Um helgina fór fram Norðulandamót Senior í Landskrona í Svíþjóð
Ísland átti þar 11 keppendur, 9 konur og 2 karla. Nældi Íslenski hópurinn sér í eitt gull, tvö silfur og tvö brons á mótinu.
Erla Ágústsdóttir varð norðurlandameistari í +87kg flokki og lyfti 93kg í snörun og 113kg í jafnhendingu, samanlagt 206kg sem er nýtt Íslandsmet í samanlögðu í U23.
Mynd: perwiklund.se
Silfrin tóku Friðný Fjóla Jónsdóttir í 87kg flokki og Brynjar Logi Halldórsson í 89kg flokki.
Friðný lyfti 92 kg í snörun, 111 kg í jafnhendingu og 203kg samanlagt, sem jafnframt er C lágmark á EM.
Mynd: perwiklund.se
Brynjar lyfti 133kg í snörun og 160kg jafnhendingu sem jafnframt er Íslandsmet í U23 í jafnhendingu. Samanlagt 293kg., sem jafnframt er C lágmark á EM en 2 kg frá hans besta árangri.
Mynd: perwiklund.se
Sigurvegarinn í 89kg flokinum var Omed Alam með 330 kg samanlagt og var hann jafnframt stigahæsti karl mótsins.
Bronsin áttu Amalía Ósk Sigurðardóttir í 64kg flokki og Guðný Björk Stefánsdóttir 76 kg flokki. Amalía Ósk lyfti 80kg í snörun, 87kg í jafnhendingu og samanlagt 178kg.
Mynd: perwiklund.se
Guðný lyfti 90kg í snörun og 103kg í jafnhendingu, en það er 8 kg bætin í jafnhendingu á móti, samanlagt 193 kg og náði með því C lágmörkum á EM 2024.
Mynd: perwiklund.se
Einnig er gaman að geta þess að Hrund Scheving setti íslandsmet í snörun í masters 45 ára 71kg flokki þegar hún henti 73 kg upp fyrir haus í snörun. Er þetta ígildi heimsmets í flokkinum, þótt það fáist ekki formlega skráð nema vera sett á mastersmóti. Hún er jafnframt Íslandsmeistarinn okkar í skemmtilegum faganaðalátum.
Í liðakeppni kvenna hafnaði íslenska liðið í öðru sæti.
Norðurlandamót Senior fer fram í Landskrona í Svíþjóð næstu helgi. Ísland á 11 keppendur á mótinu, 9 konur og 2 karla.
Keppendur og þjálfarar. Efri röð: Sigurður Darri, Hrund, Kári, Brynjar, Amalía, Ingi Gunnar. Neðri röð: Snædís, Erla, Guðný, Friðný. Á myndina vantar Birtu, Arey og Kötlu, en þær eru búsettar erlendis
Mótið fer fram seinni hluta föstudags frá kl. 16:00 á Íslenskum tíma, en þá keppa konur í 45, 49, 55, 59 og 64 kg flokkum. Á laugardaginn hefst keppni kl. 8:00 á Íslenskum tíma og þá keppa 71, 86, 81, 87 og +87 kg konur og allir karlaflokkar. Eftirfarandi tímaseðill er á sænskum tíma með 2 klst. mismun:
Friday, Oct. 27th: Competition at Puls Arena 13:00-15:30 NWF Congress with Elections at Hotel Öresund 16:00-17:00 Weigh-in at Hotel Öresund 18:00 Competition W 45, 49, 55, 59 kg (10 athletes) 19:45 Competition W 64 kg (5 athletes)
Saturday, Oct. 28th: Competition at Puls Arena 08:00-09:00 Weigh-in at Hotel Öresund / men first 10:00 Competition M 61, 73, 81 kg (9 athletes) 11:30 Competition W 71 kg (8 athletes) 13:00 Competition M 89, 96 kg (7 athletes) 14:15 Competition W 76, 81, 87, >87 kg (11 athletes) 16:00 Competition M 102, 109, >109 kg (12 athletes App. 19.00: Banquet at Hotel Öresund, Kungsgatan 9 Landskrona
Mótið var sinclair-stigamót og þrjár eftstu konur og þrír efstu karlar m .v. sinclair stig verðlaunarðir.
