Heimsmeistaramót öldunga (35 ára og eldri) fer fram dagana 12. – 19. september í Finnlandi, nánar tiltekið í borginni Rovaniemi, höfuðstað Lapplands. Mótið er mjög fjölmennt en alls eru 525 keppendur skráðir til leiks, þar af 19 sem eru komnir yfir áttrætt.
Gísli Kristjánsson (LFR) er skráður til leiks í 105kg flokki 50-54 ára. Keppendur í flokki Gísla eru 6 og miðað við forskráningar hefur Gísli talsverða yfirburði. Gísli keppir á fimmtudeginum 17. september kl 15:30 að staðartíma (12:30 að íslenskum tíma).
Gísli er í góðu formi og ætti að geta gert atlögu að heimsmetunum í sínum flokki. Metið í snörun er 135kg sett af Svíanum Stefan Jakobsson árið 1999, metið í jafnhendingu er 166kg sett árið 2009 af Bretanum Gurdawar Singh Dhesi og metið í samanlögðu er 300kg einnig sett af Stefan Jakobsson árið 1999.
Lyftingasambandið óskar Gísla góðs gengis.
Frekari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu þess: http://www.masters2015.fi/ og á facebook síðunni: https://www.facebook.com/masters2015

