1. Heiti og aðsetur
Lyftingasamband Íslands (LSÍ) er æðsti aðili um mál ólympískra lyftinga innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Lyftingasamband Íslands er samband lyftingafélaga innan sambandsaðila, þ.e. héraðssambanda og íþróttabandalaga innan ÍSÍ sem iðka og keppa í ólympískum lyftingum.
Aðsetur og varnarþing LSÍ er í Reykjavík.
2. Hlutverk
Hlutverk LSÍ er í meginatriðum:
- Að vinna að stofnun nýrra félaga og efla á annan hátt ólympískar lyftingar í landinu
- Að setja nauðsynlegar reglur, löggilda dómara, ráðstafa mótum og staðfesta met í samræmi við alþjóðareglur.
- Að vera fulltrúi ólympískra lyftinga á Íslandi á alþjóðlegum vettvangi
- Að vinna að öðrum þeim málum sem varða lyftingar og framþróun þeirra á Íslandi
3. Stjórnskipan
Málefnum LSÍ stjórna:
- Lyftingaþing LSÍ
- Stjórn LSÍ
- Sérstakar nefndir sem skipaðar eru af lyftingaþingi eða stjórn LSÍ og starfa að afmörkuðum málefnum.
- Framkvæmdastjóri LSÍ sem í umboði stjórnar hefur með höndum daglegan rekstur sambandsins og daglega umsýslu verkefna.
Dómstólar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hafa lögsögu um þau mál sem upp kunna að koma innan LSÍ, sbr. lög ÍSÍ.
4. Lyftingaþing
Lyftingaþing LSÍ fer með æðsta vald í málefnum LSÍ. Þingið sitja fulltrúar lyftingafélaga sem aðild eiga að LSÍ. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu virkra iðkenda í lyftingum samkvæmt skráningarkerfi ÍSÍ samkvæmt eftirfarandi:
- Fyrir allt að 25 iðkendur koma 2 fulltrúar og síðan
- 1 fulltrúi fyrir hverja 25 iðkendur eða brot úr 25 upp í allt að 100 iðkendur og þá
- 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 50 iðkendur þar fram yfir.
Þingið skal haldið árlega fyrir 30. mars og skal stjórn boða það með tölvupósti á það netfang sem lyftingafélag hefur tilkynnt LSÍ fyrir móttöku tilkynninga og samskipta, með minnst fjögurra vikna fyrirvara.
Málefni, sem lyftingafélög óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn LSÍ minnst 21 degi fyrir þingið og framboð til stjórnar minnst 10 dögum fyrir þing. Stjórn LSÍ skal tilkynna lyftingafélögum dagskrá þingsins, ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa, í síðasta lagi 14 dögum fyrir þing og framboð til stjórnar minnst 5 dögum fyrir þing.
Lyftingaþing er lögmætt, ef löglega hefur verið til þess boðað.
5. Réttur til setu á Lyftingaþingi
Á lyftingaþingi hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt, en auk þeirra eiga eftirfarandi aðilar rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:
- Stjórn LSÍ og varastjórn.
- Skoðunarfólk reikninga.
- Framkvæmdastjóri ÍSÍ.
- Framkvæmdastjórn ÍSÍ, starfsfólk ÍSÍ og LSÍ.
- Fulltrúar lyftingadómara sem lokið hafa dómaraprófi.
- Allt nefndarfólk LSÍ.
- Einn fulltrúi frá hverjum sambandsaðila ÍSÍ sem hefur iðkun ólympískra lyftinga innan sinna vébanda.
Auk þess getur stjórn LSÍ boðið öðrum aðilum þingsetu, ef hún telur ástæðu til.
Aðeins sá, sem er í félagi, þar sem ólympískar lyftingar eru iðkaðar, er kjörgengur fulltrúi þess á lyftingaþingi. Hver fulltrúi hefur aðeins 1 atkvæði, en auk þess getur fulltrúi farið með eitt annað atkvæði samkvæmt skriflegu umboði stjórnar viðkomandi lyftingafélags.
