Landslið Íslands á Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum (European Small Nations Weightlifting Tournament)
Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum (European Small Nations Weightlifting Tournament) fer fram laugardaginn 14. mars í frábærri aðstöðu lyftingadeildar Stjörnunnar í Miðgarði, Garðabæ. Þetta verður í 47. sinn sem mótið fer fram og það á því ríkulega sögu. Keppendur frá sjö löndum taka þátt, þau eru: Malta, Mónakó, Kýpur, San Marínó, Lúxemborg, Færeyjar og Ísland.
Mótið hefst kl. 11:00, frítt inn og allt í beinu streymi á youtube.com/@IcelandicWeightlifting.
Sérstakar þakkir til samstarfsaðila okkar ![]()
Senior (fullorðinsflokkur)
Guðný Björk Stefánsdóttir, f. 2001, keppir í -77 kg flokki
Katla Björk Ketilsdóttir, f. 2000, keppir í -63 kg flokki
Tindur Eliasen, f. 2005, keppir í -88 kg flokki
Þórbergur Ernir Hlynsson, f. 2005, keppir í -110 kg flokki
Junior (unglingaflokkur)
Emilía Nótt Davíðsdóttir, f. 2006, keppir í -69 kg flokki
Kristófer Logi Hauksson, f. 2008, keppir í -88 kg flokki
Miðgarður, Garðabæ
Laugardagurinn 14. mars frá kl. 11:00
Frítt inn – í beinu streymi á youtube.com/@IcelandicWeightlifting