Í kvennaflokki sigraði Telma Mist Oddsdóttir með 214,7 sinclair stig, önnur var Erla Ágústsdóttir með 209,2 sinclair stig og í þriðja sæti Selma Gísladóttir með 180,3 sinclair stig.
Mynd: Árni Rúnar Baldursson
Í karlaflokki sigraði Svanur Þór Vilhjálmsson með 293,6 sinclair stig, annar var Viktor Freyr Vilhjálmsson með 249,7 sinclair stig og þriðji Aron Kristinn Ágústsson með 229,3 sinclair stig.
Þónokkur Íslandsmet voru sett á mótinu. Í kvennaflokki var það Þórdís Viðarsdóttir sem er fædd 2009 og keppti í 49kg flokki sem setti Íslandsmet í öllum sínum lyftum í U15 flokkinum. Hennar lokatölur voru 31kg snatch, 43kg C&J og 74kg samanlagt.
Thelma Mist Oddsdóttir, fædd 2002, sigurvegari mótsins í kvennaflokki setti Íslandsmet í U23, 59kg flokki þegar hún tók 85kg C&J.
Erla Ágústsdóttir, fædd 2001, setti Íslandsmet í snörun í bæði Senior og U23 í +87kg flokki þegar hún snaraði 95 kg. Hún gerði svo tilraun til að bæta það í næstu lyftu á eftir þegar hún reyndi við 97kg sem ekki vildu alveg alla leið í dag.
Í karlaflokki setti Svanur Þór Vilhjálmsson, fæddur 2000, sigurvegari í karlaflokki, Íslandsmet í U23 109kg flokki þegar hann tók 118kg snatch, 144kg C&J og því 262kg samanlagt. Hann reyndi einnig við 120kg snatch sem ekki vildi alla leið í dag.
Um helgina fór fram IWF Level 2 þjálfaranámskeið á vegum lyftingasambandsins.
Hin finnska Karoliina Lundahl IWF Coach Developer kom hingað frá Svíþjóð,þar sem hún er búsett, til að kenna námskeiðið. Námskeiðið er haldið með styrk frá IWF Development Program og sóttu 19 þjálfarar og íþróttamenn námskeiðið frá flestum lyftingafélögum landsins.
Karoliina var sjálf keppnis kona í lyftingum á hæsta stigi og m.a. Heimsmeistari 1994 og 1998. Hún hefur í seinni tíð komið að þjálfun fjölmargra finnskra lyftingamanna og kvenna ásamt því að vera núverandi formaður finnska lyftingasambandsins sem og norðurlanda sambandsins.
Námskeiðið hófst kl. 17:00 á föstudegi fram til 13:00 á sunnudegi og fól í sér bæði fyrirlestra og verklegar æfingar. En Karoliinu finnst mikilvægt að tengja saman fræðilega hlutann í fyrirlestraformi og hvernig hægt er að færa þá þekkingu inn í æfingar.
Þetta námskeið var hugsað sem eins konar framhaldsnámskeið það er að þeir sem hafa komið að þjálfun og iðkun á ólympískum lyftingum fá aukna þekkingu til að vinna með sínum íþróttamönnum og koma þeim í fremstu röð. Rauði þráðurinn í námskeiðinu var að byggja ofan á fyrri þekkingu og þátttakendu tóku mjög virkan þátt í umræðum og verklegum æfingum. Fyrirlestrarnir fór fram í fyrirlestrar sölum Íþróttasambands Íslands og verklegar æfingar hjá Lyftingafélagi Reykjavíkur.
Lyftingasambandið þakkar IWF fyrir styrkinn til að auka tækifæri í þjálfaramenntun lyftingaþjálfara á Íslandi og að lyfta enn betur undir og fjölga þjálfurum með sérþekkingu í Ólympískum lyftingum. Þessi þekking nýtist ekki aðeins fyrir keppnisfólk í ólympískum lyftingum heldur styður þekkinging við aðrar íþróttir sem nýta sér ólympískar lyftingar við þjálfun.
Við þökkum Karoliinu kærlega fyrir hennar framlag og hlökkum til að nýta þá þekkingu sem hún kom með til okkar.
Prófið og svör á prófi er að finna á netinu og það er mín ráðlegging til ykkar að þið skimið yfir bókina (eða lesið spjaldanna á milli) gerið prófið og flettið upp því sem þið eruð óviss á.