6. Aukaþing
Aukaþing má halda, ef nauðsyn krefur eða helmingur lyftingafélaga óskar þess. Alla boðunar- og tilkynningarfresti til aukaþings má hafa helmingi styttri en til reglulegs þings.
Fulltrúar á aukaþingi eru þeir sömu og voru á næsta þingi á undan og gilda sömu kjörbréf. Þó má kjósa að nýju í stað fulltrúa, sem er látinn, veikur eða fluttur úr héraðinu eða forfallaður á annan hátt.
Á aukaþingi má ekki gera lagabreytingar, breytingar á mótareglum né kjósa stjórn. Ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum, er þó heimilt að kjósa bráðabirgðastjórn á aukaþingi.
Að öðru leyti gilda um það sömu reglur og um reglulegt lyftingaþing.
7. Dagskrá lyftingaþings
Á dagskrá Lyftingaþings eru:
- Þingsetning.
- Innganga nýrra lyftingafélaga.
- Kosnir 3 einstaklingar í kjörbréfanefnd.
- Kosning þingforseta og þingritara.
- Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
- Gjaldkeri leggur fram, skoðaða reikninga LSÍ til samþykktar.
- Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
- Lagðar fram lagabreytingar og breytingar á mótareglum, sem fram hafa komið.
- Umræða um aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar, svo og önnur mál er þingið vill ræða.
- Kosning stjórnar og varastjórnar.
- Kosning skoðunarfólks reikninga.
- Kosning formanns tækninefndar.
- Önnur mál.
- Þingslit.
Fái fleiri en þau sem kjósa á jafnmörg atkvæði, skal kjósa um þau á ný, bundinni kosningu. Verði þau enn jöfn, ræður hlutkesti. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Þingið getur með 2/3 atkvæða viðstaddra fulltrúa leyft að taka fyrir mál, sem komið er fram eftir að dagskrá þingsins var send sambandsaðilum skv. 3. mgr. 4.gr.
Ársskýrslu LSÍ, sem stjórnin skal leggja fjölritaða fyrir þingið, svo fundargerðir þingsins, skal senda framkvæmdastjórn ÍSÍ og lyftingafélögum og sambandsaðilum LSÍ, innan tveggja mánaða frá þingslitum.
8. Skipan og kosning stjórnar
Stjórn LSÍ skipa 5 einstaklingar:
Stjórn skal kosin bundinni leynilegri kosningu til eins árs í senn, nema formaður og fulltrúar íþróttafólks sem kosin eru til tveggja ára. Tveir einstaklingar úr fráfarandi stjórn sitja áfram í næstu stjórn. Miðað skal við að hlutfall kynja verði sem jafnast í stjórn.
Kosning stjórnar skal fara fram með eftirfarandi hætti:
- Formaður er kosinn fyrst.
- Tveir stjórnarmenn til tveggja ára.
- Loks eru kosin ein kona og einn karl úr hópi íþróttafólks sem áheyrnarfulltrúar.
Einnig skal kjósa 2 einstaklinga af hvoru kyni í varastjórn og taki þeir sæti í forföllum stjórnarfólks og koma inn í sömu röð og þeir voru kosnir, nema kynjahlutföll raskist við slík skipti og skal þá einstaklingur af því kyni sem hallar á í stjórn taka sæti.
Stjórninni er heimilt að ráða launað eða ólaunað starfsfólk. Í undantekningartilvikum er heimilt að fela einstöku stjórnarfólki tiltekin launuð verkefni í þágu LSÍ og skal við það tilefni gerður sérstakur samningur sem samþykktur skal af stjórn. Reikningsár LSÍ er miðað við almanaksárið.
Kjörgengir í stjórn eru einstaklingar sem skráðir eru félagar í lyftingafélagi innan LSÍ og þurfa einstaklingar að hafa náð 18. aldursári til að vera gjaldgengir í stjórn.
