Lyftingar í stórsókn

ÍSÍ hefur birt tölur yfir iðkenndafjölda í sérsamböndum og nefndum fyrir árið 2012. Lyftingar eru þar með mesta prósentu aukningu allra sérsambanda innan ÍSÍ frá fyrri ári eða 56,66% en 166 nýir iðkenndur voru skráðir í lyftingafélag á því ári. Skráðir iðkenndur fara úr 293 í 459 en fjöldi íþróttafélaga stóð í stað og voru 6 talsins.

Kraftlyftingasamband Íslands (KRAFT) eykur líka iðkenndafjöldan um tæp 50% á árinu úr 621 í 939 og óskar stjórn LSÍ þeim til hamingju með árangurinn.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um skýrsluna á vef ÍSÍ: http://isi.is/library/Skrar/Efnisveita/Tolfraedi/I%C3%B0kendur%202012.pdf

Jólamót LSÍ: Úrslit

Lyftingafélag Garðabæjar (LFG) og FH stóðu fyrir Jólamóti LSÍ Laugardaginn 14. Desember.

Mótið var haldið í húsakynnum LFG/Crossfit-XY Miðhrauni 2 í Garðabæ.

Veitt voru verðlaun fyrir stigahæstu einstaklingana í fullorðinsflokkum, unglingaflokkum sem og stigahæsta liðið.

Stigahæstu keppendurnir voru Anna Hulda Ólafsdóttir (LFR) með 226,8 stig og Árni Björn Kristjánsson (LFG) með 285,7 stig og unnu þau fullorðinsflokkana.

 ImageImage

Stigahæstu keppendur í 20 ára og yngri flokkunum voru Emil Ragnar Ægisson (UMFN) með 247,4 stig og Auður Ása Maríasdóttir (LFG) með 172,1 stig.

 Image

Image

Stigahæstu keppendur í 17 ára og yngri flokkunum voru Hilmar Örn Jónsson (FH) með 254,4 stig og Lilja Lind Helgadóttir (Ármann) með 191,2 stig.

 Image

Image

Heildarúrslit má nálgast hér: https://www.dropbox.com/s/vsmxs5w70wum96m/urslit_jolamot_lsi.pdf

Stigahæsta liðið var liðið Team Sportstöðin með skorið 830, þeirri nýstárlegu aðferð var beitt

að skala upp stig kvennakeppenda með stuðlinum 1,34 til að jafna út Sinclair stigatöluna:

Davíð Björnsson (224)

Árni Freyr Bjarnason (257)X

Þuríður Erla Helgadóttir (289)X

Hjördís Ósk Óskarsdóttir (284)X

Image

Önnur lið:

Team Kraftastöðin

Sigurður Hafsteinn Jónsson (261)

Kristbjörn Hilmir Kjartansson (232)

Daníel Róbertsson (267)

LFG 1

Gerður Sif Stefánsdóttir

Rakel Másdóttir

Auður Ása Maríasdóttir

Stefán Snær Stefánsson (C)

Sara Dögg

Sigurður Stefánsson

Jónas Stefánsson

LFG 2

Kolbrún Benediktsdóttir

Gunnhildur Georgsdóttir (C)

Þórdís Georgsdóttir

Unnar Helgason

Aldís Ösp Guðrúnardóttir

Baldvin Ásgeirsson

LFG 3

Andri Gunnarsson

Sólveig Sigurðardóttir (C)

Stefán Þór Sigtryggsson

Einar Jónsson

Arnfríður Kristín Arnardóttir

Vilborg Þórðardóttir

Svanhildur Vigfúsdóttir

LFG 4

Lilja Lind Helgadóttir

Árni Björn Kristjánsson

Hilmar Örn Jónsson (C)

Vignir Valgeirsson

Haukur Einarsson

Erla Sigurlaug

Guðmundur Sigurðsson gaf einnig hvatningarverðlaun fyrir „Bestu tæknina“ og hlutu Þuríður Erla Helgadóttir og Árni Freyr Bjarnason þá gripi.

