Þann 4.janúar sl. fór fram sameiginlegt hóf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) í Silfurbergi í Hörpu, þar sem ÍSÍ afhenti viðurkenningar til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ og kjör SÍ á Íþróttamanni ársins var tilkynnt.
Eins og áður hefur komið fram var Eygló Fanndal tilnefnd sem Íþróttamaður ársins en það var í fyrsta sinn sem keppandi í ólympískum lyftingum er tilnefndur.
Á hófinu var þeim Eygló og Þórbergi Erni Hlynssyni veittar viðurkenningar sem lyftingakona og lyftingamaður ársins 2024. Eygló fékk svo einnig viðurkenningu fyrir að vera meðal efstu 10 í valinu á Íþróttamanni ársins 2024. Hápunktur kvöldins var svo þegar kom í ljós að Eygló var meðal þriggja efstu í valinu, ásamt þeim Sóleyju Margréti kraftlyftingakonu og Glódísi Perlu knattspyrnukonu. Titillinn féll í skaut Glódísar Perlu, annað sætið hlaut Sóley og Eygló endaði í þriðja sæti. Stórkostlegur árangur og einstaklega ánægjulegt að sjá tvær konur úr lyftingagreinum meðal þeirra efstu í valinu.
Innilegar hamingjuóskir sendum við Eygló Fanndal, sem er frábær fyrirmynd og fulltrúi okkar íþróttar. Þá óskum við Sóleyju Margréti innilegar til hamingju með annað sætið og Glódísi Perlu með titilinn Íþróttamaður ársins 2024.
Stjórn Lyftingasamband Íslands hefur kosið lyftingafólk ársins 2024 samkvæmt 18.grein laga sambandsins:
grein, Stjórn og varamenn hafa atkvæðisrétt um val á lyftingakonu og karli ársins, valið skal ávallt miðast við tímabilið 1. Desember til 30. Nóvember. Ef óskað er eftir því getur kosning verið nafnlaus. Val á lyftingakonu og karli ársins skal miðast við árangur íþróttamannsins á liðnu ári og er þá sérstaklega horft til Sinclair stigatölu sem og árangur á alþjóðlegum mótum. Íþróttamenn koma ekki til greina í vali á lyftingakonu og karli ársins á meðan þeir taka út refsingu og í eitt ár eftir að refsingu lýkur vegna brota á lyfjalögum ÍSÍ, IWF og/eða WADA.
Eygló með 104kg í snörun á Evrópumeistaramóti Ungmenna 2024. Mynd:ATG/Gregor Winters
Endaði í 12.sæti á úrtökulista fyrir Ólympíuleikana í París með 236kg í -71kg flokki kvenna.
Setti fjögurnorðurlandamet í fullorðins flokki, 2 í snörun og 2 í samanlögðum árangri í – 71kg flokki kvenna. (hún bætti síðan við 1 meti í snörun og 1 í samanlögðum árangri á HM í Desember 2024).
Setti sex Íslandsmet í fullorðins flokki og sex Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.
Varð Íslandsmeistari í -71kg flokki kvenna.
Varð í 4.sæti á Evrópumeistaramóti fullorðinna í -71kg flokki með 230kg í samanlögðum árangri. Varð 12. stigahæsti keppandi kvenn keppandi mótsins yfir alla þyngdarflokka (160 konur).
Varð Norðurlandameistari í -71kg flokki kvenna og jafnframt stigahæsti kvenna keppandi mótsins.
Varð Evrópumeistari Ungmenna 23 ára og yngri með nýju persónulegu meti 237kg samanlagt og fékk jafnframt verðlaun fyrir að vera stigahæsti kvenna keppandi mótsins.
