
Alþjóða Ólympíunefndin (IOC) lét endurprófa sýni úr lyftingamönnum frá Ólympíuleikunum 2008 og 2012. Sjö íþróttamenn skiluðu jákvæðum sýnum úr 2008 prófunum og tíu íþróttamenn úr 2012 prófunum. Þar á meðal er besti lyftingamaður heims síðasta áratuginn, Kazakhstaninn Ilya Ilyin, sem sigraði á leikunum 2008 og 2012 í sínum þyngdarflokk og hefur fjórum sinnum verið kosinn lyftingamaður ársins. Boyanka Kostova sem hefur borið höfuð og herðar yfir aðra keppendur í -58kg flokki kvenna síðustu 2 ár er ein af þeim sem fellur 2012, þar sem hún endaði í 5.sæti. Hún er núverandi evrópu og heimsmeistari í -58kg flokk kvenna.
Alþjóðalyftingasambandið (IWF) hefur nú þegar bannað öllum þessum keppendum þátttöku í RÍÓ. Að auki hefur stjórn alþjóðalyftingasambandsins lagt fram fimm skrefa refsiramma fyrir aðildarlönd sem eru uppvís af lyfjamisnotkun:
#1 13 úthlutunar sæti í Ríó eru tekin af löndum sem tengjast lyfjamisnotkun á tímabilinu sem hægt er að vinna sér inn þátttöku á ólympíuleikunum. Azerbajan (1KK/1KVK), Hvíta-Rússland (1KK), Kazakhstan (1KK/1KVK), Moldova (2KK), Norður-Kórea (1KK/1KVK), Rússland (1KK/1KVK), Rúmenía (1KK), Úsbekistan (1KVK).
#2 Sett er upp sérstök rannsóknarnefnd sem skoðar þau lönd sem eru með 3 eða fleiri jákvæð sýni á ári, ásamt þeim löndum sem voru með 3 jákvæð sýni 2008 og 2012.
#3 Breytingar á lyfjalögum alþjóðasambandsins sem bannar landssambönd sem eru með flest föll á Ólympíuári.
#4 Banna þátttöku allra þeirra sem skiluðu jákvæðum sýnum 2008 og 2012 í Ríó (2016).
#5 Banna þátttöku þeirra landa sem skiluðu samtals 3 jákvæðum sýnum 2008 og 2012 í eitt ár frá öllum lyftingakeppnum. Það eru Kazakhstan, Rússland og Hvíta-Rússland.
Að lokum tilkynnti alþjóðalyftingasambandið úthlutun á sætum til Ríó sem þó þurfa að vera samþykkt af alþjóðaólympíunefndinni. 8 körlum og 11 konum var aukalega úthlutað sætum og fengu eftirfarandi lönd sæti:
Afríka: KEN (KK) / MAR (KVK) MRI (KVK)
Asia: QAT (KK) SRI (KK) / IRQ (KVK) UAE (KVK)
Evrópa: GRE (KK) ISR (KK) / FIN (KVK) LAT (KVK) SWE (KVK)
Eyjaálfa: NRU (KK) / SOL (KVK)
Pan-Ameríka: CHI (KK) GUA (KK) / ARG (KVK) PER (KVK) URU (KVK)
Sérstaklega ánægjulegt er að sjá að Norðulandaþjóðirnar Finnland og Svíþjóð sem voru í 7. og 8. sæti í liðakeppni evrópumeistaramótsins í kvenna flokki fá sæti úthlutuðu ásamt Lettlandi.
Eftirfarandi er listi yfir þá urðu uppvísir af notkun á ÓL 2008 og 2012
2008
KHURSHUDYAN, Hripsime (ARM) – Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
DUDOGLO, Alexandru (MDA) – Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
EVSTYUKHINA, Nadezda (RUS) – dehydrochlormethyltestosterone metabolites (S1.1 Anabolic agents)
TAYLAN, Nurcan (TUR) – Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
SHAINOVA, Marina (RUS) – Dehydrochlormethyltestosterone metabolites and stanozolol metabolites (S1.1 Anabolic agents)
ZAIROV, Intigam (AZE) – Dehydrochlormethyltestosterone (S1.1 Anabolic agents) – Remains suspended due to previous IWF sanction until 21.12.2023
ILYIN, Ilya (KAZ) – Stanozolol (S1.1 Anabolic agents) – Remains provisionally suspended
Bætt við 10.7.2016 í 2008 hópinn
- MARTIROSYAN, Tigran (ARM) / M69kg – Stanozolol, Dehydrochlormethyltestosterone (S 1.1 Anabolic agents)
- HASANOV, Sardar (AZE) – Dehydrochlormethyltestosterone (S 1.1 Anabolic agents)
- OZKAN, Sibel (TUR) – Stanozolol (S 1.1 Anabolic agents)
2012
AUKHADOV, Apti (RUS) – Dehydrochlormethyltestosterone, Drostanolone (S1.1 Anabolic agents)
KOSTOVA, Boyanka (AZE) – Dehydrochlormethyltestosterone, Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
PODOBEDOVA, Svetlana (KAZ) – Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
SAZANAVETS, Dzina (BLR) – Drostanolone, Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
SHKERMANKOVA, Maryna (BLR) – Dehydrochlormethyltestosterone, Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
KALINA, Yuliya (UKR) – Dehydrochlormethyltestosterone (S1.1 Anabolic agents)
ZHARNASEK, Yauheni (BLR) – Dehydrochlormethytestosterone, Stanozolol, Oxandrolone (S1.1 Anabolic agents)
MANEZA, Maiya (KAZ) – Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
ILYIN, Ilya (KAZ) – Dehydrochlormethyltestosterone, Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)
CHINSHANLO, Zulfiya (KAZ) – Oxandrolone, Stanozolol (S1.1 Anabolic agents)