Fulltrúar íþróttafólks í stjórn LSÍ geta jafnframt verið fulltrúar Íslands í íþróttaráði Norðurlandasambandsins (Athletes Commission NWF). Fulltrúar íþróttafólks þurfa að uppfylla skilyrði alþjóða ólympíusambandsins um fulltrúa íþróttafólks (e. Olympic Charter Bye-law 1 to Rule 21, pertaining to II.1.1-1.6) að undanskildum keppniskröfum, en nóg er að hafa keppt á Norðurlandamóti eða æðra móti til að bjóða sig fram.
9. Hlutverk stjórnar
Hlutverk stjórnar LSÍ er:
- Að boða til Lyftingaþings og framkvæma ályktanir þess.
- Að vinna að eflingu ólympískra lyftinga á Íslandi.
- Að semja reglur fyrir ólympískar lyftingar, þar á meðal mótareglur, í samræmi við alþjóðareglur.
- Að gefa út mótaskrá og úthluta lyftingamótum til lyftingafélaga og skal mótaskrá að jafnaði birt fyrir hver áramót.
- Annast þátttöku og val á keppendum í landslið Íslands í lyftingum vegna þátttöku á erlendum mótum.
- Að skrá og staðfesta met sem sett eru í samræmi við reglur sambandsins.
- Að senda framkvæmdastjórn ÍSÍ lögboðnar skýrslur og tilkynningar.
- Að líta eftir því, að lög og leikreglur LSÍ séu haldin.
- Að úthluta þeim styrkjum til ólympískra lyftinga, sem LSÍ fær til umráða.
- Að velja heiðursfélaga LSÍ þegar stjórn telur tilefni til.
- Að koma fram á alþjóðlegum vettvangi fyrir hönd ólympískra lyftinga á Íslandi.
10. Verkaskipting og ályktunarhæfi
Stjórn LSÍ skipa:
- Formaður,
- varaformaður,
- gjaldkeri,
- ritari,
- 1 meðstjórnandi,
- 2 áheyrnarfulltrúar íþróttafólks (1 kk og 1 kvk).
Stjórn skiptir sjálf með sér verkum, að öðru leyti en því að formaður er kjörinn af lyftingaþingi. Formaður LSÍ boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim. Stjórn skal setja sér starfsreglur þar sem nánar er fjallað um framkvæmd starfa hennar, þar á meðal verkaskiptingu vegna ábyrgðar á tæknimálum.
Stjórn er ályktunarbær ef minnst fjórir meðlimir sækja löglega boðaðan stjórnarfund. Afl atkvæða ræður úrslitum máls. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka án þess að allt stjórnarfólk hafi haft tök á því að fjalla um málið sé þess kostur.
Óski þrír eða fleiri einstaklingar í stjórn eftir stjórnarfundi skal til hans boða eigi síðar en 7 dögum eftir að ósk þar að lútandi hefur verið borin fram.
Fulltrúar íþróttafólks sitja stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt.
11. Vanhæfi
Einstaklingi í trúnaðar- og ábyrgðastöðum innan sambandsins ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslaða aðila hans svo sérstaklega, að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Sá sem er vanhæfur til meðferðar máls má ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn þess. Viðkomandi er þó heimilt að gera þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að halda máli í réttu horfi á meðan staðgengill er ekki til staðar.
12. Skýrslugjöf lyftingafélaga
Lyftingafélög skulu senda stjórn LSÍ allar skýrslur um mót, sem haldin eru á vegum þeirra. Þessar skýrslur skulu sendar innan mánaðar eftir að mótinu lýkur.
13. Aðgangur að mótum og æfingum
Stjórn LSÍ hefur frjálsan aðgang að öllum mótum og æfingum í ólympískum lyftingum, sem fram fara innan vébanda LSÍ.
14. Ágreiningur og dómsmál
Um öll ágreiningsmál er upp kunna að koma innan íþróttarinnar skal farið með samkvæmt kafla 4 í lögum ÍSÍ, um dómstóla ÍSÍ, eftir því sem við á.
