Eygló Fanndal Sturludóttir er ein af íþróttamönnum Íslands sem ÍSÍ hefur valið í ólympíuhóp fyrir París 2024 ásamt níu einstaklingum og karlalandsliðinu í handknattleik.

Sjá fréttatilkynningu frá ÍSÍ hér að neðan:
Myndaður hefur verið Ólympíuhópur ÍSÍ sem samanstendur af afreksíþróttafólki sem annað hvort hefur tryggt sig inn á Ólympíuleikana í París 2024 eða er í dauðafæri að komast inn á þá á næstu misserum. Í þessum hópi er afreksíþróttafólk úr sjö íþróttagreinum. Það verður spennandi að fylgjast með þeim næstu vikur og mánuði, en milli íþróttagreina eru mismunandi leiðir til að tryggja sér þátttökurétt.
Anton Sveinn McKee, sundmaður, er sá eini sem hefur nú þegar unnið sér inn þátttökurétt á leikana en vonir eru bundnar við að Ísland muni eiga góðan hóp íþróttafólks á leikunum. Ólympíuleikarnir eru stærsti íþróttavettvangur heims og þar keppa fremstu íþróttamenn heims í íþróttagreinum 32 alþjóðasérsambanda.
Ólympíuhópurinn samanstendur af níu aðilum úr einstaklingsgreinum auk karlalandsliðsins í handknattleik, en hópurinn mun taka breytingum eftir því sem nær dregur leikum og fleiri eða færri aðilar hafa raunhæfa möguleika á þátttöku.
Í hópnum í dag eru:
• Anton Sveinn McKee, sund
• Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingar
• Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut
• Guðni Valur Guðnason, kringlukast
• Hákon Þór Svavarsson, haglabyssuskotfimi
• Hilmar Örn Jónsson, sleggjukast
• Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund
• Thelma Aðalsteinsdóttir, áhaldafimleikar
• Valgarð Reinhardsson, áhaldafimleikar
• Karlalandsliðið í handknattleik
Á næstunni er ætlun ÍSÍ og sérsambanda að vekja athygli á þessu íþróttafólki og þeim viðburðum sem þau eru að keppa á til að vinna sér þátttökurétt á leikana í París, en þeir verða settir föstudaginn 26. júlí nk.
Kynningarmyndband hefur verið sett saman og birt á samfélagsmiðlum ÍSÍ auk þess sem frekara efni bíður birtingar sem ÍSÍ, sérsambönd og íþróttafólkið mun koma á framfæri á næstunni. Vésteinn Hafsteinsson, Afreksstjóri ÍSÍ, heldur utan um Ólympíuhópinn en hann hefur áratuga reynslu, bæði sem þjálfari og afreksíþróttamaður í kringlukasti, og hefur nú þegar tekið þátt í 10 Ólympíuleikum.
Það er von ÍSÍ að hópurinn fái sem mesta athygli og stuðning svo árangur þeirra verði sem bestur. ÍSÍ óskar afreksíþróttafólkinu okkar og teymi góðs gengis í verkefnunum sem framundan eru.