Mótareglur LSÍ

Mótareglur LSÍ voru samþykktar á lyftingaþingi LSÍ 16. mars 2024 og má nálgast hér að neðan:

Mótareglur LSÍ 16. mars 2024

Reglur IWF (8.1.2020)

Reglugerð Lyftingasambands Íslands (LSÍ) um mótahald

1. Kafli. Almenn ákvæði

1.gr. Lyftingamót
Öll mót í ólympískum lyftingum skulu fara fram samkvæmt lögum og reglum Lyftingasambands Íslands (LSÍ) og ekki brjóta gegn lögum og reglum ÍSÍ eða IWF. Framkvæmd skal fylgja tæknireglum IWF, en stjórn LSÍ getur sett nánari reglur og leiðbeiningar um einstök mót og framkvæmd þeirra.

2.gr. Aldurs- og þyngdarflokkaskipting
Aldurs- og þyngdarflokkaskipting er samkvæmt reglum International Weightlifting Federation (IWF) og eru met skráð í öllum flokkum skilgreindum af IWF, sem eru eftirfarandi:

a) Karlar(15+), konur(15+) (Senior)
b) Piltar (15-20), stúlkur (15-20 ) (Junior)
c) Drengir (13-17 ára) og meyjar (13-17 ára) (Youth)
Öldungaflokkar miðast við 5 ára tímabil frá 35 ára og upp í 85 ára og eldri.

LSÍ heldur einnig utan um met í U15 ára (15 ára og yngri) og U23 ára (21-23 ára) samkvæmt hvatningu frá EWF sem heldur Evrópumeistaramót í þessum aldursflokkum.

3.gr. Hlutgengi
Rétt til þátttöku á mótum LSÍ hafa allir meðlimir aðildarfélaga LSÍ sem eru skuldlausir við sín félög, LSÍ og rétt skráðir í félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ.
Erlendir keppendur sem ekki hafa íslenska kennitölu þurfa að vera skráðir hjá sínu landssambandi og verða að fá leyfi hjá viðkomandi landssambandi til að fá að keppa á mótum hjá LSÍ.

4.gr. Framkoma og ábyrgð
Félög, keppendur, forystumenn og aðrir skulu jafnan koma fram af hollustu, heiðarleika og sönnum íþróttaanda. Sérhvert félag er ábyrgt fyrir framkomu keppenda sinna og allra þeirra sem hlutverk hafa á vegum þess í tengslum við mótahald og keppni. Viðurlög við brotum á ofangreindum reglum eru ákveðin
af stjórn LSÍ.

II. Kafli. Reglur um keppendur

5.gr. Skráning keppenda
Öll félög skrá sína meðlimi í félagakerfi ÍSÍ samkvæmt reglum ÍSÍ hverju sinni. Eingöngu þeir sem eru rétt skráðir og skuldlausir við sitt félag og LSÍ mega taka þátt í mótum hjá LSÍ.

6.gr Lyfjanotkun
Öllum keppendum í aðildarfélögum LSÍ ber að kynna sér gildandi lög og reglur um lyfjamál ÍSÍ og fara eftir þeim.

Meðlimur sem fallið hefur á lyfjaprófi, gerst brotlegur við gildandi lög og reglur um lyfjamál ÍSÍ, sætir rannsókn fyrir meint brot eða bíður dómsniðurstöðu sem varðar hugsanlegt brot á lögum og reglum um lyfjamál má ekki keppa, dæma, starfa eða aðstoða keppendur á mótum á vegum aðildarfélaga LSÍ fyrr en dómur er genginn í málinu.

Árangur keppandans sem og Íslandsmet síðustu 12 mánuði frá því sýnið var tekið, þurrkast út ef keppandi er dæmdur í styttra bann en 12 mánuði, en ef hann er dæmdur í lengra bann er 12 mánuði þá þurrkast árangur hans út jafn langt aftur og bannið sem hann fær.