15. Slit LSÍ
Tillögur um að leggja LSÍ niður má aðeins taka fyrir á lögmætu lyftingaþingi. Til þess að samþykkja þá tillögu, þarf minnst ¾ hluta atkvæða. Hafi slík tillaga verið samþykkt, skal gera öllum lyftingafélögum og sambandsaðilum grein fyrir henni í þingskýrslunni og tillagan síðan látin ganga til næsta reglulegs þings. Verði tillagan þá samþykkt aftur, er það fullgild ákvörðun um að leggja LSÍ niður. Skal þá afhenda ÍSÍ eignir LSÍ til varðveislu.
16. Afreksstefna LSÍ
Stjórn skal setja Afreksstefnu lyftingasambandsins sem taka skal mið af því að LSÍ sé flokkað sem afrekssamband samkvæmt viðmiðum Afrekssjóðs ÍSÍ á hverjum tíma og í samræmi við Stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um afreksíþróttir (Afreksstefnu ÍSÍ) og ramma sem ÍSÍ setur fyrir afreksstefnur sérsambanda.
Tímasett og mælanleg markmið og aðgerðaráætlanir skulu jafnframt mótuð samhliða afreksstefnu.
Afreksstefna, markmið og aðgerðaráætlanir skulu endurskoðuð fyrir hvert Ólympíuár og skal afreksstefna tekin til umfjöllunar ár hvert, annað hvort á Lyftingaþingi eða formannafundi skv. nánari ákvörðun stjórnar.
Afreksstefna og aðgerðaráætlun skulu birtar á heimasíðu sambandsins.
17. Val á lyftingafólki ársins
Stjórn og varastjórn hafa atkvæðisrétt um val á lyftingakonu og karli ársins. Ef óskað er eftir því getur kosning verið nafnlaus.
Val á lyftingakonu og karli ársins skal miða við árangur íþróttafólks á liðnu ári og er þá sérstaklega horft til Sinclair stigatölu sem og árangur á alþjóðlegum mótum, miðað við tímabilið 1. desember til 20. nóvember.
Íþróttafólk kemur ekki til greina í vali á lyftingakonu og karli ársins á meðan það tekur út refsingu og í eitt ár eftir að refsingu lýkur vegna brota á lyfjalögum ÍSÍ, IWF og/eða WADA.
Íþróttafólk ársins þarf að hljóta minnst 2/3 atkvæða stjórnar og varastjórnar, þannig að ef efsti einstaklingur nær ekki 2/3 hluta atkvæða skal kosið á milli tveggja efstu. Óþarfi er að endurtaka kosningu ef upphaflega er aðeins er kosið milli tveggja aðila.
18. Hlíting
Lyftingafélög og allt félagsfólk, keppendur og starfsfólk skulu án undantekninga hlíta lögum þessum og reglum settum af LSÍ, sem og lögum og reglum ÍSÍ, þar á meðal um lyfjamál.
Ofangreindir aðilar skulu einnig hlíta reglum IWF og WADA í lyfjamálum og hafa Lyfjaeftirlit Íslands, ITA og IWF á hverjum tíma skilyrðislausan rétt og aðgang til að lyfjaprófa iðkendur við æfingar og/eða keppnir.
19. Formaður tækninefndar
Formaður tækninefndar er kosinn ár hvert á lyftingaþingi. Formaður tækninefndar þarf að hafa lokið tækniprófi IWF í ólympískum lyftingum (e. IWF Technical Officials Examination). Hann/hún útnefnir 2 einstaklinga með sér í tækninefnd sem lokið hafa dómaraprófi.
20. Um meðferð deilumála og/eða kvartana
Stjórn LSÍ úrskurðar vegna mála og/eða kvartana sem upp kunna koma innan hreyfingarinnar. Skal þá farið eftir reglum LSÍ og IWF, eftir því sem við á. Úrskurðir stjórnar eru kæranlegir til dómstóls ÍSÍ.
Samþykkt á ársþingi Lyftingasambands Íslands 2. apríl 2025.
Bakvísun: Lyftingaþing 2018 | Lyftingasamband Íslands