Eygló Fanndal Sturludóttir varð norðurlandameistari í ólympískum lyftingum núna um síðastliðna helgi sem haldið var í Færeyjum en hún keppti þar ásamt átta öðrum keppendum frá Íslandi. Eygló sýndi heimsklassa árangur og fékk gildar 5/6 lyftum mest 104kg í snörun og 130kg í jafnhendingu. Hún átti frábæra tilraun við 134kg og nýtt norðurlandamet í loka tilrauninni sinni en rétt missti hana aftur fyrir sig í loka stöðu. Þetta var fyrsti norðurlandameistaratitill Eyglóar og einnig varð hún fyrsti íslendingurinn til þess að verða stigahæsti keppandi mótsins. Fjórir aðrir íslenskir keppendur unnu bronsverðlaun sem nánar er farið yfir hér að neðan.

Íslenska landsliðið sýndi frábæra frammistöðu þrátt fyrir að hafa staðið frammi fyrir ferðatengdum hindrunum vegna óhagstæðs veðurs til lendinga í Færeyjum, en hluti keppenda þurfti að fljúga í gegnum París og aðrir í gegnum Kaupmannahöfn til að komast á leiðarenda og því miður náðu náðu ekki keppandin Erla Ágústdóttir og alþjóða dómarinn Árni Rúnar Baldursson á leiðarenda. Amalía Ósk Sigurðardóttir lenti svo í því leiðindaratviki að ná ekki vigt en keppendur verða að vigtast inn í þann þyngdarflokk sem þeir eru skráðir.
Engu að síður sýndu íslensku keppendurnir svo sannarlega hvað í þeim býr og undirstrikuðu seiglu sína og ákveðni.

Heildar úrslit frá mótinu má nálgast á heimasíðu norðurlandasambandsins eða í gagnagrunni lyftingasambandsins.
Einnig má nálgast upptöku af mótinu á youtube rás Færeyska Lyftingasambandsins: https://www.youtube.com/live/Qj8cCGmKNtQ
Athygli skal vakin á því að þetta er fyrsta norðurlandamótið þar sem keppt er í sérstökum og færri þyngdarflokkum en hefð er fyrir í lyftingum. Í kvennaflokki var keppt í -55kg flokk, -59kg flokk, -64kg flokk, -71kg flokk – 81kg flokk og +81kg flokk. Í karlaflokki -73kg flokk, -81kg flokk, -89kg flokk, -96kg flokk, -102kg flokk og +102kg flokk. Í gagnagrunni sambandsins gæti því verið ruglingslegt að lesa úrslitin.

Einnig var í fyrsta sinn sem Færeyingar halda norðurlandamót í ólympískum lyftingum eftir að þeir fengu aðild að norðurlandasambandinu 2022 og tókst mótið gríðarlega vel og greinilegt að færeyjingar hafa betri aðstöðu til keppni í lyftingum en mörgt önnur lönd þar með talið Ísland.

Íþróttahöll þeirra Færeyjinga
Guðný Björk Stefánsdóttir varð þriðja í -71kg flokkinum og lyfti hún 96 kg í snörun og 110 kg í jafnhendingu, samtals 206 kg. Hún stóð upp með 122kg í þriðju tilraun í jafnhendingu eftir að hafa gert 115kg ógilt. Guðný var einnig sæmd Elite Pin Norðurlandasambandsins á mótinu og er hún 8. Íslendingurinn (4. konan) til að hljóta þá viðurkenningu, en Elite Pin er viðurkenning sem veitt er þeim sem ná ákveðnum árangri eftir stöðlum Norðurlandanna.

Katla Björk Ketilsdóttir varð þriðja í -64kg flokkinum og lyfti hún 86 kg í snörun og 98 kg í jafnhendingu, samtals 184 kg. Hún vann einnig brons á NM 2021 með sama total 81/103=184kg.

Reynsluboltinn Þuríður Erla Helgadóttir varð þriðja í -59 kg flokkinum og lyfti hún 77 kg í snörun og 104 kg í jafnhendingu eftir smá bras í snörun og opnun í jafnhendingu, samtals 181kg. Þetta var fyrsta norðurlandamót hennar síðan 2019.

Þórbergur Ernir Hlynsson er á blússandi siglingu og varð þriðji í -96 kg flokkinum og lyfti hann 132 kg í snörun og 162 kg í jafnhendingu, samtals 294 kg. Þrátt fyrir að fá ógilt á báðar opnunarlyfturnar sýnar. Þórbergur er aðeins 19 ára og því gjaldgengur á norðurlandamót unglinga sem fram fer í Nóvember og á Evrópumeistaramóti 20 ára og yngri sem hefst um helgina og hann er meðal keppenda!

Axel Guðni Sigurðsson keppti í -89kg flokki og var grátlega nærri því að vinna til bronsverðlauna en hann lyfti jafnmikilli þyngd og þriðja sætið alls 270kg en endaði fjórði. Hinn danski Thomas Ströier lyfti þyngdinni fyrst. Axel fékk aðeins opnunarlyfturnar sínar gildar 120kg í snörun og 150kg í jafnhendingu. Þetta var fyrsta alþjóðlega mótið hans og hann kemur því vonandi reynslunni ríkari í næsta mót.
Snædís Líf Pálmarsdóttir og Thelma Mist Oddsdóttir kepptu í -59kg flokk og enduðu í sjötta og sjöunda sæti en báðar voru nálægt sínum besta árangri. Snædís lyfti 71kg í snörun og 88kg í jafnhendingu samtals 159kg og Thelma 68kg í snörun og 90kg í jafnhendingu alls 158kg.