Í kvennaflokki var háð hörð barátta um fyrstu þrjú sætin, Anna Hulda Ólafsdóttir byrjaði á því að tvíbæta íslandsmet sitt í snörun fyrst 73kg og þá 75kg. Þuríður Erla Helgadóttir átti góða tilraun á jöfnuna á því meti 73kg. Í jafnhendingunni lyfti Hjördís Ósk Óskarsdóttir nýju íslandsmeti 91kg í jafnhendingu en Anna Hulda svaraði því með lyfta 92kg í loka lyftunni. Hjördís Ósk lyfti 67kg í snörun og 91kg í jafnhendingu eða kílói meira en Þuríður Erla Helgadóttir (70+87)

en varð að láta undan í stigakeppninni þar sem hún vigtaðist 2kg þyngri inn í keppnina. Anna Hulda sýndi því magnaða frammistöðu enn og aftur á árinu með því að setja ný íslandsmet í öllum greinum og bæta samanlagðan árangur um 7kg.

Sólveig Sigurðardóttir úr LFG tvíbætti íslandsmet í stúlknaflokki (20 ára og yngri) í snörun fyrst 46kg og þá 48kg. Lilja Lind Helgadóttir ætlaði sér stóra hluti á mótinu eftir að hafa unnið norðurlandameistaratitil meyja (17 ára og yngri) í síðasta mánuði , hún missti 67kg í opnunarþyngd í snörun en kom vel til baka með jöfnun á íslandsmeti 70kg í annari tilraun. Hún fór síðan beint í 76kg sem var tilraun til nýs norðurlandamets í meyjaflokki en hafði það ekki, hún jafnhattaði síðan 85kg.

Í karlaflokkum stóð upp úr árangur Hilmars Arnar Jónssonar sem keppti undir merkjum FH en hann setti ný íslandsmet í öllum lyftum í 94kg flokki drengja (17 ára og yngri). Þetta var fyrsta lyftingamót Hilmars en hann er sleggjukastari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokk, mikið efni þar á ferð.

Árni Björn Kristjánsson bætti persónulegan árangur í samanlögðu skori þegar hann lyfti 115kg í snörun og 146kg í jafnhendingu og dugði það honum í fyrsta sætið í karlaflokki. Ármenningarnir Daníel Róbertsson, Sigurður Hafsteinn Jónsson og Árni Freyr Bjarnason börðust um næstu sæti þar á eftir.

Aðstandendur mótsins vilja koma fram þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn við framkvæmd þessa móts; LFG/crossfit-XY fyrir húsakynni sem og fjölda sjálfboðaliða, stjórnarliða LSÍ sem störfuðu í dómgæslu og á ritaraborði sem og annarra sjálfboðaliða.

Dómarar mótsins voru:

Sigmundur Davíðsson

Lárus Páll Pálsson

Guðmundur Högni Hilmarsson

Guðmundur Helgason

Guðmundur Sigurðsson

Grímur Jónsson

Stefnir Snorrason

Ef einhver hefur tekið skemmtilegar myndir af mótinu má endilega benda á þær hérna í comment dálknum

Jólamót LSÍ: Uppfærður tímaseðill og keppendalisti

Vigtun KVK: 9:00-10:00

11:00-13:00 KVK flokkar: 58kg, 63kg, 75kg og +75kg

13:00-15:00 KVK flokkar: 69kg

Vigtun KK: 13:00-14:00

15:00-16:30 KK flokkar: 69kg, 77kg, 85kg

16:30-18:00 KK flokkar: 94kg, 105kg, +105kg

Við viljum hvetja keppendur til að vera mættir tímalega til vigtunar og keppni.

Einnig hvetjum við þá keppendur sem ekki hafa gengið frá greiðslu á eigin vegum eða í gegnum klúbb að ganga frá því !

Þátttökugjald er 1000kr og greiðist við skráningu inná reikning 311-26-2992 kt: 430275-0119

Skráningarlistinn inniheldur 47 eftirfarandi keppendur:

