Skráningar á íslandsmetum hafa verið uppfærðar fyrir jólamótið og má sjá undir Íslandsmet hérna á síðunni.
Alls hafa verið sett á árinu 26 íslandsmet í fullorðinsflokkum og 14 íslandsmet í unglingaflokkum. Þau eru eftirfarandi:
Anna Hulda Ólafsdóttir: 2 íslandsmet í 58kg flokki og 6 íslandsmet í 63kg flokki
Hrannar Guðmundsson: 6 íslandsmet í 77kg flokki
Lilja Lind Helgadóttir: 2 íslandsmet í 75kg flokki og 3 íslandsmet í +75kg flokki, þau met eru einnig stúlkna(-20 ára) og meyja(-17 ára) met
Katrín Tanja Davíðsdóttir: 3 íslandsmet á árinu í 69kg flokki og þau met eru einnig stúlkna(-20 ára) met
Sigurður Bjarki Einarsson: 3 íslandsmet í 94kg flokki
Björgvin Karl Guðmundsson: 1 íslandsmet í 85kg flokki
Darri Már Magnússon: 1 íslandsmet í drengjaflokk(-17 ára)
Veitt verða sérstök verðlaun á jólamóti LSÍ fyrir stigahæstu unglingana í öllum flokkum og hvetjum við unga lyftingamenn til að koma og reyna sig. Skráning fer fram á lsi@lsi.is. Skráningarfrestur er til 10.Desember.
Ef einhverjar meta skráningar hafa farið framhjá stjórninni bendum við á að senda athugasemdir á lsi@lsi.is.