Lyftingasamband Íslands var stofnað þann 27. janúar 1973. Lyftingasambandið hefur verið aðili að ÍSÍ og forverum þess óslitið frá árinu 1973. Fyrstu árin voru ólympískar lyftingar og kraftlyftingar undir sömu stjórn í Lyftingasambandi Íslands. Þann 28. febrúar árið 1985 klofnaði sambandið og slitu kraftlyftingarmenn sig þá frá ÍSÍ og íþróttahreyfingunni.
Stærsti heiður sem íslenskur lyftingamaður hefur hlotið er að vera fánaberi Íslands við Ólympíuleikana í Moskvu árið 1980 og var það Birgir Borgþórsson sem hlaut þann heiður og stóð sig með sóma.
Lyftingasamband Íslands hefur sent eftirfarandi keppendur á Ólympíuleika;
Birgir Þór Borgþórsson, Ólympíuleikarnir í Moskvu (URS) 1980
Guðmundur Helgason, Ólympíuleikarnir í Moskvu (URS) 1980
Þorsteinn Leifsson, Ólympíuleikarnir í Moskvu (URS) 1980
Guðmundur Sigurðsson, Ólympíuleikarnir í Munchen (D) 1972 & Montreal (CAN) 1976
Óskar Sigurpálsson, Mexico (MEX) 1968 & Munchen (D) 1972