III. Kafli. Reglur um dómara

7.gr. Dómaralisti
Listi yfir dómara með réttindi til að dæma á mótum LSÍ skal ávallt vera aðgengilegur á heimasíðu LSÍ (www.lsi.is). Stjórn LSÍ ber ábyrgð á að listinn sé réttur hverju sinni.
Til að vera á listanum þurfa dómarar að uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) Hafa staðist dómarapróf sem uppfyllir skilyrði IWF
b) Vera skráður í félagakerfi ÍSÍ
c) Hafa dæmt á móti á vegum LSÍ síðastliðin 4 ár

8.gr. Dómarapróf
Stjórn LSÍ skal gangast fyrir prófum fyrir dómara a.m.k. einu sinni á ári og upprifjunarnámskeiði fyrir dómara a.m.k. á tveggja ára fresti, og oftar ef þörf krefur. Einstaklingar sem óska eftir að þreyta dómarapróf skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Hafa náð 16 ára aldri
• Ná a.m.k. 80% eða á skriflegu IWF prófi
• Ná a.m.k. 85% eða meira á verklegu prófi
• Dæma að minnsta kosti 80 tilraunir sem samanstanda bæði af kláruðum og ókláruðum lyftum en hlutfallið er reiknað miðað við kláraðar lyftur

9.gr. Alþjóðadómarar
Stjórn LSÍ skal leitast við að a.m.k. þrír dómarar með alþjóðaréttindi séu á hverju Ólympíuári innan sambandsins. LSÍ stendur straum af kostnaði sem fylgir þessu ákvæði. Alþjóðadómarar hafa forgang við skipun kviðdóms á lyftingamótum.

10.gr. Greiðslur til dómara vegna dómgæslu
Dómgæsla er sjálfboðastarf á mótum LSÍ.

IV. kafli. Reglur um mótahald

11. gr. Yfirstjórn mótamála
Stjórn LSÍ annast yfirstjórn mótamála hjá LSÍ, þar með talið skipulag landsmóta, niðurröðun þeirra, eftirlit með framkvæmd og skráningu í afreksgagnagrunn LSÍ.
Mót er aðeins gilt ef farið er eftir lögum og reglugerðum LSÍ, IWF og ÍSÍ. Stjórn LSÍ getur lagt bann við að mót fari fram ef sýnt þykir að ekki verði farið eftir gildandi reglum. Stjórn LSÍ getur ennfremur ógilt úrslit ef brotið var gegn reglum við framkvæmd móts.

12.gr. Mótaskrá
Öll mót sem fara inn á mótaskrá LSÍ eru skráð í afreksgagnagrunni LSÍ. Í lok hvers keppnisárs er mótaskrá næsta árs birt þar sem öll mót innanlands sem hægt er að setja Íslandsmet eru auglýst.

Innanfélagsmót fara inn á mótaskrá og úrslit í afreksgagnagrunninn sé tilkynning send 7 sólarhringum fyrir mótsdag, miðað er við miðnætti.

13.gr. Búnaður á mótsstað
Eftirfarandi búnaður er í eigu LSÍ og er skylda fyrir aðildarfélögin að notast við hann á mótum eða annan sambærilegan keppnisbúnað:

a) 4x4m Keppnispallur (10cm hár)
b) Keppnislyftingasett
c) Vigt (50 gr. nákvæmni)

14.gr. Undanþágur vegna innanfélagsmóta
Innanfélagsmót þurfa ekki að nota lyftingapall í 10cm hæð, og nægir að merkja 4x4m gólfflöt, en nauðsynlegt er að lofthæð yfir gólffletinum sé minnst 3m.

Eftirlit með framkvæmd á innanfélagsmótum er í höndum yfirdómara mótsins sem skipaður er af mótshaldara. Yfirdómari mótsins sér einnig um að koma úrslitum frá mótinu (keppnisblöðum) til stjórnar LSÍ þar sem fram kemur hverjir dæmdu á mótinu.

