Í dag laugardag 26. apríl, klukkan 15:45-17:25 verður sýnt frá Íslandsmeistaramótinu í Ólympískum lyftingum sem haldið var fyrir viku síðan, eða laugardaginn 19. apríl.
Það eru gleðitíðindi að fjölmiðlar séu farnir að fjalla um og sýna frá lyftingum aftur. Enda margir sem sakna þess tíma þegar fjölskyldan settist fyrir framan sjónvarpið og horfði á lyftingar. Það er því kjörið tækifæri í dag.
Við þökkum LFR, Sportlíf, FiskSpa, ERGO, Múrlínunni, Hámark, Sportvörum og Velmerkt fyrir að styrkja mótið og gera okkur kleift að greiða fyrir upptöku Sport TV í keppninni. Við þökkum svo RÚV fyrir að sýna Íslandsmeistaramótið og vekja þannig athygli á þessari ör vaxandi íþrótt.
Hægt er að sjá uptökuna af íslandsmótinu í sarpinum hjá RÚV: http://ruv.is/sarpurinn/islandsmotid-i-olympiskum-lyftingu/26042014-0