Varð í 4.sæti í -71kg flokki á Heimsmeistaramótinu í Bahrein þar sem hún lyfti 239kg samanlagt. Hún varð í 31.sæti á stigum yfir alla kvenn keppendur (216) í öllum þyngdarflokkum með 642.85 Robi stig. (Mótið telur ekki inn í Lyftingafólk ársins)
Stigahæst íslenskra kenna á Sinclair stigum 293.1 stig
Lyftingakarl ársins og Ungmenni ársins 18-20 ára karla: Þórbergur Ernir Hlynsson úr Lyftingafélagi Reykjavíkur
Áttunda sæti á EM Unglinga í -96kg flokki 20 ára og yngri með 296kg í samanlögðu
Gull á NorðurlandameistaramótiUnglinga (20 ára og yngri) í -96kg flokk
Brons á Norðurlandameistamóti fullorðinna í -96kg flokk
Sigurvegari Haustmót LSÍ með 301kg í samanlögðum árangri og 351,4 Sinclair stig.
Íslandsmeistari í -96kg flokki karla
ÍslandsmeistariUnglinga (20 ára og yngri) í -96kg flokki
Þriðji hæsti karl á Sinclair 351.4 stig
Hæsti samanlagði árangur yfir alla þyngdar og aldursflokka 301kg
Íslandsmeistari Unglinga í -73kg flokki 15 ára og yngri með 121kg í samanlögðum árangri
Bætti sinn besta árangur á tímabilinu um 53kg, 112kg á Jólamótinu 2023 og 165kg á Haustmótinu 2024. (Bætti svo um betur á lyfti 175kg á Jólamótinu 2024).
Friðný Jónsdóttir úr lyftingadeild Stjörnunnar og Bergur Sverrisson frá lyftingadeild KA voru í algjörum sérflokki á Jólamóti LSÍ sem fram fór í Crossfit Reykjavík síðusta Sunnudag.
Friðný keppti létt í +87kg flokki kvenna (88.20kg) og stórbætti sinn besta árangur, 8kg í snörun, 12kg í jafnhendingu og 19kg í samanlögðum árangri. Hún lyfti 100kg í snörun og 122kg í jafnhendingu og bætti með Erlu Ágústdóttur í jafnhendingu um 3kg en Erla hafði lyft 119kg fyrr sama dag á Heimsmeistaramóti IWF. Metið í samanlögðum árangri bætti hún um 1kg úr 221kg sem Erla hafði lyft í 222kg.
Friðný í lokastöðu með 122kg -mynd Jón Karl Jónsson
Með þessum árangri hlýtur Friðný einnig Elite Pin norðurlandasambandsins líkt og Erla, en lyfta þarf yfir 218kg samanlagt í +87kg kvenna flokk til að hljóta hann.
Bergur Sverrisson úr lyftingadeild KA gerði einnig gott mót þegar hann fór með allar sínar lyftur í gegn. Seríuna 130kg-136kg-140kg í snörun og svo 150kg-157kg-161kg í jafnhendingu. Bergur vigtaðist 88.8kg, þyngsta snörunin var bæting um 2kg á meti Brynjars Loga Halldórssonar frá 2023 í -89kg flokk karla. Einnig var samanlagður árangur Bergs1kg bæting á fyrra meti Brynjars.
Önnur met sem voru sett voru met í flokki 15 ára og yngri kvenna af Birnu Sól Björnsdóttur (LFR) í -76kg flokk best 33kg í snörun, 50kg í jafnhendingu og 83kg í samanlögðum árangri. Tristann Bergmann Einarsson (LFR) setti einni met í flokki 15 ára og yngri karla -55kg, best 32kg í snörun, 54kg í jafnhendingu og 86kg í samanlögðum árangri.
Anna Guðrún Halldórsdóttir(Hamar) setti fjölmörg masters met í mörgum aldursflokkum M35-M55 þegar hún snaraði 56kg og jafnhenti 77kg í flokki +87kg. Reglan við masters met hjá LSÍ er sú að einstaklingur fær skráð met í sinn flokk M55 hjá Önnu Guðrún en einnig í „yngri“ flokkum ef metið er lægra þar, hún fær því met skráð í flokk M35, M40, M45 og M50.