15.gr. Lágmörk
Stjórn LSÍ er heimilt að ákveða að lágmörk skuli gilda á Íslandsmeistaramótum og öðrum mótum hverju sinni. Lágmörk skulu kynnt á lsi.is um leið og ný mótaskrá er lögð fram og þau taka gildi við upphaf næsta keppnistímabils.

16.gr. Stigakeppni félaga (Stigabikar LSÍ)
Sumarmót, Haustmót og Jólamót telja saman inn í stigakeppni félaga. Stjórn LSÍ heldur utan um stigakeppni félaga og staðan í keppninni er birt eftir hvert mót í afreksgagnagrunni sambandsins (results.lsi.is). Reglur um stigakeppni félagsliða má sjá á heimasíðu LSÍ undir „Reglur um liðabikar LSÍ“.

17.gr. Auglýsing móta
Önnur mót en innanfélagsmót skulu vera auglýst á samfélagsmiðlum og heimasíðum mótshaldara og LSÍ með minnst 30 daga fyrirvara.

Í auglýsingu um mót skal koma fram:
a) Heiti móts
d) Nákvæm dagsetning, tímasetning og staðsetning
e) Upphæð þátttökugjalds og reikningsnúmer
f) Skráningarfrestur og hvar á að skrá sig
g) Hvað þarf að fylgja skráningu (nafn, kennitala, tölvupóstur, félag, þyngdarflokkur o.fl.)

18.gr. Þátttökuréttur og skráning móta
Öll mót sem gilda til Íslandsmeta eru opin skráðum félagsmönnum LSÍ.

Félög geta sjálf ákveðið hvort innanfélagsmót þeirra séu opin aðilum úr öðrum félögum eða einungis þeirra eigin félagsmönnum.

Stjórn LSÍ annast skráningu keppenda á mót innanlands og skulu keppendur greina því félagi sem þeir keppa fyrir við skráningu. Í flokkum ungmenna yngri en 18 ára skal greina frá forráðamanni keppanda og símanúmeri hans. Formaður hvers lyftingafélags eða staðgengill hans sér um að staðfesta skráningu alla
keppenda sinna á mót hverju sinni, og þar með keppnisrétt viðkomandi skv. lögum LSÍ og reglum viðkomandi lyftingafélags innan þeirra tímamarka sem LSÍ setur fyrir hvert mót. Fjöldi keppenda frá hverju lyftingafélagi virkjar síðan 20. gr. mótareglna.

19.gr. Keppnisgjald
Aðildarfélögin bera ábyrgð á greiðslu keppnisgjalds fyrir iðkendur sína. Keppendur þurfa að vera skuldlausir við sín félög til þess að geta tekið þátt í mótum á vegum LSÍ. Keppnisgjald skal renna til þess lyftingafélags sem heldur mót hverju sinni, enda sjái það um mönnun á móti í samræmi við ákvæði 20. gr.

20.gr. Starfsfólk á mótum
Nauðsynlegt er að hafa minnst 2 stangamanneskjur, 4 á ritaraborði, þ.e. tímavörð, kynni, tæknistjórnanda mótaforrits og ritara) og 3 dómara. Á mótum sem gilda til Íslandsmeta þarf að auki að hafa yfirdómara, 3 dómara í kviðdómi og heilbrigðismanneskju. Á mótum öðrum en innanfélagsmótum skulu aðildarfélög sjá um að starfsfólk og dómarar úr þeirra félögum starfi á mótinu og við undirbúning og frágang þess. Ef félagið getur ekki sent dómara þarf að senda auka starfsfólk til starfa á móti og við uppsetningu og frágang móts.

a) 1-2 keppendur = 3 starfsmanneskjur, þar af 2 dómarar
b) 3-5 keppendur = 7 starfsmanneskjur þar af 4 dómarar
c) 6-10 keppendur = 11 starfsmanneskjur þar af 6 dómari
d) 11-15 keppendur = 15 starfsmanneskjur þar af 7 dómarar
e) 16–20 keppendur = 17 starfsmanneskjur þar af 9 dómarar
f) 21+ keppandi = 21 starfsmanneskjur, þar af 11 dómarar

21.gr. Dómgæsla

Eingöngu dómarar skráðir á gildandi dómaralista LSÍ mega dæma á mótunum.
Dómgæsla á mótum skal vera samkvæmt reglum IWF.
Dómarar skulu ávallt vera snyrtilega klæddir og ekki í íþróttafötum.

