Íslandsmeistaramót unglinga (U20 og U17) fer fram laugardaginn 6. ágúst. Lyftingafélag Hafnarfjarðar (LFH) heldur mótið og fer það fram í húsnæði Crossfit Hafnarfjarðar að Hvaleyrarbraut 41, Hafnarfirði.
27 keppendur eru skráðir til leiks (13 kk, 14 kvk) en auk þess eru tveir keppendur í opnum flokki sem freysta þess að ná lágmörkum fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Rovaniemi, Finnlandi þann 1. október.
Tímaseðill er svohljóðandi:
| Vigtun KVK | 08:00-09:00 |
| Vigtun KK | 09:00-10:00 |
| Keppni KVK (Allir flokkar) | 10:00-12:30 |
| Keppni KK (Allir flokkar) | 13:00-15:00 |
Keppendalista má sjá hér: http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-unglinga-u17-og-u20-2016