Gæti kannski hljómað eins og svind, en staðreyndin er að ef þið kunnið prófið og það sem á því er þá eruð þið komin með þekkingu á því sem skiptir máli.
Haustmót Lyftingasambans Íslands og Ægir Gym í Ólympískum lyftingum verður haldið í húsnæði Ægis Gym, Hafnarbraut 8, Akranesi laugardaginn 30. september 2023.
Eygló Fanndal Sturludóttir keppti í 71kg flokki, B riðli í dag 13. september kl. 11:30 (8:30 á íslenskum tíma)
Eygló lyfti best 102kg í snörun, 123kg í jafnhendingu og 225kg í samanlögðu. Hún bætti með því öll sín eigin Íslandsmet – 2kg í snörun, 2 kg í jafnhendingu og 5 kg í samanlögðu.
Eygló átti fyrstu lyftuna í B riðlinum og opnaði með öruggri 95kg snörun, hún hækkaði því næst í 99kg sem hún tók einnig nokkuð örugglega. Að lokum hækkaði hún í 102kg sem jafnframt er bæting á hennar eigin íslandsmeti um 2 kg og henti þeirri þyngd upp eins og ekkert væri. Hún var á þessum tímapunkti 3. í B riðlinum eftir snörunina.
Í jafnhendingu opnaði Eygló með 116kg lyftu sem fór örugglega upp, þyngdi í 120kg sem hún tók einnig örugglega og var þá komin með nýtt íslandsmet í samanlögðu 222kg. Hún þyngdi að lokum í 123kg og negldi henni upp eins og öllum hinum lyftunum sínum og bætti þar sitt eigið Íslandsmet í jafnhendingu um 2 kg og 5 kg í samanlögðu eða 225kg frá því fyrir mótið.
Hún varð 4. í B riðli í jafnhendingu og 2. í samanlögðum árangri. Magnaðar 6 öruggar lyftur í hús hjá okkar konu og magnaður árangur á stóra sviðinu í Riyadh.
Alls eru 56 keppendur í 71kg flokknum í 5 riðlum og keppir Eygló eins og áður sagði í B riðli. Endanleg úrslit ráðast þegar þær 10 konur sem keppa í A riðli kl. 19:00 (16:00 á íslenskum tíma) hafa lokið keppni svo vænta má úrslita um kl. 18:00 Fylgjast má með keppni í A riðli hér Uppfært: Alls mættu 53 þátttakendur til keppni í 71kg flokkinum 42 náðu samanlögðum árangri. Eygló hafnaði í 16. sæti í snörun, 21. sæti í jafnhendingu og 17. sæti samanlagt.
Þann 9. September kepptu Amalía Ósk Sigurðardóttir og Katla Björk Ketilsdóttir í 64kg flokki. Í flokknum voru 45 keppendur og 38 sem náðu samanlögðum tölum. Amalía hafnaði í 30. sæti og Katla í því 31. þegar allir riðlar höfðu lokið keppni
Amalía og Katla kepptu báðar í 64kg flokki í morgun.
Katla lyfti best 76kg snatch, 89kg C&J og samanlagt 165kg Amalía lyfti best 77kg snatch, 93kg C&J og samanlagt 170kg
Þær opnuðu báðar í 73kg fallegu snatch. Katla hækkaði í 76kg lyftu sem leit gríðarlega örugg út. Og Amalía fór í 77 kg sem virtist nokkuð örugg. Katla hækkaði þá í 79kg, en komst ekki alveg undir hana. Að lokum fór Amalía í 80kg tilraun, komst undir hana en fékk lyftuna dæmda ógilda. Hrund þjálfari veifaði challenge cardinu, en eftir endurskoðun kviðdóms var lyftan ógild vegna “press out”.
Í C&J hóf Katla kepnina af þeim tveimur. Tók 86kg lyftu örugglega, negldi þvínæst upp 89kg og hækkaði í 91 kg í síðustu lyftunni. Hún stóð upp úr clean, en jerkið vildi ekki alveg alla leið að þessu sinni.
