Stjórn LSÍ hefur valið lyftingafólk ársins, líkt og fyrri ár samkvæmt 18. grein í lögum LSÍ.
Lyftingakona ársins:

Eygló Fanndal Sturludóttir (f. 2001) – Lyftingafélag Reykjavíkur
- Eygló varð Evrópumeistari kvenna í -71 kg flokki á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Chisinau í Moldóvu í apríl 2025.
- Þar lyfti hún 109 kg í snörun, 135 kg í jafnhendingu og því 244 kg í samanlögðum árangri. Þessi árangur er einstakur í sögu lyftinga á Íslandi en aldrei hefur keppandi orðið Evrópumeistari eða unnið til verðlauna á stórmóti (EM/HM/ÓL) í lyftingum í opnum flokki.
- Fáir Íslendingar hafa orðið Evrópumeistarar í ólympískri íþrótt á sömu forsendum og keppt er í á Ólympíuleikunum.
- Hún varð 2. stigahæsti kvennkeppandinn af 167 keppendum frá 37 Evrópulöndum á mótinu þvert á þyngdarflokka út frá svokölluðum ROBI stigum með 688.6 stig sem er það stigakerfi sem Alþjóðalyftingasambandið notar á Heimsmeistaramótum og Evrópumeistaramótum.
- Zarina Gusalova frá Rússlandi varð önnur á eftir Eygló og keppti undir hlutlausum fána (AIN), Siuzanna Valodzka frá Hvíta-Rússlandi varð í þriðja sæti á mótinu en hún keppir einnig undir hlutlausum fána (AIN). Hún varð í fjórða sæti á ólympíuleikunum í París 2024.
- Sjá má upptöku RÚV af Evrópumeistaratitlinum hér: https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2025-04-17-eyglo-fyrsti-islenski-evropumeistarinn-441805
- Á tímabilinu sem valið er varð Eygló einnig í 4. sæti á Heimsmeistaramótinu 2024 í lyftingum sem fram fór í Bahrein. Þar endaði hún á eftir ríkjandi ólympíumeistara Olivia Reeves, norður-kóreskum keppanda Chun Hui Jong sem varð í öðru sæti og Kínverjanum Qiuxia Yang í þriðja sæti, allt stórþjóðir í ólympískum lyftingum.
- Eygló lyfti 107 kg í snörun og 132 kg í jafnhendingu, alls 239 kg á HM og endaði m.a. fyrir ofan silfurverðlaunahafann frá París 2024, Mari Sanchez, Kólumbíu.
- Þetta er besti árangur Íslendings á HM í ólympískum lyftingum.
- Eygló varð í 31. sæti í kvennaflokki á ROBI stigum á Heimsmeistaramótinu þvert á alla þyngdarflokka, 226 kvennkeppendur frá 75 löndum kepptu á mótinu. Fyrir ofan hana á stigum voru 9 norður-kóreskir keppendur, 8 kínverskir keppendur, 4 kólumbískir, svo einn frá Bandaríkjunum, Egyptalandi, Tæpei, Tælandi, Mongólíu, Dóminíska lýðveldinu, Nígeríu, Suður-Kóreu og Armeníu.
- Eygló varð Íslandsmeistari í -71 kg flokk og stigahæsti keppandinn þvert á þyngdarflokka.
- Eygló keppti með liði Íslands á Smáþjóðamótinu í ólympískum lyftingum þar sem hún náði einnig besta árangri mótsins með 106 kg í snörun og 130 kg í jafnhendingu, samtals 236 kg.
- Eygló bætti sig um 7 kg á tímabilinu og lyfti mest 244 kg og 299.23 Sinclair stig.
- Eygló setti 13 Íslandsmet á tímabilinu í fullorðinsflokki (bæði í -71 kg og -76 kg flokk) og 2 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri (á árinu 2024).
- Eygló setti 4 Norðurlandamet á tímabilinu í -71 kg flokk í snörun, jafnhendingu og samanlögðum árangri. Metið í jafnhendingu voru í eigu hinnar sænsku Patriciu Strenius sem varð Evrópumeistari 2018 í -69 kg flokk og 2022 í -71 kg flokk, í þriðja sæti á HM 2021 og í 4. sæti á ÓL 2020 í -76 kg flokki en Eygló átti sjálf metin í snörun og samanlögðum árangri.
- Nýir þyngdarflokkar tóku gildi 1. júní 2025 og á Eygló ennþá eftir að keppa í þeim en hún hefur verið frá vegna meiðsla og þurfti m.a. að draga sig úr keppni fyrir HM 2025 sem fram fór í Noregi.
- Wikipedia síða Eyglóar sem fer vel yfir feril hennar til þessa.
Lyftingakarl ársins:

Bergur Sverrisson (f. 1994) – Lyftingadeild Knattspyrnufélags Akureyrar (KA)
- Bergur keppti á fjórum mótum á tímabilinu en bestum árangri náði hann á Evrópumeistaramótinu í Chisinau í Moldóvíu þar sem hann endaði í13. sæti í -89 kg flokki.
- Bergur lyfti 140 kg í snörun og 162 kg í jafnhendingu, alls 302 kg samanlagt sem gáfu honum 365 Sinclair stig.
- Hann varð stigahæstur karlkeppenda á Jólamótinu 2024 með 140 kg í snörun og 160 kg í jafnhendingu, alls 364.2 Sinclair stig.
- Hann var í liði Íslands sem vann Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum.
- Hann keppti á Heimsmeistaramótinu í Förde í Noregi þar sem hann varð í 19. sæti í -88 kg flokki. Þar lyfti hann 135 kg í snörun og 158 kg í jafnhendingu.
- Bergur setti þrjú Íslandsmet á árinu.
Ungmenni ársins karlar flokkur 18-20 ára:

Þórbergur Ernir Hlynsson (f. 2005) – Lyftingafélag Reykjavíkur
- Þórbergur keppti á sex mótum á árinu, en árið var það síðasta í flokki 20 ára og yngri.
- Hann varð Norðurlandameistari í -110 kg flokki karla þar sem hann lyfti 141 kg í snörun og 178 kg í jafnhendingu, samanlagt 319 kg.
- Hann varð einnig stigahæstur allra karlkeppenda þvert á þyngdarflokka á Norðurlandamóti unglinga aðeins 0.6 stigum hærri en næsti keppandi Eliel Jännes frá Finnlandi. Afrek sem fáir ef einhver Íslendingur hefur náð í karlaflokki.
- Þessi árangur gaf honum 354,4 Sinclair stig og 371 Q-stig, q-stig eru nýleg stigaformúla sem hefur verið að riðja sér til rúms í lyftingum og er talin réttari en Sinclair stig. Bestu lyftarar á Norðurlandamótum eru reiknaðir í Q-stigum.
- Hann varð Íslandsmeistari í-102 kg flokki karla með 135 kg í snörun og 172 kg í jafnhendingu. Hann varð einnig stigahæstur allra karla á mótinu.
- Hann varð í 11. sæti á Heimsmeistaramóti unglinga í-102 kg flokki 20 ára og yngri og lyfti 140 kg í snörun og 163 kg í jafnhendingu, samtals 303 kg.
- Hann varð stigahæstur allra karla á Grétarsmótinu á Akureyri.
- Hann féll úr keppni á Evrópumeistaramóti unglinga í -110 kg flokki 20 ára og yngri eftir að hafa snarað 140 kg á opnunarþyngd 170kg.
- Þórbergur setti 3 íslandmet í fullorðinsflokki á tímabilinu, 15 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 15 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.
Ungmenni ársins konur flokkur 18-20 ára:

Bergrós Björnsdóttir (f. 2007) – Lyftingafélag Reykjavíkur
- Bergrós keppti aðeins á einu móti á árinu, Grétarsmótinu þar sem hún varð stigahæst kvenna með 85 kg í snörun og 108 kg í jafnhendingu, samanlagt 193 kg í -77 kg flokki kvenna.
- Þessi árangur gaf henni 235.9 Sinclair stig
- Hún setti 9 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 6 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.
Ungmenni ársins karlar flokkur 16-17 ára:
Kristófer Logi Hauksson (f. 2008) – Lyftingafélag Kópavogs

- Kristófer keppti á sex mótum á tímabilinu bæði í -89 kg flokki, -81 kg flokki og -88 kg flokki.
- Bestum árangri náði hann á Haustmóti LSÍ þar sem hann snaraði 100 kg og jafnhenti 116 kg, samtals 216 kg í -88 kg flokik sem gáfu honum 271,8 Sinclair stig.
- Hann vann silfur á Norðurlandamóti unglinga í -88 kg flokki karla 17 ára og yngri
- Hann setti 7 Íslandsmet í flokki 17 ára og yngri, 3 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 3 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri á tímabilinu allt í -88 kg flokki.
Ungmenni ársins konur flokkur 16-17 ára:

Steindís Elín Magnúsdóttir (f. 2008) – Lyftingafélag Reykjavíkur
- Steindís keppti á fjórum mótum á tímabilinu í -69 kg flokki og -71 kg flokki.
- Bestum árangri náði hún á Norðurlandamóti unglinga þar sem hún varð í 6. sæti í -69 kg flokki kvenna 17 ára og yngri með 6 4kg í snörun og 84 kg í jafnhendingu, samtals 148 kg og 185.5 Sinclair stig.
- Hún varð í 12. sæti á Evrópumeistaramóti 17 ára og yngri sem fram fór í Madrid á Spáni í -69 kg flokki þar sem hún lyfti 63 kg í snörun og 83 kg í jafnhendingu.
- Hún setti 7 Íslandsmet á árinu í -69 kg flokki kvenna 17 ára og yngri, 5 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 5 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.
Ungmenni ársins flokkur 15 ára og yngri:
Theodór Einar Magnússon (f. 2010) – Lyftingafélag Reykjavíkur
- Theodór keppti á tveimur mótum á tímabilinu.
- Bestum árangri náði hann á Íslandsmeistaramóti unglinga þar sem hann varð í fyrsta sæti í -73 kg flokki 15 ára og yngri og lyfti 60 kg í snörun og 75 kg í jafnhendingu, samtals 135 kg og 191.9 Sinclair stig.
- Hann setti 9 Íslandsmet í -61 kg flokki 15 ára og yngri og 3 Íslandsmet í -73 kg flokki 15 ára og yngri á tímabilinu.
Ungmenni ársins flokkur 15 ára og yngri:
Úlfdís Silja Skúladóttir Waage (f. 2014) – Kraftlyftingafélag Akureyrar
- Úlfdís keppti á Páskamóti KFA í lyftingum í -49 kg flokki aðeins 11 ára gömul.
- Hún snaraði 12 kg og jafnhenti 15 kg, samtals 27 kg sem gáfu henni 43.7 Sinclair stig.