Norðurlandameistaramót í Ólympískum lyftingum var haldið á Akureyri þann 17. ágúst síðastliðinn.
Ísland vann í Liðakeppni Karla en Danmörk vann í Liðakeppni kvenna.
Keppendur fyrir Íslands hönd í karlaflokki voru Gísli Kristjánsson, Árni Björn Kristjánsson, Andri Gunnarsson, Árni Freyr Stefánsson, Róbert Eyþórsson, Hrannar Guðmundsson, Björgvin Karl Guðmundsson og Darri Már Magnússon.
Í kvennaflokki kepptu Svanhildur Vigfúsdóttir og Auður Ása Maríasdóttir.
Árangur Íslendingana var mjög góður og fékk Darri Már Magnússon gullverðlaun í -56 kg. fl. og setti þrjú ný íslandsmet í drengja og unglingaflokki. Hrannar Guðmundsson, átti í harðri keppni við Mikko Kuusto (FIN) í 77 kg. fl., en beið í lægri hlut á 100gr. þyndarmun á líkamsþyngd á keppnisdegi þar sem báðir lyftu 263 kg. í samanlögðu. Hrannar setti 3 ný Íslandsmet, 117 kg. í snörun, 146 kg. í janfhendingu og 263 kg. í samanlögðu eins og áður sagði. Róbert Eyþórsson hlaut silfurverðlaun í 69. kg. fl og Árni Björn Kristjánsson sömuleiðis í -105 kg. fl. en Árni Freyr Stefánsson lauk ekki keppni í þeim þyngdarflokki. Gísli Kristjánsson fékk bronsverðlaun í +105 kg. fl.. Svanhildur Vigfúsdóttir fékk bronsverðlaun -58 kg. fl. kvenna.
Per Hordnes (NOR) var stigahæstur karla yfir alla þyngdarflokka. Hann keppti í -94 kg. fl. og lyfti þar 143 kg í snörun og 180 kg í jafnhendingu og var með 323 kg. í samanlögðu.
Ruth Kasirye (NOR) var stigahæst kvenna yfir alla þyngdarflokka. Hún keppti í -63 kg. fl. og lyfti þar 96 kg í snörun og 117 kg í jafnhendingu og var með 213 kg. í samanlögðu.
Ármann var í öðru sæti í félagsliðakeppni karla en Norska félagið Tambarskjelvar IL sigraði. Danska félagið IK 99 sigraði í félagsliðakeppni kvenna en Ármann var þar í þriðja sæti.
Á Norðurlandameistaramótum er keppt í hinum hefðbundu 8 þyngdarflokkum hjá körlum en keppt er sérstaklega í 3 þyndarflokkum í stað hinna hefðbundna 7 þyngdarflokka hjá konum.
Eftirfarandi eru sigurvegarar í þyndarflokkum karla;
+105 kg. Ragnar Öhman (140/192/332)
-105 kg. Mikkel Andersen (145/165/310)
-94 kg. Per Hordnes (143/180/323)
-85 kg. Jarleif Amdal (135/160/329)
-77 kg. Mikko Kuusisto (115/148/263)
-69 kg. Jantsen Overas (108/127/235)
-62 kg. Arto Lahdekorpi (86/102/188)
-56 kg. Darri Már Magnússon (40/45/85)
Eftirfarandi eru sigurvegarar í kvennaflokkunum;
+ 69 kg. Madeleine Ahlner (70/94/164)
63-69 kg. Ruth Kasirye (96/117/213)
-63 kg. Christina Ejstrup (63/77/140)
Önnur úrslit mótsins má sjá á eftirfarandi skrá;
Nordic Senior 2013 Result 1 group
Nordic Senior 2013 Result 2 group
Nordic Senior 2013 Result 3 group
Myndir frá mótinu er hægt að nálgast á eftirfarandi síðum (©Sævar Geir Sigurjónsson).
https://www.facebook.com/kraftlyftingafelag.akureyrar/photos_stream
http://www.sport.is/ithrottir/2013/08/19/hrikalega-tekid-a-thvi-a-akureyri-myndaveisla/