Lyftingasamband Íslands og New Wave Iceland hefja samstarf

Lyftingasamband Íslands (LSÍ) og New Wave Iceland (NWI), umboðsaðili Craft á Íslandi, hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að NWI mun útvega keppendum og þjálfurum landsliðs LSÍ æfinga- og ferðafatnað frá hinu þekkta íþróttavörumerki Craft.

Samstarfið er liður í því að efla umgjörð íslenskra lyftingamanna og tryggja að keppendur og þjálfarar klæðist vönduðum fatnaði sem styður við þægindi og fagmennsku, bæði á æfingum og í keppnisferðum innanlands sem utan.

Craft er alþjóðlega viðurkennt vörumerki á sviði íþróttafatnaðar og er þekkt fyrir vandaða hönnun, tæknileg efni og mikla áherslu á gæði og endingu. Með samstarfinu fá keppendur og þjálfarar LSÍ aðgang að fatnaði sem hentar kröfum afreksíþróttafólks.

Aðilar eru sammála um að samstarfið muni styrkja ímynd íslenskra lyftinga og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi.

Heimasíða Craft á Íslandi er https://craftverslun.is/.

Á myndinni má sjá þau Eygló Fanndal Sturludóttur Íþróttamann ársins, Þórberg Erni Hlynsson Norðurlandameistara ungmenna, Harald Jens Guðmundsson framkvæmdastjóra NWI og Arnór Ásgeirsson framkvæmdastjóra LSÍ, við undirritun samnings.
Eygló Fanndal Sturludótttir og Þórbergur Ernir Hlynsson.

Færðu inn athugasemd