Hérna koma úrslitin í Expó Mótinu þann 10.11.2012. Keppt var í liðakeppni þar sem 4 keppendur voru í hverju liði. 3 stigahæstu einstaklingarnir telja og er stigahæsta liðið sem vinnur. Keppt var í blönduðum liðum bæði karla og kvenna.
Myndir frá keppninni má sjá hér.
LSÍ þakkar öllum keppendum og starfsfólki fyrir frábært mót. Þetta er fjölmennasta mótið sem haldið hefur verið í Ólympískum Lyftingum frá upphafi og sýnir glöggt þá frábæru uppbyggingarstarfsemi sem hefur átt sér stað í íþróttinni á undanförnum misserum.