Svanhildur Vigfúsdóttir LFG/Ármann 58kg KVK
Vilborg Þórðardóttir LFG/Ármann 58kg KVK
Anna Hulda Ólafsdóttir LFR 63kg KVK
Þuríði Erlu Helgadóttur Ármann 63kg KVK
Aðalheiður Sigfúsdóttir LFG/Ármann 63kg KVK
Þuríður Erla Helgadóttir Ármann 63kg KVK
Hjördís Ósk Óskarsdóttir Ármann 63kg KVK
Aldís Ösp Guðrúnardóttir LFG/Ármann 63kg KVK
Hafdís Ýr Óskarsdóttir UMFN/Massi 63kg KVK
Freyja Mist Ólafsdóttir LFR 69kg KVK,u20,u17
Gerður Sif Stefánsdóttir LFG/Ármann 69kg KVK
Rakel Másdóttir LFG/Ármann 69kg KVK,u20
Gunnhildur Georgsdóttir LFG/Ármann 69kg KVK
Þórdís Georgsdóttir LFG/Ármann 69kg KVK
Sólveig Sigurðardóttir LFG/Ármann 69kg KVK,u20
Fríða Dröfn Ammendrup Ármann 69kg KVK
Birgit Rós Becker LFR 69kg KVK
Sara Dögg Svanhildardóttir LFG/Ármann 69kg KVK
Arnfríður Kristín Arnardóttir LFG/Ármann 69kg KVK
Þóra Elísabet Magnúsdóttir LFG/Ármann 69kg KVK
Kolbrún Benediktsdóttir LFG/Ármann 75kg KVK
Auður Ása Maríasdóttir LFG/Ármann 75kg KVK,u20
Lilja Lind Helgadóttir Ármann 75kg KVK,u20,u17
Erla Sigurlaug Sigurðardóttur LFG/Ármann 75kg KVK
Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir Ármann 75kg+ KVK
       
Haukur Einarsson LFG/Ármann 69kg KK,u20
Sindri Freyr Arnarsson UMFN 69kg KK
Stefán Snær Stefánsson LFG/Ármann 77kg KK
Emil Ragnar Ægisson UMFN 77kg KK,u20
Kristbjörn Hilmir Kjartansson N/A 85kg KK
Unnar Helgason LFG/Ármann 85kg KK
Einar Jónsson LFG/Ármann 85kg KK
Vignir Valgeirsson LFG/Ármann 85kg KK,u20
Davíð Björsson Ármann 85kg KK,u20
Arnar Sigurðsson Ármann 85kg KK
Hilmar Örn Jónsson FH 94kg KK,u20,u17
Hilmar Örn Jónsson LFG/Ármann 94kg KK,u20
Sigurður Hafsteinn Jónsson Ármann 94kg KK
Baldvin Ásgeirsson LFG/Ármann 94kg KK
Árni Freyr Bjarnason Ármann 94kg KK
Daníel Róbertsson Ármann 94kg KK
Jónas Stefánsson LFG/Ármann 105kg KK
Árni Björn Kristjánsson LFG/Ármann 105kg KK
Stefán Þór Sigtryggsson LFG/Ármann 105kg KK
Sigurður Stefánsson LFG/Ármann 105kg KK
Andri Gunnarsson LFG/Ármann 105kg+ KK
Einar Orri Pétursson     KK

Íslandsmet hafa verið uppfærð

Skráningar á íslandsmetum hafa verið uppfærðar fyrir jólamótið og má sjá undir Íslandsmet hérna á síðunni.

Alls hafa verið sett á árinu 26 íslandsmet í fullorðinsflokkum og  14 íslandsmet í unglingaflokkum. Þau eru eftirfarandi:

Anna Hulda Ólafsdóttir: 2 íslandsmet í 58kg flokki og 6 íslandsmet í 63kg flokki

Hrannar Guðmundsson: 6 íslandsmet í 77kg flokki

Lilja Lind Helgadóttir: 2 íslandsmet í 75kg flokki og 3 íslandsmet í +75kg flokki, þau met eru einnig stúlkna(-20 ára) og meyja(-17 ára) met

Katrín Tanja Davíðsdóttir: 3 íslandsmet á árinu í 69kg flokki og þau met eru einnig stúlkna(-20 ára) met

Sigurður Bjarki Einarsson: 3 íslandsmet í 94kg flokki

Björgvin Karl Guðmundsson: 1 íslandsmet í 85kg flokki

Darri Már Magnússon: 1 íslandsmet í drengjaflokk(-17 ára)

Veitt verða sérstök verðlaun á jólamóti LSÍ fyrir stigahæstu unglingana í öllum flokkum og hvetjum við unga lyftingamenn til að koma og reyna sig. Skráning fer fram á lsi@lsi.is. Skráningarfrestur er til 10.Desember.

Ef einhverjar meta skráningar hafa farið framhjá stjórninni bendum við á að senda athugasemdir á lsi@lsi.is.