Ísland náði í fjölmörg verðlaun á Smáþjóðamótinu

Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum haldið í Miðgarði í Garðabæ, laugardaginn 14. mars.

Efri röð: Sigurður Darri Rafnsson, þjálfari og Ingi Gunnar Ólafsson, þjálfari
Neðri röð: Emilía Nótt Davíðsdóttir, -69 kg, Katla Björk Ketilsdóttir, -63 kg, Guðný Björk Stefánsdóttir, -77 kg, Þórbergur Ernir Hlynsson, -110 kg, Kristófer Logi Hauksson, -88 kg og Tindur Eliasen, -88 kg.

Heildarúrslit má nálgast hér og í gagnagrunni sambandsins hér

Liðakeppni – úrslit

  1. sæti – Kýpur
  2. sæti – Ísland
  3. sæti – Malta
  4. sæti – Monakó
  5. sæti – San Marínó
  6. sæti – Luxemborg
  7. sæti – Færeyjar

Karlar – úrslit

  1. sæti – Dimitris Minasidis, – 71 kg, Kýpur, samanlögð þyngd 257 kg og 387.028 Sinclair stig
  2. sæti – Þórbergur Ernir Hlynsson, – 110 kg, Ísland, samanlögð þyngd 323 kg og 360.384 Sinclair stig
  3. sæti – Antreas Constantinou, – 88 kg, Kýpur, samanlögð þyngd 273 kg og 345.779 Sinclair stig

Konur – úrslit

  1. sæti – Guðný Björk Stefánsdóttir, -77 kg, Ísland, samanlögð þyngd 215 og 266.186 Sinclair stig
  2. sæti – Katla Björk Ketilsdóttir, – 63 kg, Ísland, samanlögð þyngd 193 kg og 256.895 Sinclair stig
  3. sæti – Tenishia Thornton, -69 kg, Malta, samanlögð þyngd 201 kg og 253.6060 Sinclair stig

Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum (European Small Nations Tournament) fór fram við frábærar aðstæður í húsakynnum lyftingadeildar Stjörnunnar í Miðgarði í Garðabæ á dögunum. Mótið heppnaðist afar vel og var bæði keppendum og gestum til mikillar ánægju.

Alls tóku 29 keppendur frá sjö löndum þátt í mótinu. Auk Íslands mættu til leiks lið frá Færeyjum, Mónakó, Lúxemborg, San Marínó, Kýpur og Möltu. Keppnin var spennandi og sýndu keppendur frá þessum smærri þjóðum Evrópu mikla færni, styrk og íþróttamennsku.

Aðstaðan í Miðgarði reyndist afar vel til mótahalds og skapaði góðan ramma utan um keppnina. Sjálfboðaliðar LSÍ og lyftingadeildar Stjörnunnar lögðu mikið á sig við undirbúning og framkvæmd mótsins og áttu stóran þátt í því hversu vel tókst til.

Slík mót gegna mikilvægu hlutverki í að efla tengsl milli smærri lyftingaþjóða Evrópu og gefa íþróttafólki tækifæri til að etja kappi við jafnoka sína á alþjóðlegum vettvangi.

Að lokum vill Lyftingasamband Íslands færa öllum samstarfsaðilum mótsins kærar þakkir fyrir stuðninginn. Sérstakar þakkir fá aðalsamstarfsaðilar LSÍ, Craft og Gatorade. Einnig eru Garðabæ, lyftingadeild Stjörnunnar, SBD, Hertz, Lux veitingar, Hótel Vellir, Katla Fitness, Sonik, BerndsenPhoto og Velmerkt þökkuð fyrir gott samstarf og mikilvægan stuðning við framkvæmd mótsins. LSÍ vill einnig færa Evrópska lyftingasambandinu, dómurum og öllum þátttökuþjóðum kærar þakkir fyrir ánægjulega samveru sem styrkir enn frekar tengsl og samstarf þjóðanna.

Smáþjóðamótið í Garðabæ staðfesti enn og aftur þann metnað og fagmennsku sem einkennir öflugt samfélag ólympískra lyftinga.

Ljósmyndir: Baldvin Berndsen

Færðu inn athugasemd