Jólamót LSÍ fór fram 20.Desember í umsjón Lyftingafélags Reykjavíkur eins og áður hefur fram komið hér á síðunni. Heildarúrslit má nálgast í gagnagrunni sambandsins: http://results.lsi.is/meet/jolamot-2015
Veitt voru verðlaun fyrir stigahæstu keppendur í karla og kvennaflokkum en jafnfram 20 ára og yngri og 17 ára og yngri en um helmingur keppenda var 20 ára eða yngri.
U15 = 8
u17 = 6
U20 = 7
U23 = 9
KK/KVK = 11
M35-39 = 3
Ef einhverjir luma af myndum frá mótinu má endilega senda þær á lsi@lsi.is og við munum deilda þeim.
Úrslit
Kvenna flokkur
- Þuríður Erla Helgadóttir (Ármann): 242 Sinclair stig
- Ingunn Lúðvíksdóttir (Ármann): 196,2 Sinclair stig
- Álfrún Ýr Björnsdóttir (LFH): 195,6 Sinclairstig
Karla flokkur
- Emil Ragnar Ægisson (UMFN): 317,8 Sinclair stig
- Einar Ingi Jónsson (LFR): 317,0 Sinclair stig
- Ingólfur Þór Ævarsson (KFA): 304,6 Sinclair stig
Konur 20 ára og yngri
- Margrét Þórhildur Jóhannesdóttir (Ármann): 144,9 Stig
- Íris Hrönn Garðarsdóttir (KFA): 126,4 Stig
- Una Mist Óðinsdóttir (LFR): 110,9 Stig
Karlar 20 ára og yngri
- Eina Ingi Jónsson (LFR): 317 Stig
- Ingimar Jónsson (LFG):259,1 Stig
- Jan Hinrik Hansen (HEN):257,9 Stig
Konur 17 ára og yngri
- Una Mist Óðinsdóttir (LFR): 110,9 Stig
- Andrea Rún Þorvaldsdóttir (Ármann): 110,8 Stig
- Hrafnhildur Finnbogadóttir (Árman): 108,3 Stig
Karlar 17 ára og yngri
- Ingimar Jónsson (LFG): 259,1 Stig
- Arnór Gauti Haraldsson (LFH): 256,2 Stig
- Sigurður Darri Rafnsson (LFR): 247,5 Stig
Fjölmörg Íslandsmet voru sett í ýmsum aldursflokkum.
Þuríður Erla Helgadóttir (Ármann) setti met í jafnhendingu í -58kg flokki (101kg).
Einar Ingi Jónsson (LFR) setti tvö met í jafnhendingu í fullorðinsflokki í -69kg flokki 129kg og 132kg, það voru einnig met í flokki 20 ára og yngri sem og 23 ára og yngri.
Matthías Abel Einarsson (Hengill) sett met í öllum lyftum í -62kg flokki U15,U17,U20 og U23 og standa nú metin í 58kg í snörun og 70kg í jafnhendingu.
Emil Ragnar Ægisson (UMFN) setti ný met í -77kg flokki 23 ára og yngri, 112kg í snörun og 138kg í jafnhendingu.
Ingimar Jónsson (LFG) setti ný met í jafnhendingu og samanlögðum árangri í -85kg flokki 17 ára og yngri með 115kg og síðan 121kg.
Sindri Ingvarsson (Ármanni) bætti sín eigin met í -94kg flokki karla 15 ára og yngri þegar hann snaraði 77kg og jafnhenti 87kg.
Ingun Lúðvíksdóttir (Ármanni) bætti met í -69kg öðlingaflokki 35-39ára kvenna þegar hún snaraði 70kg og jafnhenti 85kg.
Erna Héðinsdóttir (LFR) setti met í öllum lyftum í -75kg öðlingaflokki 39-39ára kvenna og standa metin 60kg í snörun og 71kg í jafnhendingu.
Hrafnhildur Finnbogadóttir (Ármanni) setti tvö met í snörun og eitt í jafnhendingu í -63kg flokki kvenna 15 ára og yngri þegar hún snaraði 32kg og 35kg. Hún jafnhenti 42kg.
Una Mist Óðinsdóttir (LFR) og Andrea Rún Þorvaldsdóttir (Ármann) skiptust á að setja met í -69kg flokki kvenna 15 ára og yngri. Una snaraði 36kg sem var met og jafnhenti 48kg sem var einnig met. Andrea bætti um betur og jafnhenti 53kg og á þar með metið í samanlögðum árangri.
Bakvísun: Jólamót LSÍ: Heildar úrslit | Betri fréttir