessum flotta hópi keppenda og óskar þeim alls hins besta á mótinu.
Í dag fór sumarmót Lyftingasambands Íslands og Lyftingadeildar KA fram í KA heimilinu á Akureyri. Mótið heppnaðist mjög vel og eiga KA menn hrós skilið fyrir góða umgjörð og skipulag.
Mótið var sinclair-stigamót m.v. 2020-2024 sinclair-reiknireglu, en hún er ekki að fullu sambærileg við þau stig sem gefin eru upp á results.lsi.is
Amalía Ósk Sigurðardóttir sigraði í kvennaflokki með 230,51 sinclair stig. Erla Ágústsdóttir var í öðru sæti með 211,91 sinclair stig. Telma Rún Guðjónsdóttir var í þriðja sæti með 195,67 sinclair stig.
Hjá körlunum var hörð og spennandi keppni Sigurður Darri Rafnsson sigraði með 361,41 sinclair stig. Brynjar Logi Halldórsson var í öðru sæti með 359,22 sinclair stig. Axel Guðni Sigurðsson var í þriðja sæti með 345,73 sinclair stig.
Það var virkilega gaman að sjá Amalíu koma svona sterka til baka en töluvert er síðan hún keppti síðast. Amalía opnaði með 70 kg snörun, missti 75 kg sem hún svo tók í þriðju tilraun. Í C&J lyfti hún 90 kg – 95 kg og 100 kg, svo 175 kg total var niðurstaðan í dag. Hún stefnir ótrauð á Senior Heimsmeistaramót í September og það verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.
Erla Ágústsdóttir átti frábæran dag en hún lyfti 88 kg í sinni fyrstu snörun, tók síðan 92 kg í annarri tilraun og setti með því U23 Íslandsmet og reyndi að lokum við 94 kg sem ekki vildu upp í dag, en það hefði verið jöfnun á Senior Íslandsmets standard. Í C&J tók hún 108 kg í fyrstu tilraun, í annarri tók hún 113 kg sem er U23 Íslandsmet og líkt og í snöruninni reyndi hún að jafna Senior Íslandsmets-standardinn og bað um 116 kg sem gengu því miður ekki. Niðurstaðan er samanlögð 205 kg sem gefa henni A lágmörk á NM Senior, B lágmörk á EM U23 og C lágmörk á EM Senior. Það má því segja að þessi frábæra lyftingakona hafi með þessu stimplað sig rækilega inn í landsliðið í dag.
Í karlaflokki voru tveir lyftarar fæddir 2007 að keppa á sínu fyrsta móti. Annar þeirra, Kristinn Þór Hilmarsson, vigtaðist inn í 67 kg flokk, átti gott mót og lyfti 6 gildum lyftum sem er alltaf frábært á fyrsta móti.
Mótið endaði svo á æsispennandi keppni en þrír gríðarsterkir keppendur vigtuðust allir inn í -89 kg flokk og tilkynntu svipaðar tölur í vigtun. Þeir voru þrír eftir þegar hinir fjórir keppendurnir höfðu lokið keppni. Í snörun hóf svo Sigurður Darri Rafnsson leikinn með 125 kg snörun og Axel Guðni Sigurðsson lék svo þann leik á eftir honum. Axel fór því næst í 128 kg tilraun sem ekki vildi upp en hækkaði í 130 kg líkt og Sigurður hafði gert. Brynjar Logi Halldórsson hafði þá hækkað sig upp í 133 kg, svo næst átti Sigurðuri Darri leik og lyfti 130 kg og aftur lék Axel það sama á eftir honum.
Þá var komið að Brynjari að opna með 133 kg sem fóru upp. Sigurður Darri tók svo einnig 133 kg í sinni þriðju tilraun. Brynar Logi stóð þá einn eftir með tvær tilraunir uppi í erminni. Tók fallega 136 kg snörun í annarri tilraun og að lokum 138 kg snörun sem jafnframt er Senior Íslandsmet.