Amalía hóf keppni í C&J með 93kg. Cleanið virkaði mjög létt fyrir hana og hún jerkaði henni upp. Dómararnir gáfu henni tvö hvít og eitt rautt, og lyftan því gild. Hún hækkaði þá í 98kg í annarri tilraun, stóð upp úr cleaninu, en jerkið vildi ekki alla leið upp. Í þriðju tilraun hækkaði hún í 100kg, komst undir cleanið, en náði ekki að standa upp með stöngina.
Í 64kg flokknum er keppt í 4 riðlum og eru tveir riðlar á morgun. Það ræðst því ekki fyrr en annað kvöld, þann 10. september hvar þær raðast í endanlegum úrslitum.
Þessa dagana fer Senior Heimsmeistaramótið í Ólympískum lyftingum fram í Riyadh í Saudi Arabíu. Ísland á þrjá keppendur á mótinu. Hægt er að fylgjast með mótinu á Facebook síðu IWF eða með því að kaupa sér aðgang á weightliftinghous.com
Amalía Ósk Sigurðardóttir keppir í 64 kg flokki 9. september kl. 9:00 (6:00 á íslenskum tíma). Katla Björk Ketilsdóttir keppir í 64kg flokki 9. september kl. 9:00 (6:00 á íslenskum tíma). Alls eru 46 keppendur í 64kg flokknum í 4 riðlum. Útsending hér
Eygló Fanndal Sturludóttir keppir í 71kg flokki 13. september kl. 11:30 (8:30 á íslenskum tíma) Alls eru 56 keppendur í 71kg flokknum í 5 riðlum og keppir Eygló í B riðli. Útsending hér
Amalía Ósk og Katla Björk keppa eins og áður segir báðar í 64 kg flokki. Senior Íslandsmetin í þeim flokki eru 88kg snatch, 107kg C&J og 194kg í samanlögðu. U23 Íslandsmetin (en Katla er enn í þeim flokki) eru 88kg snatch, 106kg C&J og 194kg í samanlögðu og á Katla Björk öll þau met frá Evrópumeistaramótinu í maí 2022 Amalía Ósk á best 84kg snatch, 103kg C&J og 183kg í samanlögðu.
Eygló Fanndal keppir í 71 kg flokki. Hennar besti árangur er jafnframt Íslandsmet í Senior og U23. Íslandsmetin eru 100kg snatch, 121kg C&J og 220kg í samanlögðu.
Hvenær byrjaðir þú að æfa lyftingar? Árið 2016 prófaði ég fyrst ólympískar lyftingar.
Hvers vegna fórstu að æfa lyftingar? Ég keppti á fyrsta mótinu mínu í desember 2016 án þess að kunna neitt eða vita neitt um ólympískar lyftingar, ég datt í rauninni bara inná þetta mót því það var haldið á sama stað og ég var að þjálfa á í Boot Camp Sporthúsinu og það vantaði keppendur. Ég byrjaði síðan að fullri alvöru í íþróttinni árið 2019 eftir að ég varð íslandsmeistar overall kvenna og í mínum þyngdarflokk (-64) á íslandsmeistaramótinu. Síðan þá hafa ólympískar lyftingar átt hug minn og hjarta.
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar? Allur minn grunnur kemur úr Boot Camp og byrjaði ég að æfa það sem unglingur eftir að hafa prófað margar íþróttir sem ég fann mig aldrei í.
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna? (Í keppni eða á æfingu) Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna? (Í keppni eða á æfingu)
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til? Nokkuð mörg íslandmet og íslandsmeistaratitlar. Einnig að keppa á HM og EM.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna? Ég á mér enga fyrirmynd en Sarah Davies og Mattie Rogers eru algjörir töffarar.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra? Njóttu ferðalagsins eins mikið og þú getur, það er það sem skiptir mestu máli þegar uppi er staðið en ekki áfangastaðurinn. Ekki reyna að komast á toppinn á einni nóttu, það er ekki hægt og ekki fara framúr þér.
Hvers vegna fórstu að æfa lyftingar? Byrjaði í crossfit og fannst lyftingar skemmtilegar
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar? Fimleika og crossfit. Keppti á heimsleikum í 16-17 ára árið 2018
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna? (Í keppni eða á æfingu) Clean and Jerka 100kg í fyrsta skipti er lyftan sem ég man mest eftir.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til? 194kg total á EM 2022 fullorðinna.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna? Engin sérstök fyrirmynd. Skemmtilegt að fylgjast með öllum sterku lyfturunum bara.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra? Setja tækni nr. 1, 2 og 3. Hafa gaman, lyftingarnar eiga að vera skemmtilegar.
