Helgina 16.-17. Nóvember síðastliðin var Norðurlandamót unglinga haldið í Sundsvall í Svíþjóð (e. Youth and Junior). Stór hópur keppenda fór fyrir Íslands hönd eða 14 keppendur á aldrinum 14-20 ára. Samtals 49 íslandsmet voru sett á mótinu og óskum við öllum keppendum til hamingju með frábært mót og ótrúlega árangur.
Íslandsmet
U20 KVK
- Rakel Ragnheiður Jónsdóttir í -59kg þyngdarflokki setti 2 íslandsmet, þá í U20 og U23, og náði 70kg í snörun (e. snatch).
U20 KK
- Axel Máni Hilmarsson í -96kg þyngdarflokki setti 10 Íslandsmet, þá 5 met í U20 og 5 met í U23 í snörun, jafnhendingu (e. Clean and Jerk) og samanlögðu (e. total), sem endaði í 120kg í snörun og 150kg í jafnhendingu.
U17 KVK
- Ásrún Arna Kristmundsdóttir í -64kg þyngdarflokki náði 75kg í jafnhendingu.
- Úlfhildur Unnarsdóttir í -64 þyngdarflokki setti 9 íslandsmet á mótinu, þá í snörun, jafnhendingu og samanlögðu í U15 og jafnhendingu í U17 sem endaði í 56kg snörun og 72kg jafnhendingu. Úlfhildur er 15 ára gömul.
- Birta Líf Þórarinsdóttir í -76kg þyngdarflokki setti 9 íslandsmet á mótinu, þá í snörun, jafnhendingu og samanlögðu í U17, U20 og U23 sem endaði í 74kg í snörun og 92kg í jafnhendingu.
U17 KK
- Brynjar Ari Magnússon í -89kg þyngdarflokki setti 18 íslandsmet, þá í snörun, jafnhendingu og samanlögðu. 9 þeirra voru í U15 og önnur 9 í U17, sem endaði í 108kg í snörun og 130kg í jafnhendingu. Brynjar er 15 ára gamall.
Verðlaunasæti
U20 stelpur
- Rakel Ragnheiður Jónsdóttir náði 1. Sæti í -59kg þyngdarflokki.
- Eygló Fanndal Sturludóttir náði í 3. Sæti í -76kg þyngdarflokki.
U20 strákar
- Snorri Stefnisson náði 3. sæti í -73kg þyngarflokki
- Róbert Þór Guðmarsson náði 3. sæti í -81kg þyngarflokki
- Axel Máni Hilmarsson náði 2. sæti í -96kg þyngarflokki
- Sigurjón Guðnason náði 2. sæti í -109kg þyngarflokki.
U17 stelpur
- Birta Líf Þórarinsdóttir náði 3.sæti í -76kg þyngdarflokki.
U17 strákar
- Brynjar Ari Magnússon náði 2. sæti í -89kg þyngdarflokki.




