Lyftingasamband Íslands og New Wave Iceland hefja samstarf

Lyftingasamband Íslands (LSÍ) og New Wave Iceland (NWI), umboðsaðili Craft á Íslandi, hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að NWI mun útvega keppendum og þjálfurum landsliðs LSÍ æfinga- og ferðafatnað frá hinu þekkta íþróttavörumerki Craft.

Samstarfið er liður í því að efla umgjörð íslenskra lyftingamanna og tryggja að keppendur og þjálfarar klæðist vönduðum fatnaði sem styður við þægindi og fagmennsku, bæði á æfingum og í keppnisferðum innanlands sem utan.

Craft er alþjóðlega viðurkennt vörumerki á sviði íþróttafatnaðar og er þekkt fyrir vandaða hönnun, tæknileg efni og mikla áherslu á gæði og endingu. Með samstarfinu fá keppendur og þjálfarar LSÍ aðgang að fatnaði sem hentar kröfum afreksíþróttafólks.

Aðilar eru sammála um að samstarfið muni styrkja ímynd íslenskra lyftinga og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi.

Heimasíða Craft á Íslandi er https://craftverslun.is/.

Á myndinni má sjá þau Eygló Fanndal Sturludóttur Íþróttamann ársins, Þórberg Erni Hlynsson Norðurlandameistara ungmenna, Harald Jens Guðmundsson framkvæmdastjóra NWI og Arnór Ásgeirsson framkvæmdastjóra LSÍ, við undirritun samnings.
Eygló Fanndal Sturludótttir og Þórbergur Ernir Hlynsson.

Landsliðsviðmið 2026 og uppfærð Íslandsmet

Stjórn LSÍ samþykkti landsliðsviðmið fyrir 2026 á síðasta stjórnarfundi og nálgast má þau hér á heimasíðunni undir Lög og reglugerðir

Einnig var samþykktar breytingar á íslandsmetum í fullorðinsflokk og metin lækkuð sem nemur 10 Q-stigum í kvennaflokk og 12 Q-stigum í karlaflokk. Öll met verða endurreiknuð frá 1.Júní 2025. Sjá nýja met standarda hér að neðan (endurreiknun á results.lsi.is mun birtast á næstu dögum):

Íslandsmótið í ólympískum lyftingum 2026 – Skráning er hafin!

Skráningareyðublað fyrir Íslandsmót LSÍ í ólympískum lyftingum þann 7. febrúar 2026*.
Skráningu lýkur 30. janúar 2026 kl. 23:59.

Mótið er í umsjá Lyftingafélags Mosfellsbæjar og Lyftingasambands Íslands og fer fram í Miðgarði, Garðabæ í aðstöðu Stjörnunnar.

Mótið er þyngdarflokkamót þar sem verðlaunað er fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki af hvoru kyni. Einnig eru verðlaun veitt fyrir hæsta samanlagðan árangur karla og kvenna.

Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn skráir sig í, hægt er að skipta um þyngdaflokk þar til daginn fyrir mót. Vinsamlegast sendið þyngdarflokkabreytingar á lsi@lsi.is*.

*Á mótum þar sem keppt er í þyngdarflokkum hljóta keppendur 15 ára og yngri keppnisrétt í þeim flokki sem þeir vigtast inn í. Ef keppendur eru of léttir fyrir skráðan flokk fara þeir niður um flokk og ef þeir eru of þungir fyrir skráðan flokk fara þeir upp um flokk. 16 ára og eldri þurfa að vigtast inn í þann flokk sem þeir eru skráðir í á mótum sem keppt er í þyngdarflokkum á, en annars fyrirgera þeir rétti sínum til að keppa.

Upplýsingar um keppendur verða einungis notaðar í tengslum við mótið.
Upplýsingar um keppendur hvers félags verða sendar á forsvarsmenn félaganna til staðfestingar.Keppnisgjald er kr. 7500,- og greiðir félag keppanda heildarupphæð til mótshaldara.

*Stefnt er að því að hefja keppni kl. 10:00