Annað sem þig langar að komi fram… Er ótrúlega spennt að keppa aftur eftir barnsburð.
Hvenær byrjaðir þú að æfa lyftingar? Kynntist lyftingum í gegnum fimleika og crossfit en byrjaði ekki að einblína á lyftingar fyrr en seinni part árs 2020
Hvers vegna fórstu að æfa lyftingar? Komst inn á NM junior 2020 þannig ákvað að taka hlé í crossfit og setja allan fókus á að æfa fyrir það. Svo fór boltinn bara að rúlla og ég hef ekki tekið crossfit æfingu síðan.
Stundaðir þú aðra íþrótt/íþróttir áður en þú fórst í lyftingar? Hverjar og hver eru helstu afrekin þín þar? Já var í áhaldafimleikum og hópfimleikum. Man ekki alveg hvaða afrek voru þar en náði einhverjum Íslandsmeistaratitlum og keppti á NM í hópfimleikum.
Hver er uppáhalds (eftirminnilegasta) lyftan þín á ferlinum og hvers vegna? (Í keppni eða á æfingu) Það verður að vera fyrsta skipti sem ég snaraði 100 kg. Mun aldrei gleyma tilfinningunni og hvað ég var ánægð þegar ég náði því loksins. Mun alltaf vera mjög stolt af þeirri lyftu.
Hver eru þín stærstu afrek í lyftingum hingað til? Klárlega 3 gull á Evrópumeistaramóti U23 og að eiga þyngsta total íslenskra kvenna.
Hver er þín helsta fyrirmynd í lyftingum og hvers vegna? Ég lít mikið upp til Mattie Rogers þar sem mér finnst hún gott dæmi um að þú þarft ekki að vera með allt upp á tíu um leið og þú byrjar til að geta náð árangri. Árangurinn kemur ef þú ert tilbúinn að leggja þig fram og gera þitt besta. Ég man þegar ég byrjaði að lyfta gat ég ekki gert fulla hnébeygju jafnvel þótt ég væri í lyftingarskóm. En það kom með æfingunni og ég er glöð að ég lét það ekki stoppa mig í því að æfa af fullum krafti og reyna að bæta mig.
Hvað myndir þú segja við unga lyftara sem eru að byrja í lyftingum og þú værir helsta fyrirmynd þeirra? Hafa gaman á æfingu og taka þátt á mótum og setja sér markmið. Það er svo gaman að æfa þegar maður hefur einhver markmið til að vinna að.
Dagana 22. – 24. september stendur Lyftingasamband Íslands fyrir þjálfaranámskeiði. IWF Level 1 og IWF Level 2. Sjá dagskrá hér fyrir neðan. Karoliina Lundahl, IWF Coach Developer mun kenna námskeiðið. Þátttakendur þurfa að hafa haldbæra þekkingu á grunnatriðum ólympískra lyftinga s.s. að hafa æft, keppt eða þjálfað lyftingar. Þátttakendur þurfa að vera skráðir í lyftingafélag. Til að nýta tímann sem best munu þátttakendur fá námsefnið sent fyrir námskeiðið og gert er ráð fyrir að þeir lesi sjálfir Level 1 efnið. Það er grunnefni og flestir þátttakendur ættu að vera nú þegar með haldbæra þekkingu á því efni. Það er því hægt að fara beint í Level 2 námsefnið á námskeiðinu sjálfu og nýta þannig tímann með Karoliinu sem best.
Skráningargjald er 10.000,- kr og skal leggja það inn á reikning lyftingasambandsins til að staðfesta skráningu. Námskeiðið er styrkt af IWF Development Program og því getum við boðið meðlimum lyftingafélaga þetta á þessu frábæra verði.
Kt. 430275-0119 Rnr. 0311-26-002992
Fyrirlestrarnir fara fram í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg, sal C og verklegir tímar í Crossfit Reykjavík.
Léttar veitingar og hádegisverður á laugardeginum er innifalinn í verði. Hámarks þáttakendafjöldi er 30