Liðabikar LSÍ

Úrslit liðabikars eru reiknuð út í gagnagrunni sambandsins: https://results.lsi.is/admin/TeamCompetition

Sigurvegarar

XI-2025: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 85 stig

X-2024: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 143 stig

IV-2023: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 145 stig

VIII2022: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 125 stig

VII2021: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 90 stig

VI-2020: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 75 stig

V-2019: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 115 stig

IV-2018: Lyftingafélag Reykjavíkur (LFR) – 84 stig

III-2017: Lyftingafélag Garðabæjar (LFG) – 138 stig

II-2016: Ármann – 96 stig

I-2015: Ármann – 106 stig

Reglur um liðabikar LSÍ eru eftirfarandi:

Liðabikar LSÍ

Mót sem teljast til liðabikars ár hvert eru Sumarmótið, Haustmótið og Jólamótið.

Mótin eru stigamót þar sem verðlaunað er fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti samkvæmt Sinclair stigatöflu í karla og kvenna flokki.

10 konur skipa fullt lið í þyngdarflokkunum -45kg,-49kg,-55kg,-59kg,-64kg,-71kg, -76kg, -81kg, -87kg og +87kg.

10 karlar skipa fullt lið í þyngdarflokkunum -55kg, -61kg, -67kg, -73kg, -81kg, -89kg, -96kg, 102kg, 109 og +109kg.

Mest telja 2 einstaklingar í hverjum þyngdarflokk.

Hægt er að vera með 2 varamenn í kvenna keppni og 2 varamenn í karla keppni sem telja ef einstaklingur fellur úr keppni.

Eftirfarandi fjöldi stiga er veittur:
1. sæti í þyngdarflokk fær 7 stig
2. sæti í þyngdarflokk fær 5 stig
3. sæti í þyngdarflokk fær 4 stig
4. sæti í þyngdarflokk fær 3 stig
5. sæti í þyngdarflokk fær 2 stig
6. sæti í þyngdarflokk fær 1 stig

Liðabikarinn er farandbikar og er afhentur því liði sem hlýtur flest samanlögð stig út úr þessum þremur mótum.

Ef tvö lið eru jöfn að stigum í lok keppninnar þá vinnur það lið sem hefur flesta sigra (1.sæti). Ef ennþá eru tvö lið jöfn þá vinnur það lið sem hefur hærri samanlagðan Sinclair af öllum sigurvegurum (1.sæti).

Íþróttamaðurinn má ekki keppa fyrir tvö mismunandi lið í áðurnefndri liðakeppni á keppnisárinu.

Íþróttamenn sem taka þátt í liðakeppni LSÍ verða að hafa íslenskt vegabréf eða vera með fasta búsetu á Íslandi.

Samþykkt á lyftingaþingi 11.3.2017

Uppfært eftir þyngdarflokka breytingar 2018

1 hugrenning um “Liðabikar LSÍ

  1. Bakvísun: X Liðabikar LSÍ | Lyftingasamband Íslands

Færðu inn athugasemd