Spennan magnaðist svo þegar kom að jafnhendingarhlutanum. Þar hóf Axel leikinn hjá þeim þremur með 152 kg góðri lyftu, en náði svo því miður ekki annarri og þriðju tilraun upp í dag. Þá reyndi Brynjar við 155 kg en eitthvað lenti stöngin illa á honum og hann náði ekki að standa upp með stöngina. Sigurður Darri tók þá 155 kg í sinni fyrstu tilraun. Brynjar náði svo 155 kg í annarri tilraun. Hann hækkaði svo beint í 162 kg og Sigurður Darri fylgdi á eftir, en þar sem hann var á sinni annarri tilraun var það hann sem fyrst mætti á pallinn og henti upp nýju 162kg Íslandsmeti í C&J. Þá hækkaði Brynjar í 163 kg, stóð upp með það, en jerkið vildi ekki upp í dag. Að endingu setti Sigurður Darri allt sitt í síðustu lyftuna 164 kg sem fóru upp við mikinn fjögnuð viðstaddra og hans sjálfs og bætti þar sitt eigið Íslandsmet í jafnhendingu og einnig samalagða Íslandsmetið um 2 kg eða samtals 297kg. Með þessu er hann einnig kominn með C lágmörk á Senior HM, B lágmörk á Senior EM og A lágmörk á Senior NM. Það má því með sanni segja að hann hafi verið maður dagsins í dag.
Að lokum er gaman að geta þess að tveir einstaklingar þau Heiðrún Frímannsdóttir og Snorri Arnaldsson þreyttu dómarapróf á mótinu.
Við þökkum Lyftingadeild KA fyrir frábært mót, framúrskarandi útsendingu og gott skipulag.
Mótið fer frá í KA heimilinu, Dalsbraut 1 – vigtun á mótsstað.
Athugið að mótið er Sinclair stigamót og því þarf íþróttafólk ekki að ná vigt í ákveðnum flokki, en afrek þess skráist í þann flokk sem það vigtast í.
Athugið að mótakerfið okkar notast við Sinclair Coefficient 2021-2024, en á www.results.is er Sinclair Coefficient 2017-2021 notaður og því getur verið munur á stigum þar á milli. Lágmarkareglur til að ávinna sér keppnisrétt á mótum erlendis miðast við eldra sinclair kerfið.
Eygló átti sögulega stund á IWF Grand Prix 1, Havana, Cubu í gær þegar hún snaraði 100 kg fyrst allra Íslenskra kvenna á móti.
Hún náði 120 kg í jafnhendingu og samanlögðum 220 kg sem einnig er Íslandsmet í samanlögðu. Þessi árangur gerir hana að stigahæstu lyftingakonu Íslands frá upphafi með 269,56 sinclair stig.
Alls voru 26 keppendur í -71 kg flokki á mótinu, 14 á A riðli og 12 í B riðli. Eygló keppti í B riðli. Þar átti hún bestan árangur keppenda í snörun, 100 kg og annan bestan árangur í jafnhendingu 120 kg á eftir Marcial Matias, DOM, sem lyfti 124 kg.
Eygló gekk virkilega vel í snörunar hlutanum. Hún opnaði með 94 kg, tók næst 97 kg og toppaði þetta með 100 kg Íslandsmeti í þriðju lyftu.
Í jafnhendingunni opnaði hún með 117 kg. Dómararnir gáfu henni tvö hvít og eitt rautt, en kviðdómur sneri dómnum í ógilda lyftu vegna hreyfingar í olgnboga. Hún tók því næst góða 120 kg lyftu og reyndi að lokum við 122 kg, stóð upp úr clean-inu en jerkið vildi ekki alveg upp í þetta sinn. En 120 kg gerðu 220 kg Íslandsmet í samanlögðu. Keppni í B riðlið má sjá hér
Við tók bið eftir úrslitum A riðils til að sjá hver heildarúrslitin væru því ekki var mikill munur á mörgum keppendum A og B riðils m.v. entry total. Keppni í A riðli má sjá hér
Eftur að A riðlinum lauk var ljóst að 7. sætið var Eyglóar en auk þess sem hún var í 6. sæti í snörun og 9. sæti í jafnhendingu.
Á morgun 14. júní kl. 17:00 á Íslenskum tíma mun Eygló Fanndal Sturludóttir keppa á IWF Grand Prix I á Havana, Cubu.