Dísa Edwards (Massi) setti ný met í masters flokki -64kg M35 þegar hún snaraði best 61kg í snörun, 73kg í jafnhendingu og 134kg samtals.
Loks setti Steinunn Sveinsdóttir (LFK) masters met í -87kg flokki M60 þegar hún snaraði best 27kg, jafnhenti 34kg og því samanlagt 61kg.
Mótið er Sinclair mót og þrír stigahæstu keppendur af hvoru kyni eru verðlaunaðir
Erla Ágústsdóttir varð í dag í 13.sæti í +87kg flokki kvenna á Heimsmeistaramótinu í Ólympískum lyftingum sem lauk í dag í Manama, Bahrain.
Erla stórbætti árangur sinn þegar hún lyfti öllum sýnum lyftum gildum. Í snörun fór hún í gegn með seríuna 93kg, 98kg og 102kg. Sem var 1kg bæting á Íslandsmeti hennar í fullorðinsflokk og 23 ára og yngri. Í jafnhendingunni fór hún í gegn með seríuna 113kg, 116kg og loks 119kg sem var 3kg bæting á hennar bestu jafnhendingu en 5kg á besta samanlögðum árangri sem hún hefur náð sem var á Íslandsmótinu, samtals 221kg. Alls setti hún 8 íslandsmet í dag, 4 í fullorðinsflokk og 4 í flokki 23 ára og yngri.
Með þessum árangri varð hún einnig fjórða íslenska konan til að hljóta Elite Pinnorðurlandasambandsins en lyfta þarf meira en 218kg í +87kg flokki kvenna.
Guðný Björk Stefánsdóttir varð í 17.sæti í -76kg flokki kvenna á Heimsmeistaramótinu í lyftingum sem fram fer í Manama, Bahrain um þessar mundir.
Guðný lyfti mest 94kg í snörun og 114kg í jafnhendingu sem kom út í samanlögðum árangri sem 208kg.Guðnýviktaðist aðeins 71.28kg í flokkinn en yfirleitt keppir hún í -71kg flokknum. 114kg og 207kg voru ný íslandsmet í -76kg flokk, bæði í fullorðinsflokk og 23 ára og yngri.
Guðný átti einnig góðar tilraunir við 118kg og 120kg í jafnhendingu þar sem hún klikkaði aðeins á jarkinu í báðum tilraunum.
Heimsmeistarinn í Crossfit frá 2023 hin Ungverska Laura Horvath var á meðal keppenda og endaði í 18.sæti með sama árangur og Guðný. Hún lyfti 205kg á Evrópumeistaramótinu í ár og varð þar í 6.sæti.
Á sama tíma og Eygló Fanndal Sturludóttir var að keppa á heimsmeistaramótinu í Ólympískum Lyftingum í gær þá var hún valin íþróttakona ársins af ÍBR. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem íþróttamaður frá Lyftingafélagi Reykjavíkur (LFR) er valinn íþróttamaður Reykjavíkur.
Eygló Fanndal varð þrefaldur Evrópumeistari ungmenna 23 ára og yngri með nýju persónulegu meti og fékk jafnframt verðlaun sem stigahæsti kvenkyns keppandi mótsins. Hún varð Norðurlandamestari í -71 kg fullorðinsflokki í samanlögðum árangri, setti fjögur norðurlandamet og var jafnframt stigahæsti kvenkyns keppandi mótsins. Eygló setti sex Íslandsmet á árinu í fullorðins flokki og sex Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri. Hún varð Íslandsmeistari í -71 kg flokki kvenna og var afar nálægt því að tryggja sig inn á Ólympíuleikana. Eygló hefur bætt sig gríðarlega á árinu og tók þátt í hinum ýmsu mótum erlendis með góðum árangri
Eygló Fanndal Sturludóttir varð í fjórða sæti á Heimsmeistaramótinu í lyftingum sem fram fer í höfuðborg Bahrain, Manama. Hún lyfti 107 kg í snörun og 132 kg í jafnhendingu, samanlagt 239 kg, sem var bæting á Íslands- og Norðurlandametinu í -71 kg flokki kvenna um 2 kg.