22.gr. Keppnisskýrslur
Mót skulu ávallt rituð á þar til gerð keppnisspjöld samhliða tölvukerfi, keppnisspjöldunum skal skilað til stjórnar LSÍ að loknu móti.

23.gr. Frestun/niðurfelling móta
Aðeins má fresta eða fella niður auglýst mót í samkomulagi við stjórn LSÍ.

V. Kafli. Reglur um Íslandsmet

24.gr. Íslandsmet

Íslandsmet er eingöngu hægt að setja á eftirfarandi mótum á Íslandi:
a) RIG
b) Íslandsmeistaramót
c) Íslandsmeistaramót/Landsmót ungmenna
d) Íslandsmeistaramót öldunga
e) Sumarmót
f) Haustmót
g) Jólamót
h) Meistaramót íþróttabandalaga og héraðssambanda

Íslandsmet eru skráð í hverjum aldursflokki og þyngdarflokki jafnt karla sem og kvenna í eftirfarandi greinum:

a) Snörun
b) Jafnhending
c) Samanlagður árangur

Eingöngu íslenskir ríkisborgarar geta sett Íslandsmet og skipað landslið Íslands í ólympískum lyftingum.

25.gr Notkun stanga og opnunarþyngdir

Keppendur 15 ára og yngri mega á Unglingalandsmóti UMFÍ, Íslandsmeistaramóti ungmenna og á innanfélagsmótum nota eftirfarandi keppnisstangir kjósi þeir það:

a) 15 ára og yngri KK: lágmarks opnunarþyngd 21kg. (15kg. keppnisstöng kvenna+ tvö 0.5kg. lóð + tvær 2,5kg. klemmur)
b) 15 ára og yngri KVK: lágmarks opnunarþyngd 16kg. (10kg. tæknistöng + tvö 0.5kg. lóð + tvær2,5kg. klemmur)

Aðrir keppendur þessara móta þurfa að nota eftirfarandi stangir
a) KK: 20kg. karla keppnisstöng, lágmarks opnunarþyngd 26kg. (20kg. keppnisstöng karla, tvö 0.5kg. + tveir 2,5kg. lásar)
b) KVK: 15kg. kvenna keppnisstöng, lágmarks opnunarþyngd 21kg. (15kg. keppnisstöng kvenna, tvö 0.5kg. lóð + tveir 2,5kg. lásar)

Mælst er til þess að á Íslandsmeistaramótum ungmenna sé keppt í U23, U17 og U15.

26.gr Vigtun keppenda

Á mótum þar sem keppt er í þyngdarflokkum hljóta keppendur 15 ára og yngri keppnisrétt í þeim flokki sem þeir vigtast inn í. Ef keppendur eru of léttir fyrir skráðan flokk fara þeir niður um flokk og ef þeir eru of þungir fyrir skráðan flokk fara þeir upp um flokk. 16 ára og eldri þurfa að vigtast inn í þann flokk sem þeir eru skráðir í á mótum sem keppt er í þyngdarflokkum á, en annars fyrirgera þeir rétti sínum til að keppa.

Um þessar mótareglur:
• Fyrstu drög kynnt á stjórnarfundi (13.7.2015)
• Breytingar samkvæmt stjórnarfundi (20.7.2015)
• Breytingar samkvæmt lyftingaþingi (mars 2016)
• Breytingar samkvæmt stjórnarfundi (15.2.2017)
• Samþykkt á Lyftingaþingi (11. mars 2017)
• Samþykkt á Lyftingaþingi (17. mars 2018)
• Samþykkt á Lyftingaþingi (12. apríl 2019)
• Samþykkt á Lyftingaþingi (16. mars 2024)