Mótið er eitt af “Olympic qualifier” mótum IWF og mikilvægur liður í því ferli Eyglóar, landsliðsþjálfarans Inga Gunnars og Lyftingasambandsins að vinna henni inn keppnisrétt á Ólympíuleikunum. Hún keppir í B-riðli ásamt 11 öðrum keppendum og hægt er að fylgjast með keppninni á youtoube rás IWF.
A-riðillinn keppir svo kl. 22:00 á Íslenskum tíma og þar eru 14 keppendur svo það er í raun ekki fyrr en eftir hann sem við vitum í hvaða sæti Eygló lendir.
Besti árangur Eyglóar í kílóum talið hingað til eru samanlögð 217 kg sem hún náði á Evrópumeistaramóti U23 í október á síðasta ári og varð með því Evrópumeistari.
Hún jafnaði svo þann árangur á Senior Evrópumeistaramóti á apríl síðastliðinn og varð þar í 6. Sæti.
Hennar besta snörun er 97 kg og besta jafnhending 121 kg og allt eru þetta Íslandsmet.
Við óskum Eygló alls hins besta á mótinu og hlökkum til að sjá hana lyfta á morgun.
Stigahæsta kona U15 var Hólmfríður Bjartmarsdóttir með 130 sinclair
Stigahæsta kona U17 var Guðrún Helga Sigurðurdóttir með 144,4 sinclair stig. Hún setti einnig íslandsmet í jafnhendingu í U17 >81kg flokki með 79kg lyftu.
Stigahæsta kona U20 var Úlfhildur Arna Unnarsdóttir með 210,5 sinclair stig
Stigahæsta kona U23 var Guðný Björk Stefánsdóttir með 225,5 en fast á hæla hennar var Snædís Líf P. Dison með 225,4
Guðný Björk Stefánsdóttir setti einnig Íslandsmet í snörun í U23 76kg flokki þegar hún snaraði 90 kg í sinni þrijði snörun.
Engir karl keppendur voru í U15 og U 17
Stigahæsti karl U20 var Bjarki Breiðfjörð Björnsson með 305,0 sinclair stig
Stigahæsti karl U23 var Jóhann Valur Jónsson með 297,4 sinclair stig
Einnig er gaman að geta þess að Þorvaldur Hafsteinsson tók landsdómarapróf á mótinu.
Við þökkum öllum sem komu að mótinu. Lyfturum, dómurum, starfsfólki og Lyftingafélagi Reykjavíkur.
Hrund sigraði í -71 kg þyngdarflokki, 45-49 ára nokkuð örugglega með 165kg samanlagðri þyngd 19kg meira Elaine Sims sem varð í örðu sæti.
Hún opnaði með 68kg fallegri snörun. Elaine Sims frá Bretlandi reyndi svo við 69kg í sinni þriðju og síðustu snörun, en það var tilraun til Evrópumets, en ekki vildi það upp í dag. Hrund bað þá um 72kg á stöngina, en missti jafnvægið með stöngina og datt fram á hnén.
Hún tók hins vegar 72kg örugglega í þriðju og síðustu tilrauninni sinni og sigraði með því snörunar hluta flokksins auk þess sem 72kg eru nýtt Evrópumet og jöfnun á Heimsmeti í flokkinum hennar. Hrund fagnanði að sjálfsögðu eins og henni er einni lagið.
Í jafnhendingu tók Hrund nokkuð örugglega 85kg í fyrstu lyftu. Elaine Sims var þá ein önnur eftir í flokknum og reyndi við 86kg í sinni annarri lyftu en tókst ekki að fara undir jerkið. Því næst tók Hrund sína aðra lyftu, 90kg. Dómararnir gáfu henni eitt rautt og tvö hvít, en kviðdómur snéri dómnum við og gaf henni ógilda lyftu sökum “pess out”. Sims fór þá í 92kg sem ekki vildu upp frekar en 86kg. Hrund bað þá um 93kg sem hún negldi upp með stæl og setti með því Evrópumet í jafnhendingu og samanlögðu, en þetta er einnig jöfnun á heimsmeti í jafnhendingu og samanlögðu.
Íslendingar hafa þá lokið keppni á þessu Evrópumóti með frábærum árangri og við erum virkilega stolt af þessum keppendum.