Eygló gerir sig tilbúna að lyfta 104kg í Bahrain. Mynd:DBM/Deepbluemedia
Eygló átti frábæran dag. Hún keppti í fyrsta sinn í A-hóp, en 28 keppendur í -71 kg flokknum eru skiptir upp í þrjá hópa eftir getu. Í hóp með Eygló voru því bestu lyftingakonur heims, m.a. ríkjandi Ólympíumeistari Olivia Reeves frá Bandaríkjunum, silfurhafinn frá París, hin kólumbíska Mari Sánchez, Chen Wen-Huei frá Taipei sem varð í 6. sæti í París og vann til bronsverðlauna í Tókýó. Einnig sterkustu lyftingakonur Kína og Norður-Kóreu í flokknum, en Kínverjar tefldu ekki fram keppanda í flokknum í París. Eygló var eini keppandinn frá Evrópu í A-hóp.
Eygló byrjaði snörunina á 101 kg, því næst fór hún í 104 kg og loks í 107 kg, sem var bæting á hennar eigin Íslands- og Norðurlandameti um 1 kg. Hún var í fimmta sæti eftir snörunina með 1 kg meira en Mari Sánchez og á eftir annarri upprennandi kólumbískri konu, Julieth Rodriguez, sem byrjaði á 110 kg í snörun, sem var bæting um heil 6 kg samkvæmt kynnum mótsins. Kína, Bandaríkin og Norður-Kórea voru í efstu þremur sætunum.
Eygló situr undir 107kg
Í jafnhendingunni byrjaði Eygló á 129 kg, því næst fór hún í 132 kg. Með þeirri lyftu náði hún 1 kg forskoti á Julieth Rodriguez og 3 kg forskoti á Mari Sánchez. Þær tvær klikkuðu svo báðar á lyftu 2 og 3. Eygló fór í þriðju tilraun í 134 kg, sem hefði verið bæting á Íslandsmeti um 1 kg, en líka á Norðurlandametinu í jafnhendingu, sem hin sænska Patricia Strenius á. Eygló „cleanaði“ þyngdina en náði ekki að klára jarkið.
Eygló stóð upp með 134kg en náði ekki að klára jarkið
Hin kínverska Qiuxia Yang hóf jafnhendinguna á 134 kg og tók forystu í keppninni. Olivia Reeves hóf jafnhendinguna á 143 kg og tók nokkuð afgerandi forystu. Eygló var því í þriðja sæti í keppninni þegar Norður-Kóreski keppandinn átti eftir að hefja keppni, en hún vildi byrja á 145 kg. Fyrsta tilraun hjá henni gekk ekki og hún hækkaði í 146 kg. Það sömuleiðis var langt frá því að vera góð tilraun og um stund leit það út fyrir að Eygló myndi nokkuð óvænt vinna til bronsverðlauna og sú norðurkóreska detta úr keppni. En svo, nokkuð óvænt, náði hún að negla loka lyftuna, sem einnig tryggði henni silfur.
Fjórða sætið var því niðurstaðan, en besti árangur Eyglóar á Heimsmeistaramóti var frá 2023 þegar hún endaði í 17. sæti.
Amalía Ósk Sigurðardóttir endaði í 37. sæti í -64kg flokki kvenna á Heimsmeistaramótinu í Bahrain. Amalía lyfti 80kg í snörun og 100kg í jafnhendingu. Mótið var hennar þriðja Heimsmeistaramót og besti árangur hennar á erlendu stórmóti. Hún reyndi 2x við 105kg í annari og þriðju tilraun.
Amalía eftir sína þriðju snörun, 83kg sem fóru upp en dómarar ógildu lyftuna.