Danska meistaramótið
Danska meistaramótið fer fram í Slagelse um helgina, 72 karlar eru skráðir til leiks og 37 konur.
Íslendingar eiga einn keppanda á mótinu Guðmund Borgar Ingólfsson sem keppir undir merkjum IK99, hann keppir í 85kg flokki og snaraði í janúar á CWC 88kg og jafnhenti 113kg.
Bestu lyftingamenn dana eru skráðir til leiks m.a. Tim Kring 24ára og keppandi í 77kg flokki hann snaraði 126kg og jafnhattaði 153kg sem dugði honum til sigurs á CWC í janúar.
Hægt er að nálgast skráningarlista á slóð danska lyftingasambandsins http://www.weightlifting.dk
Finnska meistaramótið
Finnska meistaramótið fer einnig fram um helgina í Pori, 70 karlar eru skráðir og 55 konur. Fjöldi finna er skráður til leiks en greinarhöfundur er mest spenntur á að fylgjast með eftirfarandi keppendum;
í karlaflokki Milko Tokola (85kg),Eero Retulainen (94kg), Miika Antti-Roiko (105kg), Eero Oja (+105kg) og Teemu Roininen (+105kg). Í kvennaflokki ber helst að nefna Anni Vuohijoki (69kg), Anna Everi (69kg) og Meri Ilmarinen (75kg).
Hægt er að sjá keppendalistann á heimasíðu finnska lyftingasambandsins:
http://www.painonnosto.fi/portal/fi/liitto/uutiset/?bid=1816&area=2
Streymt verður frá finnska meistaramótinu í gegnum eftirfarandi heimasíðu: http://bambuser.com/channel/parkanonpuntti